Brugðið vegna ummæla lögreglumanns um Frú Ragnheiði Lovísa Arnardóttir skrifar 13. janúar 2026 14:11 Ósk Sigurðardóttir segir starfsfólki brugðið yfir umræðu í hlaðvarpinu Einni pælingu um helgina. Þar sagðist lögreglumaðurinn Guðmundur Fylkissin hafa átt í útistöðum við skaðaminnkandi úrræðu Rauða krossins. Samsett Fulltrúum Rauða krossina var brugðið vegna ummæla Guðmundar Fylkissonar lögreglumanns í hlaðvarpinu Ein pæling um helgina um skaðaminnkandi úrræði Rauða krossins og að hann hafi átt í útistöðum við starfsfólk úrræðanna. Þetta segja þær í aðsendri grein á Vísi í dag.
Ósk Sigurðardóttir, deildarstjóri höfuðborgardeildar Rauða krossins, og Sigríður Ellu Jónsdóttur, teymisstjóri skaðaminnkunar hjá Rauða krossinum, árétta í grein sinni að ef börn leita til Frú Ragnheiðar sé það ávallt tilkynnt til Barnaverndar. Það sama eigi við um börn sem þau telja mögulega vera í ótryggum aðstæðum. „Í fyrra leitaði enginn yngri en átján ára sér þjónustu hjá Frú Ragnheiði. Við leggjum okkur fram við að taka sérstaklega vel utan um fólk á aldrinum 18-25 ára sem til okkar leitar og erum í góðu samstarfi við önnur viðeigandi úrræði eða þjónustu hvað þann hóp varðar,“ segja þær í grein sinni. Guðmundur var af mörgum fjölmiðlum, meðal annars fréttastofu Sýnar, valinn maður ársins árið 2025 vegna góðra starfa hans í þágu barna með fjölþættan vanda. Guðmundur hefur lagt allt sitt í að standa við bakið á hópnum, en hann aðstoðar fjölskyldur þeirra við leit að börnunum þegar þau týnast. Í hlaðvarpinu lýsti hann ítrekuðum árekstrum sínum fyrir nokkrum árum við starfsfólk skaðaminnkandi úrræða Rauða krossins þegar hópur barna sem hann leitaði að leitaði þangað í miklum mæli. Guðmundur gagnrýndi í hlaðvarpinu að hjá Frú Ragnheiði hefðu þessi börn getað fengið búnað til öruggrar neyslu vímuefna. Hann sagði ekki í lagi að börn væru þjónustuð af þessu úrræði og að fái börn þarna þjónustu myndi hann mæta aftur og láta vita að um barn væri að ræða. Ekkert barn í Frú Ragnheiði í fyrra Þær Ósk og Sigríður Ella benda á í grein sinni að Frú Ragnheiður starfi ekki í tómarúmi. Þau eigi í góðu samstarfi við Landspítala, sveitarfélögin, lögreglu og fleiri. „Skaðaminnkandi þjónusta byggir á gagnreyndri nálgun sem hefur verið beitt víða um heim. Í henni felst engin uppgjöf fyrir vandanum heldur er hún árangursrík leið til að bæta líðan fólks og auka öryggi þess, oft á erfiðustu stundum lífs þess. Okkur er mjög annt um skjólstæðinga okkar. Okkur er umhugað um velferð þeirra og okkur er mjög hugleikið að umræðan um skaðaminnkandi þjónusta sé byggð á staðreyndum og sett fram af nærgætni. Rangfærslur og hálfkveðnar vísur valda meiri skaða en gagni,“ segja þær í grein sinni. Skorti fræðslu um skaðaminnkun Þær segja fólk almennt sífellt betur átta sig á inntaki skaðaminnkunar en af umræðunni í hlaðvarpsþættinum að dæma sé ljóst að enn vanti mikið upp á þekkingu á hugmyndafræðinni. „Það tökum við sannarlega til okkar enda berum við mikla ábyrgð þegar kemur að fræðslu á þessu sviði. Við höfum því einsett okkur að gera betur hvað það varðar á þessu ári.“ Í greininni fjalla þær einnig nokkuð ítarlega um skaðaminnkandi starfsemi Rauða krossins. Þær segja ýmsar ástæður fyrir því að fólk byrji að nota vímuefni, þær séu yfirleitt bæði flóknar og margvíslegar, og það hafi sýnt sig að forvarnir skili árangri og að gott framboð verði að vera af meðferðarúrræðum. Auk þess hafi það sýnt sig síðustu ár að skaðaminnkandi þjónusta gagnast þeim sem nota vímuefni. „Markmið slíkrar þjónustu er að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll, óafturkræfan skaða, sýkingar og smitsjúkdóma, að vernda líkamlega og andlega heilsu fólks sem notar vímuefni og auka lífsgæði þess,“ segir í greininni og að Rauði krossinn hafi átt frumkvæði að slíkum verkefnum og að hið opinbera geri það síður. Blóðsöfnun, Konukot og nú skaðaminnkandi úrræði Blóðsöfnun sé eitt slíkt dæmi og stofnun Konukots annað. Skaðaminnkandi þjónusta félagsins sé svo nýlegt verkefni sem hófst með Frú Ragnheiði árið 2009. „Frúin, eins og við köllum hana gjarnan, er sérinnréttaður bíll sem veitir þeim sem á þurfa að halda þjónustu á vettvangi,“ segir í greininni og að þegar fólk stígi inn í bílinn sé því mætt af mannúð og fordómaleysi. Það sé grunnstef allrar skaðaminnkandi þjónustu. Í bílnum fái fólk sálfélagslegan stuðning, aðhlynningu vegna sára, almenna heilsufarsskoðun auk þess sem þau fá ýmsan búnað og hreinlætisvörur. Einnig er fólki veitt ráðgjöf og tengingum komið á við önnur úrræði í samráði við þarfir og óskir viðkomandi. Næring og fatnaður er líka í boði enda heimilisleysi og fátækt útbreidd í þessum viðkvæma hópi. „Lækkun á tíðni sýkinga og útbreiðslu smitsjúkdóma á borð við HIV og lifrarbólgu C, færri dauðsföll af völdum ofskömmtunar, ábyrgari neysluhegðun og minna af notuðum sprautubúnaði í almenningsrýmum eru á meðal þess ávinnings sem hlýst af Frú Ragnheiði. Við hjá Rauða krossinum erum mjög stolt af þessu verkefni og erum ekki í nokkrum vafa að það hefur breytt lífi margra til hins betra,“ segja þær Ósk og Sigríður Ella í grein sinni.
Fíkn Félagasamtök Lögreglumál Börn og uppeldi Tengdar fréttir Fleiri stelpur týndar en áður Nýjum einstaklingum hefur fjölgað umtalsvert síðustu ár, í hópi barna með fjölþættan vanda sem lögreglan leitar að hverju sinni. Þá eru breytingar í kynjahlutföllum áberandi nú um stundir, týndar stúlkur voru marktækt fleiri en drengir á síðasta ári. Lögreglumaður segir þessa þróun ekki góða. 11. janúar 2026 18:01 Nærri 400 leitarbeiðnir vegna 95 týndra barna á árinu Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem hefur sérhæft sig í að leita að börnum hefur á þessu ári fengið tæplega 400 leitarbeiðnir vegna 95 barna. Í fyrra voru þær 259 og 221 árið áður. Yngsta barnið er 14 ára og þau elstu að verða 18. Hann segir undantekningu að 11 ára börn neyti vímuefna, þau glími frekar við hegðunarvanda. 10. desember 2025 09:02 Mest lesið Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Innlent Hleypa rússnesku olíuskipi óáreittu til Kúbu Erlent Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Innlent Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Innlent Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Innlent Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Innlent Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Innlent Fyrirséð fjöldamorð í El Fasher: Að minnsta kosti tíu þúsund myrtir á tveimur dögum Erlent Trausti í öðru sæti í Eyjum Innlent Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Innlent Fleiri fréttir Trausti í öðru sæti í Eyjum Stór hópur ferðamanna lét greipar sópa skipulega um söluskála Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Enginn grunnskóli á Raufarhöfn í vetur Þyrlan gerð út vegna slyss við Varmahlíð Kanna hvort hinn eftirlýsti sé í löglegri dvöl Enn óhlýðnast ferðamenn: „Öldurnar skella á stuðlaberginu eins og sprengingar“ Ný könnun: Hástökk Viðreisnar í Hafnarfirði Ósátt með ábyrgðarleysi eftir að börn lentu í bílslysi á skólatíma Stórtónleikarnir verða fyrir neðan Öxarárfoss Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Ársæll hættur sem skólameistari Bílar fastir við Steingrímsfjarðarheiði „Fólk er bara að vinna minna“ Au-pair kerfið sé misnotað til að fá ódýrt vinnuafl Sprengja í umsóknum um au-pair Nafnið verði krefjandi verkefni en í höndum íbúanna Foktjón á Suðurnesjum og Akranesi Verðbólga, biskupsmálið og utanríkismál Breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar auglýstar Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Brjálaður aðili“ reyndist eftirlýstur af lögreglu Pétur Markan bæjarstjóraefni Okkar Hveragerðis Sjö af hverjum tíu fýlum með plast í maganum Sameining hreppanna tveggja samþykkt Bílar sitja fastir vegna þungrar færðar Blóð úr hinum grunaða á hnífi á vettvangi Vonast til að náttúran verði þeim hliðholl Allir fundnir óslasaðir eftir snjóflóð Framkvæmdaleyfi Hvalárvirkjunar fellt úr gildi Sjá meira
Fleiri stelpur týndar en áður Nýjum einstaklingum hefur fjölgað umtalsvert síðustu ár, í hópi barna með fjölþættan vanda sem lögreglan leitar að hverju sinni. Þá eru breytingar í kynjahlutföllum áberandi nú um stundir, týndar stúlkur voru marktækt fleiri en drengir á síðasta ári. Lögreglumaður segir þessa þróun ekki góða. 11. janúar 2026 18:01
Nærri 400 leitarbeiðnir vegna 95 týndra barna á árinu Guðmundur Fylkisson, lögreglumaður sem hefur sérhæft sig í að leita að börnum hefur á þessu ári fengið tæplega 400 leitarbeiðnir vegna 95 barna. Í fyrra voru þær 259 og 221 árið áður. Yngsta barnið er 14 ára og þau elstu að verða 18. Hann segir undantekningu að 11 ára börn neyti vímuefna, þau glími frekar við hegðunarvanda. 10. desember 2025 09:02