Grunnþjónusta fyrst og svo allt hitt……er flotgufa forgangsmál? Katrín Magnúsdóttir skrifar 9. febrúar 2026 12:16 Reykjavík er höfuðborgin okkar. Það er ágætt að rifja það upp öðru hverju, svona rétt áður en við ræðum um grunnatriði eins og að fólk komist óbrotið á milli staða, börn fái þjónustu, íbúar komist í og úr vinnu án tafa í umferð vegna þrengingar gatna. Grunnþjónusta fyrst og svo allt hitt. Þetta ætti ekki að vera róttæk hugmynd. Er þetta borg sem sér til þess að fólk detti ekki í hálku, skemmi ekki bílinn í holum og komist á réttum tíma í skóla eða vinnu? börn fái viðunandi þjónustu og að eldri borgarar fái þá umönnun og virðingu sem þeir eiga skilið? Eða erum við bara þátttakendur í endalausri tilraunastarfsemi þar sem hugmyndafræði, tilraunaverkefni og slagorð fá forgang, jafnvel þegar enginn hefur beðið um þau? Borgarbúar eru ekki að biðja um kraftaverk. Við erum ekki að kalla eftir framtíðarsýn sem krefst leiðbeiningabæklinga eða námskeiða í nýrri borgarmenningu. Við viljum bara að hlutirnir virki. Við borgum útsvar og gjöld í þeirri trú að borgin sinni grunnþjónustu sinni. Borgin á að vinna fyrir íbúana, ekki þjálfa þá í þolinmæði. Á hverju ári kemur snjór. Á hverju ári kemur hálka. Og á hverju ári virðist það koma jafn mikið á óvart. Gangstéttir breytast í skautasvell, götur verða ófærar og eldri borgarar halda sig inni – ekki af leti heldur af ótta við beinbrot. Þetta eru ekki náttúruhamfarir. Þetta er Ísland á veturna. Að halda götum, stígum og gönguleiðum færum er ekki lúxus heldur grunnþjónusta. Borgin virðist stöðugt vera „rétt að fara í þetta“, en sjaldan að klára. Gatnakerfi í stöðugri niðurníðslu hefur áhrif á öryggi, tíma fólks og kostnað heimilanna, en einhvern veginn virðist það alltaf lenda aftast í röðinni. Svo eru það leikskólamálin, sem brenna nú á vörum foreldra og hafa verið í umræðunni dag eftir dag. Foreldrar eru ekki að biðja um lúxus eða sérlausnir. Þeir eru að biðja um að geta farið í vinnu án þess að vera í stöðugri óvissu um hvort þjónustan standist næsta dag hvort starfsemi skerðist. Hvort enn ein „tímabundin lausn“ sé í pípunum. Daglegt líf fjölskyldna er nógu flókið án þess að leikskólakerfið sé breytileg stærð. Foreldrar eiga að geta treyst því að börnin fái þjónustu, að upplýsingar séu skýrar og ekki setji þau í stöðuga viðbragðsstöðu. Á sama tíma berast fréttir af nýju verkefni borgarinnar: flotgufum við bryggju þar sem hægt verður að svitna og stökkva svo í sjóinn. Hugmyndin er sögð efla útivist og mannlíf. Það er auðvitað fallegt – í borg sem ræður við grunnþjónustuna. Spurningin er bara hvernig er hægt að framkvæma slíkt verkefni þegar grunnþjónusta er illa skipulögð. Þegar borg getur ekki tryggt grunnþjónustu fyrir íbúana sína er erfitt að taka stór orð um framtíðarsýn mjög alvarlega. Sama á við um eldri borgara. Virðing mælist ekki í stefnumótunarskjölum eða fallegum heldur í raunverulegu aðgengi, þjónustu og umönnun. Þegar fólk sem hefur byggt þessa borg upplifir sig sem aukaatriði er vandinn ekki „flókinn veruleiki“ heldur einfaldlega röng forgangsröðun. Reykjavík á að forgangsraða verkefnum sínum. Grunnþjónusta er lögbundið hlutverk sveitarfélaga og forsenda þess að allt annað geti virkað. Borg sem nær ekki utan um snjómokstur, gatnaviðhald, leikskóla, skólaumhverfi og umönnun getur ekki leyft sér að tala stórt um framtíðina. Þá verða hugmyndir að skrauti en daglegt líf að baráttu. Höfuðborgin okkar, þarf ekki fleiri slagorð. Ekki fleiri tilraunir þar sem íbúar eru beðnir um að vera opnir fyrir breytingum. Íbúar hafa verið opnir nógu lengi. Nú er komin tími á breytingar forgangsraða verkefnum og sinna grunnþjónustu. Það skiptir máli að muna að borgarfulltrúar eru í þjónustustarfi fyrir borgarbúa ekki gæluverkefni fyrir þá sjálfa. Höfundur er í stjórn og framboði fyrir Miðflokkinn í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Sjá meira