Offita er ekki tilviljun – hún er kerfisvandi Elísabet Reynisdóttir skrifar 5. febrúar 2026 10:30 Undanfarið hef ég setið með óþægilega hugsun. Umræða um offituvanda Íslendinga hefur verið áberandi í fjölmiðlum, ekki síst vegna þess að við höfum færst í efsta sæti meðal Norðurlanda. Það eitt og sér er alvarlegt. En það sem veldur mér mestum áhyggjum er hvernig lausnirnar eru settar fram. Sífellt oftar virðist áherslan færast yfir á lyfjameðferð og önnur inngrip, fremur en að rýna í þær aðstæður sem liggja að baki vandanum. Það er út frá þessum vangaveltum sem þessi grein er skrifuð. Erum við að ráðleggja vitlaust? Algengt er að offita sé sett fram sem einstaklingsbundið vandamál sem eigi t.d. að mæta með lyfjameðferð eða skurðaðgerðum. Í raun er það þó gjarnan eina úrræðið sem blasir við fólki þegar það leitar sér hjálpar, enda eru aðrar leiðir sjaldnar í boði innan kerfisins. En ef það væri hin fullkomna lausn, hvers vegna erum við þá að taka fram úr öðrum Norðurlandaþjóðum? Umfang vandans bendir til þess að orsakanna sé ekki aðeins að leita hjá einstaklingnum, heldur í þeim aðstæðum sem fólk býr við. Sífellt fleiri vísbendingar benda til þess að stór hluti vandans tengist efnaskiptaójafnvægi, þar sem lifrin gegnir lykilhlutverki. Lifrin stýrir blóðsykri, fituefnaskiptum og hormónajafnvægi, og þegar hún verður ofhlaðin – meðal annars vegna langvarandi streitu, óreglulegra máltíða og unnins, næringarsnauðs matar – safnast fita í lifrina. Fitulifur er orðin ein algengasta efnaskiptaröskun samtímans, ekki aðeins hjá fullorðnum heldur einnig hjá börnum. Þetta er ekki afleiðing skorts á ábyrgð einstaklingsins, heldur eðlilegt viðbragð líkamans við umhverfi og aðstæðum sem kerfisbundið ýta undir efnaskiptaójafnvægi. Því er eðlilegt að velta upp þeirri spurningu hvort að það sé verið að ráðleggja vitlaust ? Þegar kerfið ýtir undir vandann Hvað ef heilbrigðiskerfið sjálft er orðið hluti af vandanum? Þrátt fyrir aukna þjónustu og vaxandi kostnað beinast úrræðin enn oft að megrun, hitaeiningastjórnun og lyfjameðferð, fremur en að byggja upp raunverulega efnaskiptaheilsu. Á sama tíma byggir stór hluti daglegrar næringar barna og fullorðinna, í skólum, stofnunum og á vinnustöðum, á unnum matvælum sem ýta undir insúlínviðnám, fitusöfnun í lifur og orkuleysi – jafnvel hjá fólki sem fylgir opinberum ráðleggingum. Í þessu samhengi er skiljanlegt að margir líti á lyfjameðferð sem eðlilega lausn. En lyf leysa ekki rót vandans ef kerfið heldur áfram að skapa sama ójafnvægið. Við verðum einnig að horfast í augu við að innan heilbrigðiskerfisins eru til staðar fjárhagslegir hvatar og tengsl við lyfjaiðnaðinn sem geta haft áhrif á hvaða lausnir fá mest vægi. Það er löglegt og skráð, en kallar engu að síður á gagnsæi og gagnrýna umræðu. Þetta er ekki gagnrýni á einstaka lækna eða heilbrigðisstarfsfólk, heldur á kerfi sem umbunar frekar fyrir meðferð afleiðinga en fyrir raunverulegar forvarnir. Börnin eru ekki vandamálið Þegar sífellt fleiri börn greinast með efnaskiptavanda, þar á meðal fitulifur, getum við ekki lengur látið eins og um einstaklingsbundið vandamál sé að ræða. Börnin eru ekki vandamálið – kerfið er það. Fitulifur hjá börnum er ekki sjúkdómur framtíðarinnar. Hún er afleiðing ákvarðana sem við tökum í dag um næringu, hreyfingu, forvarnir og forgangsröðun. Lokaorð Offita er ekki einfalt vandamál sem hægt er að leysa með lyfjameðferð eða skurðaðgerð einni saman. Ef markmiðið er að snúa við þróuninni þarf að færa áhersluna frá því að bregðast við afleiðingunum yfir í að breyta þeim aðstæðum sem skapa vandann. Það þýðir meðal annars að: bæta næringargæði í skólamötuneytum og stofnunum, styðja markvisst við hreyfingu og íþróttaiðkun barna, óháð efnahag, og endurskoða hvata innan heilbrigðiskerfisins þannig að forvarnir, næring og lífsstílsstuðningur fái raunverulegt vægi. Lyfjameðferð og aðgerðir geta átt rétt á sér í ákveðnum tilvikum, en án kerfisbreytinga munum við halda áfram að sjá sömu niðurstöður, ár eftir ár. Þegar efnaskiptavandi verður algengari en undantekningin, er ljóst að kerfið þarf að breytast – og ráðleggingarnar með. Höfundur er næringarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun