Kallar fulltrúa sendiráðsins á teppið: „Mér er ekki skemmt“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 15. janúar 2026 17:04 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur engann húmor fyrir því að grínast sé með að Ísland verði 52. ríki Bandaríkjanna. Vísir/Vilhelm Fulltrúi bandaríska sendiráðsins á Íslandi hefur verið kallaður á teppið í utanríkisráðuneytinu í dag þar sem hann verður krafinn skýringa um meint ummæli mögulegs sendiherraefnis Bandaríkjanna gagnvart Íslandi. Skorað hefur verið á Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra að bregðast við vegna brandara Billy Long um að gera ætti Ísland að 52. ríki Bandaríkjanna.
Bandaríkjastjórn hefur tilnefnt Long sem sendiherra á Íslandi en hann hefur þó enn ekki verið skipaður. Hann ku hafa látið brandarann falla í samtali við bandaríska þingmenn, en hefur síðan beðist afsökunar á ummælunum. Þorgerður Katrín var til viðtals í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag þar sem málið barst meðal annars í tal og hún spurð hvort hún sem utanríkisráðherra ætli með einhverjum hætti að bregðast við. „Já, við erum að fá fulltrúa bandaríska sendiráðsins hingað á fund til okkar í dag. Við viljum fá skýra mynd af þessu. Hvort þessi orð hafi verið látin falla eða í hvaða umhverfi þetta gerðist. Mér er ekki skemmt ef að þetta er rétt. En ég held að í öllu þessu umróti sem er í dag þá skipti miklu máli að vera með skýrar upplýsingar, skýra mynd af því sem gert hefur verið, sagt hefur verið, og það er það sem að við viljum fá frá sendiráðinu,“ svaraði Þorgerður. Hún var einnig til viðtals um málið í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar, þar sem hún ítrekaði að sér væri ekki skemmt og það væri mikilvægt að kalla eftir svörum og skýringum. Innt eftir svörum við því hvaða þýðingu það hefði ef umrædd ummæli væru rétt, kvaðst Þorgerður ekki ætla að fara í neinar „digrar yfirlýsingar“ um eitthvað sem enn væri óljóst. „En það er alveg ljóst að ef að þetta hefur átt að vera einhver húmor, þá er mér ekki skemmt. Og það er náttúrlega yfirgengilegt á þessum tímum líka að vera að gera grín að og skopast með fullveldi þjóða,“ sagði Þorgerður. Markmiðið sé að fá skýrari upplýsingar frá fulltrúa bandaríska sendiráðsins og síðan verði tekin afstaða í framhaldinu. Málefni Grænlands og endurteknar hótanir Trump-stjórnarinnar um að Bandaríkin verði að eignast Grænland voru einnig rædd við ráðherrann, sem segir mjög miður að þessi staða sé komin upp á milli bandalagsríkja, „Auðvitað hefur maður haft áhyggjur af framvindunni og við Íslendingar höfum auðvitað verið skýr þegar kemur að Grænlandi, að við sýnum órofa samstöðu með Grænlandi og konungsríkinu Danmörku,“ sagði Þorgerður. Hún fagnar hún þeirri samstöðu sem Norðurlönd og aðrar þjóðir hafa sýnt Grænlandi og að þegar hafi fjöldi ríka innan Atlantshafsbandalagsins boðað þátttöku í efldum vörnum og varnaræfingum í og við Grænland. Þá sé jákvætt í sjálfur sér að settur verði á fót starfshópur bandarískra, grænlenskra og danskra embættismanna og þannig sé komið á stað formfastari farvegi fyrir samtal á milli ríkjanna, þrátt fyrir djúpstæðan ágreining um Grænland. Fréttin hefur verið uppfærð.
Utanríkismál Bandaríkin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sendiráð á Íslandi Öryggis- og varnarmál Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Sjá meira