Boðar 10 prósenta toll á Norðurlönd, Breta, Frakka, Þjóðverja og fleiri Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 17. janúar 2026 16:37 Donald Trump er allt annað en sáttur með tregar Evrópuþjóðir. AP/Alex Brandon Donald Trump hyggst leggja tíu prósenta toll á allar vörur frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Frakklandi, Bretlandi, Hollandi og Finnlandi frá og 1. febrúar vegna þess að fyrrnefnd lönd styðja ekki innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi.
Í færslu sem Bandaríkjaforseti birti á samfélagsmiðli sínum í dag segir hann sömuleiðis að tollurinn muni hækka um 15 prósentustig og nema 25 prósentum 1. júní hafi Bandaríkjamenn ekki fengið yfirráð yfir Grænlandi. Ekkert bendir til þess í færslu Trump að Ísland verði fyrir barðinu á þessum tollum þrátt fyrir að tveir fulltrúar Landhelgisgæslunnar hafi verið sendir til Grænlands. Norðmenn sendu aðeins tvo fulltrúa síns hers. Hann segir „heimsfriðinn í húfi“ og að Bandaríkjamenn hafi í 150 ár unnið að því að innlima Grænland en ekki haft erindi sem erfiði. „Kína og Rússland vilja fá Grænland, og það er ekkert sem Danmörk getur gert í því,“ skrifar hann. Fundurinn reyndist gagnslaus Færsluna birtir forsetinn aðeins örfáum dögum eftir fund utanríkisráðherra Danmerkur og Grænlands með varaforseta og utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þrátt fyrir spennuþrungið andrúmsloft þótti fundurinn hafa gengið vel fyrir sig og dregið örlítið úr spennunni þjóðanna á milli. Það kom þó fljótlega í ljós í kjölfarið að þó að Trump-liðar hafi sýnt örvott af virðingu á fundi ráðherrana láta þeir ekki sannleikann eða bandalög þvælast fyrir órökstuddum hótunum um innrásir og samningasvik. Strax daginn eftir fundinn lét fjölmiðlafulltrúi Trump-stjórnarinnar hafa það eftir sér að starfshópur sem fundurinn leiddi af sér hefði það að markmiði að ná samkomulagi um útfærslu á innlimun Bandaríkjanna á Grænlandi. Þessu svaraði Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra um hæl og hafnaði því algjörlega. Í dag fóru svo fram fjölmenn mótmæli um alla Danmörku þar sem stjórnmála- og baráttumenn fluttu ræður og baulað var á bandaríska sendiráðið við Dags Hammarskjölds Allé. Grænlenskir miðlar greindu einnig frá því í dag að bandaríska ræðismannsskrifstofan í Nuuk hygðist flytja í nýtt húsnæði í miðborginni með brynvörðum gluggum. Nauðsynlegt fyrir líf á plánetunni jörð Trump hefur nú ákveðið að grípa aftur til tollanna. „Við höfum niðurgreitt Danmörku, og öll lönd Evrópusambandsins, í mörg ár með því að rukka þau ekki um tolla eða nokkurs konar endurgreiðslu. Nú, öldum seinna, er kominn tími til að Danmörk gefi af sér. Heimsfriður er í húfi!“ segir Trump í upphafi langrar færslunnar. Hann heldur áfram á svipuðum nótum og talar um að undir hans stjórn muni enginn „snerta þetta heilaga land,“ sérstaklega í ljósi þess að þjóðaröryggi Bandaríkjanna og alls heimsins sé undir það komið. Stóraukin hernaðarviðvera Evrópumanna á Grænlandi segir hann „öryggi og líf á plánetunni okkar.“ „Þessi lönd, sem leika þennan mjög hættulega leik, hafa skapað áhættu sem er hvorki ásættanleg né sjálfbær. Þess vegna er brýnt, til að vernda heimsfrið og öryggi, að gripið verði til öflugra aðgerða svo þetta hugsanlega hættulega ástand taki enda fljótt og án nokkurra spurninga,“ segir hann. Tollurinn í gildi þar til samningar nást Í ljósi þessa kveðst hann hafa ákveðið að leggja tíu prósenta toll á Danmörk, Noreg, Svíþjóð, Frakkland, Þýskaland, Bretland, Holland og Finnland sem tekur gildi 1. febrúar. Þann 1. júní 2026 verði tollurinn svo hækkaður í 25 prósent. Tollurinn verði heimtaður þar til samkomulag næst um fullkomin og alger kaup á Grænlandi. „Margir forsetar hafa reynt, og af góðri ástæðu, en Danmörk hefur alltaf neitað. Nú, vegna Gullhvelfingarinnar og nútíma vopnakerfa, bæði sóknar- og varnarvopna, er þörfin á að EIGNAST landið sérstaklega mikilvæg. Hundruðum milljarða dollara er nú varið í öryggisáætlanir sem tengjast „Hvelfingunni“, þar á meðal til hugsanlegrar verndar Kanada, og þetta snilldarlega en afar flókna kerfi getur aðeins virkað með hámarksgetu og skilvirkni, vegna horna, marka og landamæra, ef þetta landsvæði er innifalið í því.“
Donald Trump Bandaríkin Skattar, tollar og gjöld Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Grænland Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Sjá meira