Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð Hólmfríður Gísladóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 6. febrúar 2026 12:46 Kristrún sat fyrir svörum eftir ríkisstjórnarfund í morgun. Vísir/Bjarni Málefni Bakkakots voru rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun og minnisblöð lögð fram frá þremur ráðuneytum, forsætismálaráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu, lögð fram.
Ríkisstjórnin ákvað að grípa strax til fjögurra aðgerða, meðal annars að rannsaka stöðu vistbarna á Bakkakoti og að bjóða þeim aðilum sem þar voru vistaðir sálfræði- og áfallaaðstoð. „Í þriðja lagi að það verði gerð sérstök úttekt á stöðu fósturbarna hér á landi,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun. „Eins líka stöðu eftirlits, hvað fósturbörn varðar. Og síðan í fjórða lagi þurfum við að huga almennt að sanngirnisbótakerfinu, sem hefur eðlilega komið upp í umræðu í tengslum við þetta mál. En líka fjölda annarra mála. Við þurfum að kortleggja það betur, sanngirnisbætur. Það var vinna í gangi á sínum tíma inni í nokkrum ráðuneytum og við stefnum að því, eins og sakir standa, að leggja fram frumvarp í haust,“ sagði forsætisráðherra. Hún sagði engar kröfur hafa borist forsætisráðuneytinu en að hún vissi til þess að fleiri en þeir sem hefðu þegar stigið fram hefðu sett sig í samband við lögmenn. Þá gæti hún ekki tjáð sig um mögulegar sanngirnisbætur á þessu stigi málsins, það væri ekki forgangsmál. „Við erum að horfa heildrænt á kerfið. Við erum meðvituð um að grípa þessa einstaklinga, varðandi þetta mál, strax varðandi áfallaaðstoð og meðferð. Og síðan auðvitað að senda skýr skilaboð varðandi að aðstæður verði rannsakaðar.“ Málið væri flókið og viðkvæmt. Kristrún sagði að skýrustu skilaboðin sem hún hefði fengið á fundi með þolendum í gær hefðu verið þau að það væri gríðarlega mikilvægt að þeir sem kæmu að úttekt málsins væri treyst. „Það auðvitað situr með þessum einstaklingum, eins og víða annars staðar í svona málum, að þeim hafi ekki verið treyst; þeim hafi ekki verið trúað. Þannig að það skiptir aðalmáli að við pössum upp á það.“ Kristrún sagði fundinn sem hún átti með þremur þolendum í gær hafa verið átakanlegan. „Það sem situr eftir er þessi tilfinning að börn, í langan tíma, ungmenni og síðan fullburða einstaklingar hafi ekki fengið viðurkenningu á því að á þeim hafi verið brotið. Og það er auðvitað þyngra en tárum taki. Ég held að það skipti alveg rosalega miklu máli, og það var mikið um það rætt í ríkisstjórn af hálfu allra aðila, að það verður að hlusta á börn.“ Hún sagði skilaboðin sem menn tækju með sér þau að það verði að trúa einstaklingum í tilvikum sem þessum. Fréttin verður uppfærð.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vistheimili Rangárþing ytra Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira