Svona handsömuðu Bandaríkin Maduro: Njósnarar, lóðlampar og eftirlíking af dvalarstað Maduros í fullri stærð Agnar Már Másson skrifar 4. janúar 2026 18:25 Þessi loftmynd frá Vantor sýnir hverfið Fuerte Tiuna eftir loftárásir Bandaríkjahers í gær. AP Drónar, njósnarar, tölvuárás, uppljóstrari í venesúelsku ríkisstjórninni, lóðlampar, og nær fullkomin eftirlíking af dvalarstað Nicolás Maduros komu við sögu við undirbúning hernaðaraðgerðarinnar sem Bandaríkjaher réðst í í höfuðborg Venesúela í fyrrinótt þar sem venesúelski forsetinn og forsetafrúin voru handsömuð.
Aðgerðin nefnist „Algjör staðfesta“, eða „Operation Absolute Resolve“, og er umfangsmesta hernaðaríhlutun sem Bandaríkin hafa framkvæmt í Suður-Ameríku frá því í kalda stríðinu. Undirbúningur hennar hefur staðið yfir lengi en hún var ekki framkvæmd með samþykkt Bandaríkjaþings, eins og hefð er fyrir. Lærðu allt um Maduro Í ágúst 2025 komu útsendarar bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, sér fyrir í Venesúela til þess að njósna um sjálfan forseta landsins, Nicolás Maduro, sem stýrt hefur landinu með harðri hendi síðasta rúma áratug eftir að hann tók við af Hugo Chávez árið 2013. Þeim var falið að finna þjóðarleiðtogann, komast að öllu um hann með aðstoð njósnadróna og fylgjast með honum hvert sem hann fór. Þeir þurftu að vita „hvar hann bjó, hvert hann ferðaðist, hvað hann borðaði, hverju hann klæddist og hver gæludýrin hans voru,“ sagði Dan Caine, formaður bandaríska herforingjaráðsins, á blaðamannafundi í gær. Um fjórum mánuðum síðar, í byrjun desember, leit aðgerðin „Algjör staðfesta“ dagsins ljós. Yfir hátíðirnar munu ráðamenn, njósnarar, hermenn, sérsveitarmenn og fleiri hafa beðið í viðbragðsstöðu eftir réttu tækifæri til að hefja leika. „Gangi ykkur vel og góða ferð“ Það tækifæri gafst svo í fyrrinótt. Það var lágskýjað og fullt tungl á himni þegar Donald Trump Bandaríkjaforseti gaf grænt ljós á aðgerðina. „Gangi ykkur vel og góða ferð,“ mun Trump hafa sagt í talstöðakerfi hermanna þegar þeir lögðu af stað, að því er Caine greindi frá á blaðamannafundinum í gær. Dan Caine á blaðamannafundi í Mar-a-Lago í gær.AP Um tveimur klukkustundum síðar vöknuðu íbúar höfuðborgarinar Karakas við sprengingar. Bandaríkjaher hafði ráðist á Venesúela í skjóli nætur, tekið Maduro höndum ásamt eiginkonu hans og flutt þau úr landi þar sem þeirra beið ákæra í New York fyrir fíkniefnahryðjuverk og kókaíninnflutning. Ráðamenn í Venesúela segja að 40 Venesúelamenn hafi látið lífið í árásinni, þar á meðal óbreyttir borgarar. Sjá einnig: Fréttir af Venesúela Gerðu eftirlíkingu af dvalarstað hjónanna Njósnararnir höfðu komist að því að Maduro og kona hans dvöldu gjarnan í herstöðinni í Fuerte Tiuna í Karakas, en höfðu róterað milli sex til átta dvalarstaða eftir atvikum. Bandaríska aðgerðarsveitin sem framkvæmdi aðgerðina, sem er kölluð Joint Special Operations Command (JSOC), ákvað því að byggja eftirlíkingu af hervirkinu í fullri stærð í Fort Campbell í Kentucky þar sem sveitarmenn gátu meðal annars æft sig við að brjótast í gegnum stálhurðir eins hratt og þeir gátu, að því er New York Times greinir frá. Síðustu dagana fyrir árásina höfðu Bandaríkin komið fyrir stórum flota þyrlna við Karíbahafið. Eins og greint hefur verið frá höfðu Bandaríkin sprengt tugi báta á Karíbahafi síðustu mánuði og fellt allt að 115 manns sem ríkisstjórnin sagði vera eiturlyfjasmyglara. Þegar staðfesting barst að Maduro væri á Fuerte Tiuna létu Bandaríkjamenn til skarar skríða en Times greinir frá því að bandaríska leyniþjónustan hafi haft heimildarmann innan venesúelsku ríkisstjórnarinnar sem hafi hjálpað við að staðsetja forsetann. Slökktu ljósin Bandaríkjamenn hófu sóknina með tölvuárás þar sem þeir slökktu á rafmagni í stórum hluta venesúelsku höfuðborgarinnar, sem gerði um það bil 150 herþyrlum, drónum og öðrum loftförum af ýmsum gerðum, kleift að komast að höfuðborginni óséðar. Nær eina ljósið á mörgum stöðum í borginni var því bjarminn frá fulla tunglinu þessa nótt, og væntanlega frá sprengjunum sem féllu svo til jarðar þar sem Bandaríkjaher reyndi að lama loftvarnir borgarinnar. Þyrla mun hafa lent við herstöðina þar sem Maduro var niðurkominn. Hermennirnir voru vel vígbúnir og höfðu lóðlampa (e. blow torch) meðferðis til að bræða sér leið í gegnum hurðir í herstöðinni, að því er CBS hefur eftir heimildum. Fimm mínútum eftir að sérsveitarmenn Delta Force höfðu ráðist inn í herstöðina sendu þeir kollegum sínum merki um að Maduro hefði verið handsamaður, skrifa Times. Honum var komið fyrir í þyrlu sem var svo flogið um borð á herskipinu U.S.S. Iwo Jima sem stóð um 160 kílómetra út af ströndum Venesúela. Skipinu var siglt til Guantanamo þar sem hjónanna beið flugvél sem flaug með þau til Manhattan. Fjölmiðlamenn safnast fyrir utan fangelsið þar sem Nicolas Maduro forseti er í haldi í New York.AP Símtal á Þorláksmessu Trump fylgdist með aðgerðinni í beinni. „Það var eins og að horfa á sjónvarpsþátt,“ sagði Donald Trump í viðtali á Fox News er hann lýsti því hvernig var að sjá hermenn handtaka Maduro. Á Þorláksmessu hafði Trump nefnilega átt símtal við Maduro, að því er Bandaríkjaforsetinn sagði á blaðamannafundi í gær. Ónefndur bandarískur ráðamaður segir við Times að Trump hefði hótað Maduro innrás ef hann gæfi Bandaríkjunum ekki aðgang að olíu landsins og flýði land til Tyrklands. Maduro hafnaði því og svo fór sem fór. Nú er Maduro kominn til New York, þar sem hann verður að líkindum dreginn fyrir dómstóla í vikunni þar sem fersk ákæra hefur verið gefin út á hendur honum fyrir eiturlyfjasmygl, fíkniefnahryðjuverk, vopnahald og fleira. Trump sagði í gær að Bandaríkin væru reiðbúin að gera aðra árás ef nauðsyn krefðist, en sagði líklegast ekki verða þörf. Varaforseti Venesúela, Delcy Rodríguez, hefur aftur á móti verið formlega svarinn inn sem forseti landsins og nýtur nú stuðnings hersins. Óljóst er hver næstu skref verða en ekki er útlit fyrir að nýir valdhafar vilji fylgja fyrirmælum Bandaríkjastjórnar, þar sem Rodríguez hefur ítrekað yfir stuðning sinn við Maduro.
Donald Trump Bandaríkin Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Venesúela Mest lesið Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent 20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Innlent Vill prófa sjálfkeyrandi bíla í Eyjum Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Ók viljandi á ástralska þingkonu Erlent Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum Innlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira