Orðin innantóm um rekstur Hveragerðisbæjar Friðrik Sigurbjörnsson og Alda Pálsdóttir skrifa 15. janúar 2026 14:30 Um miðjan desember var fjárhagsáætlun Hveragerðisbæjar fyrir árið 2026 samþykkt. Í kjölfarið fór meirihluti Framsóknar og Okkar Hveragerðis mikinn og talaði um einstaka fjárhagsáætlun sem sýndi ábyrgan rekstur og lækkun skulda. Í bókun meirihlutans frá bæjarstjórnarfundi í nóvember var síðan talað um „stórsókn“ í hinum ýmsu málaflokkum, í fjölskyldumálum, félagslegu húsnæði og uppbyggingu leikskóla, en þegar áætlunin er skoðuð er þessi orðræða lítt í takt við efnið. Dæmi hver fyrir sig hvort hugtakið “stórsókn” eigi við um kaup á einni félagslegri íbúð. Þá er lítið um raunverulegt aðhald í rekstri og því er í heild ekki hægt að tala um ábyrgan rekstur líkt og meirihlutinn hefur haldið fram. Ekki er brugðist við hækkun aðfanga og launa og jafnvel er gert ráð fyrir fjölgun starfsmanna og nefndarfunda sem eykur kostnað í stað þess að fara ábyrga leið og draga úr honum. Áframhaldandi skuldsetning Skuldsetning Hveragerðisbæjar á yfirstandi kjörtímabili ætti að vera íbúum mikið áhyggjuefni. Þannig hafa skuldir og skuldbindingar Hveragerðisbæjar á kjörtímabilinu hækkað úr 5.8 milljörðum kr. í lok árs 2022 og stefnir í að vera um 10 milljarða kr. í lok árs 2026. Samkvæmt fjárhagsáætlun verður skuldaviðmið samstæðu í 117,2%. Meirihlutinn hefur haft uppi fullyrðingar um að skuldir séu á niðurleið, en þær fullyrðingar standast því ekki þegar hækkun á skuldum og skuldbindingum sveitarfélagsins er skoðuð á þessu kjörtímabili. Lítil sem engin uppbygging innviða Þrátt fyrir aukna skuldasöfnun á kjörtímabilinu hefur lítið gerst í uppbyggingu innviða í Hveragerði. Uppbygging grunnskólans hélt áfram á þessu kjörtímabili líkt og meirihluti D-listans hafði undirbúið á síðasta kjörtímabili. Leikskólinn Óskaland var stækkaður, en um leið gerður gríðarlega óhagstæður leigusamningur við Fasteignafélagið Eik til 50 ára eða ársins 2074. Leigan samkvæmt nýjum viðauka er 4.523.594 krónur á mánuði og miðað við stærð viðbyggingarinnar jafngildir það um 7.540 krónur á fermetra, tæplega þrefalt markaðsverð fyrir leigu atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu. Með stækkuninni bættust við einungis þrjár deildir, en kostnaður við byggingu viðbyggingarinnar var sá sami og nýr fullbyggður 6 deilda leikskóli hefði verið. Enn bólar ekkert á nýju fráveitumannvirki, samt tala fulltrúar meirihlutans líkt og það mannvirki sé risið. Þá hefur uppbygging fyrir íþróttaiðkun gengið heldur brösuglega, en það var eitt helsta kosningaloforð beggja flokka í meirihluta, að hér í bæ yrði risið nýtt íþróttahús fyrir lok kjörtímabilsins. Tillaga D-listans um 700 fermetra æfingarsal við núverandi íþróttahús var breytt í sameiginlega tillögu bæjarstjórnar. Sú tillaga hefur bólgnað út á síðustu mánuðum og kostnaður við bygginguna aukist enn frekar. Ljóst er að sú upphæð sem er sett í áætlun fyrir þá framkvæmd næstu þrjú árin virðist ekki duga fyrir núverandi kostnaðaráætlun. Til viðbótar við þetta var ákveðið að fara í uppbyggingu á gervigrasvelli upp í dal. Sú framkvæmd hefur ekki heldur staðist tímaáætlun og ekki víst að völlurinn verði tilbúinn til notkunar fyrr en seint í vor eða byrjun sumars. Nú er byrjað að byggja ný íbúðarhús í Kambalandi, en þar er gatnagerðin ekki enn búin og því enn ein framkvæmdin þar sem tímaáætlanir hafa ekki gengið eftir. Álögurnar og fasteignagjöldin hækka Miðað við fjárhagsáætlun virðist að litlu leyti eiga að standa við samþykkt bæjarráðs frá því síðasta sumar. Þar var tillaga fulltrúa D-listans um að lækka álagningarhlutfall fasteignagjalda á íbúða- og atvinnuhúsnæði og að fækka gjalddögum að nýju úr 11 í 10 samþykkt. Meirihlutinn gaf út villandi skilaboð til bæjarbúa eftir bæjarstjórnarfund í desember þar sem því var haldið fram að álagningarhlutfall fasteignagjalda væri að lækka, sem þau gera að litlu leyti, og þar með væru fasteignagjöldin líka að lækka. Hið rétta er samt að fasteignagjöldin á íbúa Hveragerðis munu hækka um 6-8% sé miðað við að fasteignamat íbúða hækki í takt við meðal hækkun fasteignamats í Hveragerði fyrir árið 2026. Þá hækka öll önnur gjöld sem eru inni í fasteignagjöldunum eins og vatnsgjald, fráveitugjald og sorphirðugjöld. Það var svigrúm til að lækka fasteignagjöldin eins og sést í framlagðri fjárhagsáætlun þar sem gert er ráð fyrir að skila afgangi upp á yfir 500 milljónir króna, en meirihlutinn ákvað að nýta sér það ekki. Hvorki til að minnka lántökur, lækka skuldir eða lækka álögur á íbúa Hveragerðisbæjar. Friðrik Sigurbjörnsson og Alda Pálsdóttir, bæjarfulltrúar D-listans í Hveragerði. Fyrirsögn greinarinnar hefur verið breytt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Halldór 18.04.2026 Halldór Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að missa sjónar á því sem stendur okkur næst? Hólmfríður Rut Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvernig stenzt þetta skoðun, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Áklæðið endurnýjað en vélin enn biluð Jóhanna Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri í menntun sem við megum ekki missa af skrifar Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Skoðun Samfélag regnbogans Dagný Kristinsdóttir skrifar Skoðun Táknin skipta ekki máli – fagmennskan gerir það Magnús Þór Jónsson skrifar Skoðun 30 ára aðlögun án áhrifa Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Kópavogsdalur er okkar Central Park Hákon Gunnarsson skrifar Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Miskunnsami Samverjinn“ — sá sem þér ber að hata, fyrirlíta og forðast Sigurvin Lárus Jónsson skrifar
Skoðun Rödd þeirra sem bera kerfið uppi og rétturinn til að nota hana Formenn fag- og stéttarfélaga í heilbrigðisþjónustu skrifar
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar