Hagur okkar allra Sigurjón Þórðarson skrifar 28. janúar 2026 08:03 Það er forgangsmál hjá ríkisstjórninni að endar nái saman í útgjöldum og tekjum ríkissjóðs og stefnt hallalausum fjárlögum á næsta ári. Oft er fjallað um ríkisfjármálin eins og engin verðmætasköpun eigi sér stað hjá hinu opinbera líkt og hjá einkageiranum. Það er ekki rétt. Menntakerfið stuðlar til að mynda að verðmætri þekking og færni til framtíðar. Heilbrigðiskerfið viðheldur og bætir heilsu þjóðarinnar en án hennar er flest annað lítils virði. Réttarvörslu- og eftirlitskerfi hins opinbera tryggja öryggi og réttindi borgaranna og vart þarf að fjölyrða um gagnsemi samgangna. Engu að síður verður hið opinbera að sníða sér stakk eftir vexti, meðal annars til að stuðla að lægri vöxtum og draga úr þenslu. Fjölmargar áskoranir blasa við í rekstri ríkisins. Umfangið á rekstri ríkisins skiptir alltaf máli og hefur áhrif á þjóðarbúskapinn í heild. Þess vegna þarf alla tíð að huga umfangi ríkisútgjalda. Á hverjum tíma þarf að velta fyrir sér á hvaða verkefnum ríki og sveitarfélög eigi að bera ábyrgð á og með hvaða hætti er best að standa að einstökum verkefnunum. Er það til dæmis hlutverk hins ríkisins að styðja hagsmunafélög, reka fjölmiðla, styðja við trúarbrögð, lífsskoðunarfélög, styrkja atvinnurekstur, íþróttastarf, selja vímuefni og þá hvernig? Ekki endilega tengsl milli útgjalda og árangurs Á gagnlegum fundi fulltrúa fjárlaganefndar Alþingis með sérfræðingum OECD var farið yfir leiðbeiningar eða vegvísi að bættum rekstri og fjárlagagerð. Lögð var áhersla á gagnvirkt samtal þings, fjármálaráðuneytis og almennings um hvernig ná megi árangri, meðal annars með því að greina útgjöld eftir málefnasviðum. Mælt var með að fundir fjárlaganefndar yrðu opnir eða í beinni útsendingu. Færa má gild rök fyrir að það geti aukið traust og gagnsæi. Skortur á gagnsæi og jafnræði við sölu og úthlutun ríkiseigna og úthlutun tímabundins afnotaréttar af nýtingu sameiginlegra auðlinda Íslendinga hefur verið til vansa. Nú er unnið að því að bæta þar úr. Ef vandaðar kerfisbundnar greiningar gefa til kynna að ákveðin starfsemi sé ekki að skila ávinningi vegna óskilvirkni, ætti að vera í forgangi að auka skilvirkni áður en auknu fjármagni er veitt í þá starfsemi. Í umræðunni á fundi OECD kom fram að hagræðing gerðist ekki sjálfkrafa við sameiningu stofnanna. Áður en farið væri í sameiningar væri mikilvægt að móta mælanleg viðmið og skapa áhuga fyrir væntanlegum breytingum. Alltaf væri nauðsynlegt að spyrja hvort verkefni sem ríkið sinnir ætti ef til vill fremur heima hjá sveitarfélögum eða í einkarekstri. Það eru möguleikar og tækifæri til að gera betur í umfangsmiklum rekstri ríkisins. Útgjöld ríkissjóðs verða um 1.700 milljarðar á þessu ári og til mikils að vinna að vel sé farið með. Til að ná árangri er mikilvægt að nálgast verkefnið með jákvæðum hætti, til dæmis með ríkari samvinnu við almenning. Það er hagur okkar allra að rekstur ríkissjóðs sé skilvirkur og stuðli að vexti og viðgangi þjóðfélagsins og skili árangri. Höfundur er þingmaður Flokks fólksins og formaður fjárlaganefndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Flokkur fólksins Rekstur hins opinbera Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar