Umhverfisráðherra gleymir lýðheilsu Pétur Halldórsson skrifar 5. febrúar 2026 14:31 Jóhann Páll Jóhannsson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti nýverið frumvarp um að leggja niður heilbrigðiseftirlit á Íslandi og tvístra verkefnum þess til mismunandi stofnana. Þessi áform eru umdeild innan stjórnsýslunnar og hefur ráðherra þegar verið bent á að áformin geti ekki náð sínum yfirlýstum markmiðum. Þrátt fyrir það hefur áformunum verið haldið til streitu og því vaknar upp spurningin: hvers vegna? Villandi framsetning Þegar áformin voru kynnt hélt ráðherra því pent fram að þau hefðu ekki áhrif á lýðheilsu, jafnvel þótt markmið laga um hollustuhætti snúist í raun alfarið um lýðheilsu, þ.e. „að búa landsmönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heilnæmu og ómenguðu umhverfi.“ Kynning á frumvarpinu er því villandi svo maður spyr sig: gleymdust markmið laganna eða skortir jafnvel þekkingu á málaflokknum? Hvað er lýðheilsa? Samkvæmt Landlækni ræðst heilsa almennings (lýðheilsa) af samspili einstaklinga við umhverfi sitt. Lýðheilsa byggir þannig annars vegar á því að umhverfi fólks sé heilnæmt, þ.e. laust við heilsuspillandi þætti á borð við sýkla, hættuleg efni og loftmengun, og hins vegar á félagslegum og menningarlegum þáttum sem hafa áhrif á það hvernig fólk hagar lífi sínu. Gott dæmi um þetta samspil er íslensk sundlaugamenning sem fékk nýverið viðurkenningu UNESCO sem óáþreifanlegur menningararfur mannkyns og þar leikur heilbrigðiseftirlit lykilhlutverk. Hvað ætlar Jóhann Páll raunverulega að gera? Til að auðvelda fólki að skilja áform Jóhanns Páls um að leggja niður heilbrigðiseftirlitið, þá er hér stutt samantekt á því sem raunverulega stendur til: ·Verkefni heilbrigðiseftirlitsins yrðu ekki lengur unnin samþætt heldur yrði þeim tvístrað milli mismunandi stofnana, þ.e. Umhverfis- og orkustofnunar, Matvælastofnunar og hvers og eins sveitarfélags á landinu (sem eru 62 talsins). Sem dæmi þá yrði eftirlit með heilnæmi leikskóla á hendi þriggja stofnana í stað einnar. ·Þjálfunarkröfur og starfsréttindi heilbrigðisfulltrúa yrðu afnumin, sem þýðir að enginn myndi lengur þurfa að hafa „starfsreynslu sem nær til allra sviða heilbrigðiseftirlits“ og þess í stað myndu eftirlitsmenn ofangreindra stofnana einungis fá þjálfun í afmörkuðum sviðum heilbrigðiseftirlits. Þannig myndi eftirlit með fjölþættri starfsemi krefjast aðkomu fleiri starfsmanna en áður, sem eykur kostnað og flækir úrvinnslu. ·Lýðheilsuverkefni eins og eftirlit með tóbaksvörnum (sem Jóhann Páll minnist ekki einu orði á í frumvarpi sínu) myndu falla milli skips og bryggju. Enn má afstýra slysinu Þrátt fyrir allt þetta er þó ánægjulegt að ráðherra hefur mælt sér mót við Félag heilbrigðisfulltrúa svo við getum tekið samtalið um þennan mikilvæga málefnaflokk. Allir eru sammála um að það þarf að efla heilbrigðiseftirlit enn frekar, t.d. með því að efla samræmingu og einfalda leyfisferla, en til að útfæra raunhæfa lausn er nauðsynlegt að þekkja málaflokkinn. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Ég var rekinn Daði Már Kristófersson Skoðun Útvistun, Minna gott, meira vont Halldór Ólafsson Skoðun Aumingja tryggingafélögin Agnar Þór Guðmundsson,Haukur Freyr Axelsson Skoðun Sniðgöngum ísraelska lyfjarisann Teva eins og Rapyd Björn B Björnsson Skoðun Það sem þingmaður vill segja Sigmar Guðmundsson Skoðun Greið leið til lækkunar stýrivaxta Bogi Nils Bogason Skoðun Svona stöðvum við hallarekstur ríkisins, loksins Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Afhverju skiptir tilfinningin um að tilheyra meira máli en Instagram? