„Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Atli Ísleifsson skrifar 12. janúar 2026 08:41 Héraðsdómur Reykjaness féllst ekki á gæsluvarðhaldskröfu héraðssaksóknara yfir Helga Bjarti á föstudaginn. Vísir Helgi Bjartur Þorvarðarson, maðurinn sem ákærður er fyrir að hafa nauðgað tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn, segist ekki sekur um þau brot sem hann er sakaður um. Hann segist hafa fallið á bindindi sínu umrætt kvöld, verið í „blackout-ástandi“ en að hann hafi það ekki í sér að vera fær um að gera það sem hann er sakaður um.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Helga Bjarti sem lögmaður hans sendi fjölmiðlum í morgun. Þar segist hann lengi velt því fyrir sér hvort hann eigi yfir höfuð að stíga fram í málinu. „Ég geri það nú af þeirri einföldu ástæðu að þögn mín hefur skapað rými fyrir þá ályktun að ég hafi vísvitandi framið ólýsanlegt brot gegn barni,“ segir í yfirlýsingunni. Héraðsdómur Reykjaness féllst ekki á gæsluvarðhaldskröfu héraðssaksóknara yfir Helga Bjarna á föstudaginn. Foreldrar drengsins sögðust í samtali við fréttastofu í gær hafa orðið miklum vonbrigðum með niðurstöðuna. Sögðust þau upplifa sig í fangelsi á heimili sínu meðan maðurinn gengi laus. Helgi Bjartur segir í yfirlýsingu sinni að umrætt kvöld hafi hann fallið á bindindi sínu og um nóttina verið kominn í svokallað blackout-ástand og ekki virst með sjálfum sér „enda fannst ég sofandi áfengisdauða í vaskahúsinu heima hjá mér án þess að muna hvernig ég komst þangað“. „Þó að ég hafi verið í þessu ástandi þá hef ég það einfaldlega ekki í mér að vera fær um að gera það sem ég er sakaður um og er saklaus af þeirri ákæru. Þá er ákæran sjálf í miklu ósamræmi við gögn málsins að mínu mati. Það breytir þó engu um þá staðreynd að afleiðingarnar eru raunverulegar, alvarlegar og skelfilegar,“ segir í yfirlýsingunni. Hefur leitað sér aðstoðar Helgi Bjartur segist í yfirlýsingunni taka það skýrt fram að hann fordæmi allt kynferðisofbeldi gegn börnum og að hann hafi aldrei haft slíkar hvatir eða hugsanir. „Það sem ég er sakaður um að hafa gert er mér sjálfum óskiljanlegt og hefur sett líf mitt og fjölskyldu minnar í rúst. Það eina sem ég veit er að í því húsi sem sagt er að ég hafi farið inn í þessa nótt býr kona sem ég taldi á þessum tímapunkti bestu vinkonu mína. Ég skil að orð mín breyta ekki þeirri upplifun og þeim ótta sem barn og fjölskylda þess bera. Ég finn til með barninu og fjölskyldu þess vegna þess ótta og sársauka sem þau upplifa í dag. Ég mun aldrei geta afturkallað það að hafa fallið á bindindi mínu, en tek aftur fram að ég er ekki sekur um það sem ég er ákærður fyrir. Ég hef frá fyrsta degi verið í samstarfi við yfirvöld og mun halda því áfram. Ég hef jafnframt leitað sérfræðiaðstoðar og er í meðferð til að tryggja að slíkt bakslag endurtaki sig ekki. Ég skil að þetta mál vekur sterk viðbrögð. Ég bið þó um að málsmeðferð fái að fara sinn lögbundna farveg og að dómur verði ekki kveðinn upp í fjölmiðlum. Þetta er martröð sem ég mun bera með mér alla ævi. Það eina sem ég get gert er að axla ábyrgð á falli mínu og sýna iðrun í verki,“ segir í yfirlýsingu Helga Bjarts. Skautað framhjá mikilvægum sjónarmiðum Oddgeir Einarsson, lögmaður Helga Bjarts, segir í sinni yfirlýsingu að þrátt fyrir mikla fjölmiðlaumfjöllun um þetta viðkvæma mál – meðal annars fyrir tilstilli lögreglu og saksóknara sem hafi hafist löngu áður en dómstólar svo mikið sem byrjuðu að skoða málið – hafi skjólstæðingur hans ekki viljað lýsa sinni afstöðu opinberlega hingað til. „Það er þó þannig að í allri þeirri umfjöllun hefur algjörlega verið skautað hjá mikilvægum sjónarmiðum sem benda til sakleysis í málinu auk þess að þar eru atriði sem beinlínis eru ekki sannleikanum samkvæm. Vegna nafn- og myndbirtinga í kjölfar þess að héraðsdómur hafnaði á föstudag kröfu saksóknara um gæsluvarðhald sér skjólstæðingur minn sig knúinn til að upplýsa að hann telji ákæru þá sem hann sætir í málinu í miklu ósamræmi við gögn málsins og að hann sé saklaus af ákæru um að hafa brotið kynferðislega gegn barni. Úr þessu verður einfaldlega leyst fyrir dómi þar sem öll gögn málsins og sjónarmið beggja aðila, en ekki einungis ákæruvaldsins, koma til skoðunar. Þrátt fyrir einhliða umfjöllun um málið undanfarna mánuði sem skjólstæðingur minn hefur ekki viljað blanda sér í treystir hann því að dómstólar fjalli um málið af hlutlægni og á óhlutdrægan hátt. Loks er rétt að minna á að sú grundvallarregla réttarríkisins gildir enn að sakborningur skal álitinn saklaus uns sekt er sönnuð,“ segir í yfirlýsingu Oddgeirs.
Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Lögreglumál Hafnarfjörður Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Mest lesið Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Innlent Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Innlent Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Erlent Harður árekstur á Reykjanesbraut Innlent „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Innlent Kveður eftir ævilangt starf Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Innlent Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Innlent Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Erlent Fleiri fréttir Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Önnur stúlka grunuð um að hafa sparkað ítrekað í hana Kveður eftir ævilangt starf Styrkja fjarskiptainnviði vegna almyrkvans en ítreka forgang 112 Nærbuxur í sundi landlægt vandamál Sérsveitaraðgerð á Akureyri Fólskuleg árás og óvinsæl sundtíska Furðulegum fiskum, hetjum hafsins og brunabangsa bregður fyrir um helgina Guðlaug skipuð skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja „Áreiðanlegar upplýsingar“ um að Sindri sé í varðhaldi Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Endurbætur kostuðu 415 milljónir: Veggfóður fyrir nítján milljónir og ljós fyrir ellefu FÍA hvetur flugmenn til að hlaupa undir bagga og styðja við Icelandair Mogginn afþakkar framlag Dags B. Sendi frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar Ætlar að synda niður Lagarfljót fyrstur manna Skiptiskjól á þremur stöðum í Reykjavík Hallast að því að þetta sé einbeittur brotavilji Sjá meira