Nánasti ráðgjafi Starmers segir af sér Bjarki Sigurðsson skrifar 8. febrúar 2026 16:00 Keir Starmer er sagður hafa oft leitað til Morgans McSweeney þegar eitthvað bjátaði á. Getty/Leon Neal Morgan McSweeney hefur sagt af sér sem starfsmannastjóri Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. Hann kveðst hafa spilað stórt hlutverk í aðdraganda skipan Peter Mandelson sem sendiherra Breta í Bandaríkjunum.
Mandelson er nú til rannsóknar hjá lögregluyfirvöldum á Bretlandseyjum vegna samskipta hans við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Grunur er uppi um að Mandelson hafi lekið gögnum og viðkvæmum upplýsingum til Epsteins í kjölfar efnahagshrunsins 2008. Starmer skipaði Mandelson sem sendiherra árið 2024, þrátt fyrir að hann hafi vitað af tengslum þeirra Epstein. Hins vegar hafi Mandelson gert lítið úr sambandi þeirra. McSweeney ráðlagði Starmer síðan að skipa Mandelson, þrátt fyrir tengslin. „Ég aðspurður ráðlagði forsætisráðherranum að skipa hann og ég tek fulla ábyrgð á þeim ráðleggingum. Þegar maður er í sviðsljósinu er mikilvægt að viðurkenna mistök þegar það skiptir máli, ekki bara þegar það hentar manni. Í ljósi þess er það réttasta í stöðunni að ég segi af mér,“ segir í yfirlýsingu McSweeney. Eftir afsögnina sagði Starmer það hafa verið heiður að starfa með McSweeney. Hann hafi tekið þátt í að byggja flokkinn upp á erfiðum tímum. Í breskum miðlum kemur fram að McSweeney hafi verið Starmer mjög náinn og hann hafi gríðarlega oft leitað til hans í erfiðum aðstæðum.
Mál Jeffrey Epstein Bretland Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Fleiri fréttir Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sjá meira