Trump hafi vitað meira en hann viðurkenndi: „Allir vita hvað hann hefur verið að gera“ Agnar Már Másson skrifar 10. febrúar 2026 22:02 Trump, eiginkona hans Melania, Epstein og Maxwell í Mar-A-Lago árið 2000. Getty/Davidoff Studios Nýútgefin skjöl varpa ljósi á það að Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur vitað lengur af kynferðisbrotum Jeffrey Epsteins en hann hefur viðurkennt. Í raun virðist hann hafa vitað um brot Epsteins frá því áður en fyrsta rannsókn hófst árið 2006.
Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað neitað því að hann hafi vitað nokkuð um brot hins alræmda kynferðisafbrotamanns Jeffreys Epsteins. Í júní 2006, um það leyti sem brot Epsteins urðu fyrst opinber, sagði hann við lögregluna að „allir“ vissu hvað kynferðisafbrotamaðurinn væri að bauka, að sögn fyrrverandi yfirlögregluþjóns í Miami. Trump mun samkvæmt nýjum skjölum hafa hringt í lögreluna á Pálmaströnd í Miami að fyrra bragði og hvatt þá til dáða við rannsóknina. „Guði sé lof að þið séuð að stöðva hann, allir vita hvað hann hefur verið að gera,“ hefur yfirlögregluþjónninn Michael Reiter eftir Trump, samkvæmt viðtali sem FBI tók við Reiter 2019 í tengslum við rannsókn Reiters árið 2006. Trump hefur ekki tjáð sig um þessi skjöl en hann neitaði meðal annars í viðtali árið 2019 að hafa vitað nokkuð um athæfi Epsteins. Trump mun hafa sagt við Reiter að fólk í New York vissi að Epstein væri viðbjóðslegur og tók fram að Ghislaine Maxwell væri samverkamaður Epsteins. Maxwell væri „ill“ en hún var dæmd árið 2021 fyrir sinn þátt í málinu. Epstein lést í fangelsi 2019. Nafn Reiters er yfirstrikað í skjalinu en hann staðfestir við Miami Herald að um viðtal við sig sé að ræða enda var hann yfirlögregluþjónn á þessum tíma. Viðtalið við Reiter var framkvæmt árið 2019 en hefur ekki komist í kastljós fjölmiðla fyrr en nú. Varpar það ljósi á aðkomu Trumps að fyrstu rannsókn sem gerð var á kynferðisbrotum Epsteins árið 2006 á Pálmaströnd í Flórídaríki. Í skjalinu er enn fremur tekið fram að Trump hafi sagt við lögregluna að hann hefði eitt sinn verið ásamt Epstein í viðurvist unglinga. „[Ég] hypjaði mig út,“ er haft eftir Trump. Hann mun einnig hafa sagst hafa kastað Epstein út af klúbbnum sínum í Mar-a-lago. Forsetinn hefur ítrekað sagst ekkert hafa vitað um glæpi Epsteins en þessi skjöl munu líklegast vekja enn frekari spurningar um hvað Trump vissi og hversu lengi.
Mál Jeffrey Epstein Donald Trump Bandaríkin Kynferðisofbeldi Mest lesið Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Innlent Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Innlent Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Innlent Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Innlent Fleiri fréttir Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sjá meira