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Ekki minn kaffibolli Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun 174 þúsund króna skutlið Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gott samfélag verður ekki til af sjálfu sér Marta Rut Ólafsdóttir skrifar Skoðun Gerðir samningar sviknir af ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki byggt vernd barna á tilviljunum! Arnrún María Magnúsdóttir skrifar Skoðun Ekki minn kaffibolli Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Sniðgöngum ísraelska lyfjarisann Teva eins og Rapyd Björn B Björnsson skrifar Skoðun Tveggja ára reynsla af samkeppnisundanþágum á kjötmarkaði Breki Karlsson, Ólafur Stephense skrifar Skoðun Erindislaus meirihluti leggur á flótta Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Bókasafnið mitt - Heimili að heiman Lísa Z. Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Útvistun, Minna gott, meira vont Halldór Ólafsson skrifar Skoðun Afhverju skiptir tilfinningin um að tilheyra meira máli en Instagram? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Suðurnesin bíða ekki, við verðum að fylgja eftir Fida Abu Libdeh skrifar Skoðun Ég var rekinn Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Svona stöðvum við hallarekstur ríkisins, loksins Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Auðveldum kynslóðaskipti bænda Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Aumingja tryggingafélögin Agnar Þór Guðmundsson,Haukur Freyr Axelsson skrifar Skoðun Þarf að kæra íslenska ríkið? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Ímynd er drifkraftur útflutnings Pétur Þ. Óskarsson skrifar Skoðun Íslenskir sálfræðingar í aldarfjórðung Pétur Maack Þorsteinsson skrifar Skoðun Það sem þingmaður vill segja Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Tollabandalag ESB og mörk „sérlausna“ Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Nokkur orð í viskubrunninn Einar Helgason skrifar Skoðun Sameinuð stöndum vér hræsnarar Íslands Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Ekki er allt sem sýnist í rekstri Garðabæjar Einar Þór Einarsson skrifar Skoðun Við erum Vinstrið Sanna Magdalena Mörtudóttir,Líf Magneudóttir,Stefán Pálsson,Ásta Þórdís Skjalddal,Arna Magnea Danks,Finnur Ricart Andrason skrifar Skoðun Vistum fanga í íbúðarhverfum Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Greið leið til lækkunar stýrivaxta Bogi Nils Bogason skrifar Skoðun Samningaeftirlitið - bannað börnum! Hannes Friðriksson skrifar Skoðun Er ferðaþjónustan virðiskeðjan sem byggir upp Ísland? Aðalheiður Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Uppbygging Hveragerðis og þróun innviða Birgitta Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Óþarfi að fella niður allt skólahald Stefán Steingrímur Bergsson skrifar Sjá meira
Afhverju skiptir tilfinningin um að tilheyra meira máli en Instagram? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun
Skoðun Tveggja ára reynsla af samkeppnisundanþágum á kjötmarkaði Breki Karlsson, Ólafur Stephense skrifar
Skoðun Afhverju skiptir tilfinningin um að tilheyra meira máli en Instagram? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Við erum Vinstrið Sanna Magdalena Mörtudóttir,Líf Magneudóttir,Stefán Pálsson,Ásta Þórdís Skjalddal,Arna Magnea Danks,Finnur Ricart Andrason skrifar
Afhverju skiptir tilfinningin um að tilheyra meira máli en Instagram? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun