Þórdís Kolbrún blæs á sögusagnir um vistaskipti Jakob Bjarnar og Lovísa Arnardóttir skrifa 27. janúar 2026 10:34 Þórdís Kolbrún segir ekkert hæft í sögusögnum um að hún sé að færa sig um set. Vísir/Vilhelm Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi ráðherra og varaformaður flokksins, segist engar ákvarðanir hafa tekið um breytingar á sínum högum. Það segir Þórdís í SMS-skilaboðum til fréttastofu. „
Ég hef engar ákvarðanir teknar um breytingar á mínum högum – læt vita ef það breytist,“ segir hún í skilaboðunum. Hún hefur ekki gefið kost á samtali vegna málsins. Páll Magnússon, bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum og fyrrverandi útvarpsstjóri og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að það væru sögusagnir um það í „ákveðnum kreðsum um helgina“ að annar áhrifamaður innan Sjálfstæðisflokksins væri að fara í nýtt starf. Þórdís Kolbrún væri að verða sendiherra. Páll Magnússon var fréttamaður til margra ára áður en hann sneri sér að stjórnmálum. Þá var hann um tíma útvarpsstjóri.Vísir/Ívar Fannar Vísaði Páll þar til fregna gærdagsins um að Bjarni Benediktsson, fyrrverandi formaður og ráðherra Sjálfstæðisflokksins, myndi taka við starfi framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins þann 1. mars. „En þetta, tekið fram, þetta voru sögusagnir í ákveðnum kreðsum … ég myndi alla vega ráðleggja ykkur að hringja í fréttastofuna hér á eftir og láta hana hringja í einhvern sem veit,“ sagði Páll í Bítinu í morgun. Fréttastofa hafði samband við Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra í síðustu viku vegna þessa sem kom af fjöllum. Hún sagði blaðamann segja sér fréttir. Þá svaraði Þórdís Kolbrún fyrirspurn fréttastofu í gærkvöldi hvort eitthvað væri hæft í því að hún væri að hverfa af þingi og að taka stöðu á erlendum vettvangi. Þórdís svaraði skriflega í SMS-i og sagðist ekki hafa tekið neina ákvörðun um breytingar á sínum högum. Hún myndi láta vita ef það breyttist. Svör hennar í framhaldi af sögusögnum Páls í Bítinu í morgun voru á sömu leið. Bryndís yrði fyrsti þingmaður Hyrfi Þórdís af þingi og til annarra starfa þýddi það breytingar á þingliði Sjálfstæðisflokksins en hann er stærstur í Suðvesturkjördæmi með 23,4 prósent atkvæða. Þórdís er fyrsti þingmaður Kragans en Bryndís Haraldsdóttir tæki við sem slík. Þá hefur Þórdís gengt stöðu sérstaks erindreka framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum, staða sem hún hefur nú sinnt í tæpt ár. Þegar Bjarni Benediktsson gaf það út að hann myndi ekki gefa kost á sér sem formaður flokksins fyrir síðasta landsfund, og að hann vildi draga sig úr stjórnmálum, litu flestir til Þórdísar. Hún hins vegar gaf það frá sér og Guðrún Hafsteinsdóttir varð formaður eftir harðan slag við Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur. Hlakkaði til að verða frjálsari Þórdís sagði við það tækifæri að hún hlakkaði til að verða óbreyttur þingmaður á eigin forsendum – og hluti af liði. „Ég hlakka til að vera frjálsari, fá meiri tíma til að lesa bækur og skrifa, rækta það að hafa skynbragð og skilning á því sem er að gerast í kringum okkur, og veldur mér raunverulegum áhyggjum.“
Utanríkismál Bítið Sjálfstæðisflokkurinn Alþingi Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira