Við þurfum Dóru Björt í borgarstjórn Íris Stefanía Skúladóttir skrifar 24. janúar 2026 11:02 Ég hef þekkt Dóru Björt Guðjónsdóttur um árabil. Það sem einkennir hana er sambland auðmýktar og styrks. Hún hlustar, hún tekur ábyrgð og hún leiðir með skýr gildi að leiðarljósi. Dóra er í stjórnmálum því hún brennur fyrir borginni og hefur skýra sýn á hvert skuli stefna. Hún leggur áherslu á að ákvarðanir séu teknar af heiðarleika og með heildarhagsmuni borgarbúa í huga. Hún lætur ekki staðar numið við frasa og yfirlýsingar heldur fylgir málum eftir og vinnur markvisst að lausnum. Hún er óhrædd við að taka erfiðar ákvarðanir, jafnvel þegar þær eru ekki vinsælar. Dóra sækist ekki eftir skammtímavinsældum heldur vinnur að því sem hún telur rétt til lengri tíma litið. Það er ekki alltaf auðveldasta leiðin en hún er gjarnan sú rétta. Dóra er þannig ósérhlífin og tekur ábyrgð sína alvarlega. Svo er hún lausnamiðuð og mannasættir. Hún á auðvelt með að vinna með allskonar fólki með ólíkar skoðanir og byggir samstarf á trausti og gagnkvæmri virðingu. Það hefur sýnt sig í störfum hennar í borgarstjórn, þar sem hún hefur myndað þrjá meirihluta með fjórum og nú fimm flokkum þar sem oft þarf að finna sameiginlegar lausnir. Í haust tók Dóra Björt ákvörðun um að ganga til liðs við Samfylkinguna, eftir vandlega ígrundun. Það var þrátt fyrir að þurfa þá að láta af hendi valdamestu stöðu borgarinnar á eftir borgarstjóra og þrátt fyrir að láta af hendi nokkuð öruggt sæti í borgarstjórn eftir kosningar. Það er vegna þess að hún hlustar á hjartað og er í stjórnmálum af ástríðu. Það er andstæðan við tækifærismennsku. Loftslagsmál og sjálfbær borgarþróun eru Dóru hjartans mál. Hún vill borg þar sem fólk hefur raunverulegt val í samgöngum með hreinu lofti, aðgengi að nærþjónustu og lífsgæðum sem því fylgir svo borgin verði samkeppnishæf á heimsvísu. En Dóra er ekki bara öflugur stjórnmálamaður. Hún er hlý, skemmtileg og með smitandi orku. Hún er góð vinkona og stendur með fólkinu sínu. Dóra Björt Guðjónsdóttir er manneskja sem ég treysti. Hún er sterkur kostur fyrir Samfylkinguna og fyrir þau sem vilja ábyrg, heiðarleg og framsýn stjórnmál. Ég mun kjósa Dóru Björt í dag í forvali Samfylkingarinnar í dag og mæli með því að þú gerir slíkt hið sama. Höfundur er listakona, kennari og Reykvíkingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira