Hver er ábyrgur þegar heilbrigðiskerfið er komið langt yfir neyðarstig Sigurður Sigurðsson skrifar 7. febrúar 2026 13:00 Þegar heilbrigðiskerfi lands er komið langt yfir neyðarstig og alvarlega veikt fólk vistað í bílageymslunni þá er ekki lengur hægt að tala um „áskoranir“, „flókin verkefni“ eða „ófyrirséðar aðstæður“. Eða að eldriborgarar séu að stífla spítalann. Þá er aðeins ein spurning sem skiptir máli: hver ber ábyrgð? Sú ábyrgð liggur ekki hjá læknum, hjúkrunarfræðingum eða starfsfólki sem heldur kerfinu gangandi með yfirvinnu, útsjónarsemi og miklum fórnum. Hún liggur ekki hjá sjúklingunum eða eldriborgurum sem bíða jafnvel mánuðum saman eftir þjónustu. Hún liggur hjá ráðherrum og Alþingi, sem bera stjórnarskrárbundna ábyrgð á heilbrigðiskerfinu og innviðum þess. Nýi Landspítalinn stefnir líklega í hrun með pólitískri ábyrgð - það er ekki smáatriði - það eru hamfarir Vandi Nýja Landspítalans er oft settur fram sem tæknilegt eða skipulagslegt vandamál. Það er rangt. Ástandið er hættuleg pólitísk keðja margra rangra ákvarðana sem hafa verið teknar án ábyrgðar - í kæruleysi og fávisku - áratugum saman: til að dreifa ábyrgð, fresta erfiðum ákvörðunum og forðast skýra ábyrgð ráðherra og Alþingis. Ráðherrar og jafnvel Alþingi hafa samþykkt:1) óskýra ábyrgðarskiptingu, 2) framkvæmdir án heildstæðrar rekstrarsýnar, 3) fokdýra endurhönnun margra verkþátta og „sparnað“ sem bitnar síðar á þjónustu. Þetta eru ekki mistök embættismanna. Þetta eru ákvarðanir stjórnvalda. „Þegar ráðherra samþykkir kerfi án ábyrgðar, samþykkir hann líka afleiðingarnar.“ Heilbrigðiskerfið er á þolmörkum og stefnir jafnvel á brotlendingu Á meðan stjórnsýslan ver eigin ferla er heilbrigðiskerfið að gefa sig. Deildir starfa við stöðugan skort á starfsfólki. Starfsfólk brennur út. Sjúklingar með alvarleg veikindi bíða – jafnvel í bílageymslunni. Þetta gerðist ekki af sjálfu sér. Þetta ástand er afleiðing þess að innviðir, húsnæði og skipulag hefur ekki verið byggt á faglegan hátt með raunverulegar þarfir Þjóðar-sjúkrahússrekstrar í huga. Þarfagreining á uppbyggingu innviðanna hefur ekki litið dagsins ljós. Almenningur fær ekkert að vita. Rómverjar skildu að mannvirki svo sem sjúkrahús sem þjóna samfélaginu verða að vera hönnuð út frá notkun og viðhaldi frá fyrsta degi undir einni allsherjar ábyrgð. Íslensk stjórnvöld hafa hins vegar valið að skilja í sundur byggingu sjúkrahússins, reksturinn og ábyrgðina. Þessi formúla er bein ávísun á alvarleg mistök. Allt er því til dæmis í lausu lofti með Nýja Landspítalann svo sem fjármál og verktími hafa farið langt út úr öllum áætlunum - allt stjórnlaust - enginn ábyrgur - og nú blasa afleiðingarnar við. Nú síðast var eldriborgurum sem eru fastir inni á spítalanum vegna vanhæfis í kerfinu kennt um allan skandalann. Er hægt að leggjast lægra en það? „Sjúkrahús sem er afhent án heildar rekstrarsýnar er skuld sem heilbrigðiskerfið síðan borgar daglega um alla ókomna framtíð.“ Hver ber ábyrgð? Heilbrigðisráðherra ber pólitíska ábyrgð á ástandi heilbrigðiskerfisins. Fjármálaráðherra ber ábyrgð á fjármögnun og forgangsröðun fjármuna. Innviðaráðherrar og Alþingi í heild bera ábyrgð á því almennt hvernig stórar opinberar framkvæmdir eru skipulagðar. Ef enginn ráðherra stígur fram og segir: „Þetta er á mínu borði“, þá er kerfið orðið ábyrgðarlaust í reynd. „Ábyrgð sem enginn axlar er ábyrgð sem bitnar á sjúklingunum og þjóðinni allri - og nú er skuldinni einnig skellt á eldriborgara.“ Alþingi getur ekki falið sig lengur Alþingi getur ekki lengur látið sem þetta sé einstakt verkefni sem „verði skoðað síðar“. Þegar heilbrigðiskerfið er komið yfir neyðarstig er þögn sama og samþykki. Ef ekkert er gert: 1) festist vandinn í áratugi, 2) næstu stórframkvæmdir endurtaka sömu mistök, 3) traust almennings á stjórnmálum heldur áfram að rofna. „Þjóð sem sættir sig við ábyrgðarleysi og hrun í heilbrigðismálum sættir sig líka við það alls staðar annarsstaðar í stjórnkerfinu.“ Krafa til ráðherra og Alþingis Krafan er ekki flókin: 1) Skýr heildarábyrgð á stórum heilbrigðisverkefnum. 2) Pólitísk ábyrgð þegar kerfi bregðast. 3) Ákvarðanir teknar út frá rekstri og þjónustu, ekki bara framkvæmdaupplýsingaskjölum. Rómverjar skildu að án ábyrgðar hrynja innviðir. Á Íslandi eru innviðir bara látnir hrynja án þess að nokkur beri ábyrgð. Í dag blasir við að án ábyrgðar hrynji einnig traustið á stjórnkerfinu hjá okkur þegar ástandið með Nýja Landspítalann verður opinbert. Það er ábyrgð sem enginn ráðherra ætti að vilja bera. Höfundur er byggingarverkfræðingur og áhugamaður um heilbrigðismál. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Sigurðsson Heilbrigðismál Eldri borgarar Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar