Sveitarstjórnarkosningar 2026 – hvað gera Vinir Kópavogs? Ólafur Björnsson skrifar 10. febrúar 2026 13:31 Fáeinum vikum áður en framboðsfrestur til sveitastjórnakosninga 2022 rann út tók nýlega stofnað félag í Kópavogi djarfa ákvörðun. Félagið Vinir Kópavogs hafði verið stofnað til að veita Kópavogsbúum vettvang til að ræða málefni Kópavogsbæjar og veita bæjaryfirvöldum, sem farið höfðu offari í skipulagsmálum og stjórnsýslu, aðhald í stefnumarkandi málum fyrir Kópavogsbæ og til að styðja þróun mannvæns samfélags og umhverfis. Framboðið var borið uppi af hugsjónum, áhuga og eldmóði Kópavogsbúa sem töldu afgerandi breytingar á stjórnarfari í bæjarfélaginu nauðsynlegar. Skilaboðin voru skýr Skilaboðin frá Vinum Kópavogs til Kópavogsbúa á kjördegi 2022 voru skýr. Lýst var eftir bættum vinnubrögðum og heiðarlegri og vandaðri stjórnsýslu, öflugra íbúalýðræði og endurskoðun á aðalskipulag bæjarfélagsins með mannvænt umhverfi að leiðarljósi. Á kjördegi treystu fleiri en 2.500 Kópavogsbúar Vinum Kópavogs til að koma framangreindum sjónarmiðum á framfæri og framboðið fékk næst flest atkvæði og tvö sæti af ellefu í bæjarstjórn. Það tókst þó ekki að velta gömlu valdaflokkunum í bæjarstjórn. Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkur fengu innan við 50 % atkvæða, en héldu engu að síður naumum meirihluta, og fast um völdin í bæjarstjórn. Tveir fulltrúar VK hafa í bæjarstjórn undanfarin fjögur ár verið skýr rödd íbúalýðræðis, vandaðra vinnubragða við stjórn bæjarfélagsins og mannvæns skipulags og lagt sig fram um að eiga gott samstarf við aðra fulltrúa. Meirihlutinn ræður! Því miður hafa ýmis baráttumál því ekki náð fram að ganga. M.a. þess vegna eru öll skipulagsmál í gamla miðbænum í miklum ógögnum og meirihlutinn hefur margsinnis verið uppvís af óvönduðum, ófaglegum og ólýðræðislegum vinnubrögðum. Raddir almennra íbúa hafa haft lítið vægi í raun. Við í stjórn félagsins teljum þó að vinnubrögð bæjaryfirvalda hafi skánað frá því sem áður var og þökkum það öflugum málflutningi og aðhaldi. Sem dæmi þar um má nefna vinnu við rammaskipulag fyrir Kársnes og endurskoðun á bæjarmálasamþykkt. Öflugur, faglegur og málefnalegur minnihluti hefur mikilvægu hlutverki að gegna. Vinir Kópavogs áttu því erindi fyrir Kópavogsbúa í bæjarstjórn. Skoðanakannanir sem gerðar hafa verið meðal Kópavogsbúa benda til þess að góður hópur þeirra telji að sjónarmið Vina Kópavogs um íbúðalýðræði, áherslur í skipulagsmálum og stjórnsýslu eigi fullt erindi áfram í bæjarstjórn. Vinir Kópavogs eru félagasamtök en ekki stjórnmálaflokkur. Það er ekki sjálfgefið að félagið bjóði fram nú í vor. Á félagsfundi fimmtudaginn 12. febrúar nk. verður farið yfir stöðuna og vegið og metið hvort félagið bjóði fram í bæjarstjórnarkosningunum 16. maí nk. Við hvetjum félaga og áhugasama um velferð Kópavogs til að mæta á fundinn sem haldinn verður í húsnæði Siglingklúbbsins Ýmis við Naustavör kl. 17:00. Höfundur er formaður félagsins Vinir Kópavogs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar