Hafi afhent Trump Friðarverðlaun Nóbels Eiður Þór Árnason skrifar 16. janúar 2026 00:06 María Corina Machado, einn helsti leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, heilsar stuðningsfólki fyrir utan Hvíta húsið á fimmtudag. Ap/Pablo Martinez Monsivais María Corina Machado, einn leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist hafa afhent Donald Trump Bandaríkjaforseta friðarverðlaun Nóbels. Þetta hafi hún gert „til að viðurkenna einstaka skuldbindingu hans við frelsi okkar.“
Machado fékk friðarverðlaunin í fyrra vegna baráttu sinnar fyrir lýðræði í Venesúela. Hún hefur stutt umdeilda handtöku Bandaríkjastjórnar á Nicolás Maduro, forseta Venesúela, og lýsti því fljótlega yfir eftir aðgerðirnar að stjórnarandstaðan væri tilbúin að taka við stjórnartaumum í landinu. Bandaríkjastjórn hefur sýnt því boði lítinn áhuga fram að þessu. Machado fundaði með Trump í Hvíta húsinu og greindi hópi blaðamanna í kjölfarið frá því að hún hafi afhent forsetanum verðlaunin en veitti takmarkaðar upplýsingar. Hvíta húsið hefur ekki gefið út hvort Trump hafi þegið Nóbelsorðuna. Var í felum Á fundinum er Machado sögð hafa rætt við Trump um framtíð Venesúela en hann hefur áður lýst því yfir að hann telji hana ekki vera trúverðugt leiðtogefni. Henni var bannað að bjóða sig fram til forseta gegn Maduro í síðustu kosningum í Venesúela. AP-fréttaveitan greinir frá heimsókn Machado sem er sögð nokkuð áhættusöm í ljósi þess að hún hefur verið í felum frá því að hún yfirgaf Venesúela í fyrra. Hún hafði áður verið í haldi í stuttan tíma í höfuðborginni Karakas. „Við getum treyst á Trump forseta,“ sagði hún við stuðningsfólk fyrir utan Hvíta húsið eftir fundinn en skýrði það ekki nánar. Brugðust nokkrir við með því að hrópa: „Takk fyrir Trump!“ Trump hefur ítrekað lýst yfir efasemdum um Machado og þá treysta ekki allir yfirlýsingum hans um að til standi að byggja upp lýðræðislegt stjórnkerfi í Venesúela. Hann hefur gefið til kynna að hann sé tilbúinn að vinna með Delcy Rodríguez, starfandi forseta, sem var jafnframt sú næsta í valdaröðinni á eftir Maduro og náin samstarfskona hans. Bandaríkjastjórn hefur lagt mikla áherslu á að bandarísk og evrópsk olíufyrirtæki hefji olíuvinnslu í Venesúela. Þá hyggjast Bandaríkin taka yfir alþjóðlega sölu á olíu þaðan sem féll áður undir efnahagslegar refsiaðgerðir.
Venesúela Bandaríkin Donald Trump Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Nóbelsverðlaun Tengdar fréttir Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Donald Trump Bandaríkjaforseti mun taka á móti venesúelska stjórnarandstöðuleiðtoganum Maríu Corinu Machado í Hvíta húsinu á fimmtudaginn. 13. janúar 2026 07:19 Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hitta Maríu Corina Machado, leiðtoga stjórnarandstæðunnar í Venesúela. Þá segir Trump að það yrði mikill heiður fyrir hann ef hún ákvæði að afhenda honum friðarverðlaun Nóbels, sem hún vann í fyrra. 9. janúar 2026 15:13 Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist ætla að snúa aftur til landsins eins fljótt og henni er auðið. Hún segist einnig vilja afhenda Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, friðarverðlaun Nóbels, sem hún hlaut í fyrra. Trump hefur sagt að hún njóti ekki nægilegrar virðingar til að stýra Venesúela eftir að hann lét nema Nicolás Maduro, forseta, á brott á dögunum. 6. janúar 2026 11:21 Mest lesið „Ég er hræddur við þessa menn“ Innlent „Sleggja beint í höfuðið á almenningi og fyrirtækjum“ Innlent Fjöldi menntaskólanema sá myndskeið af árásinni Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Stærðfræðin vefst fyrir íslenskum stúlkum Innlent Leikskólakennarar slegnir yfir ummælum Ingu Innlent Þúsundir kalla eftir afsögn Þorgerðar: „Vandræðaleg tilraun“ Innlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Erlent Fleiri fréttir Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Sjá meira
Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Donald Trump Bandaríkjaforseti mun taka á móti venesúelska stjórnarandstöðuleiðtoganum Maríu Corinu Machado í Hvíta húsinu á fimmtudaginn. 13. janúar 2026 07:19
Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segist ætla að hitta Maríu Corina Machado, leiðtoga stjórnarandstæðunnar í Venesúela. Þá segir Trump að það yrði mikill heiður fyrir hann ef hún ákvæði að afhenda honum friðarverðlaun Nóbels, sem hún vann í fyrra. 9. janúar 2026 15:13
Vill afhenda Trump friðarverðlaunin Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, segist ætla að snúa aftur til landsins eins fljótt og henni er auðið. Hún segist einnig vilja afhenda Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, friðarverðlaun Nóbels, sem hún hlaut í fyrra. Trump hefur sagt að hún njóti ekki nægilegrar virðingar til að stýra Venesúela eftir að hann lét nema Nicolás Maduro, forseta, á brott á dögunum. 6. janúar 2026 11:21