Mun bera vitni gegn gamla kærastanum sem keyrði hvað eftir annað á hana Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. febrúar 2026 14:03 Rickea Jackson sagði James Pearce upp eftir tæplega þriggja ára samband. Getty/Leonardo Fernandez Lögmenn körfuboltakonunnar Rickeu Jackson, leikmanns Los Angeles Sparks staðfestu að hún sé „fús til að bera vitni“ gegn James Pearce yngri, leikmanni NFL-liðsins Atlanta Falcons, ef heimilisofbeldismálið gegn honum fer fyrir dóm.
Í tilkynningu um málflutningsrétt og réttindi fórnarlamba fóru lögmenn Jackson fram á að dómstóllinn myndi verja „öllum mögulegum úrræðum og starfsfólki“ í málið til að „ljúka því eins fljótt og auðið er og tryggja réttlæti fyrir hana og íbúa Flórídaríkis.“ Elti hana á bílnum sínum Rickea Jackson sagði lögreglu að Pearce, fyrrverandi kærasti hennar til tæplega þriggja ára, hefði elt hana á bíl sínum á laugardagsmorgun, reynt að opna bílhurðina hennar á stöðvunarljósi og síðar ekið á bíl hennar mörgum sinnum þegar hún reyndi að komast inn á lóð lögreglustöðvarinnar í Doral, samkvæmt eiðsvörnum framburði. Lögreglan brást við eftir að Jackson hringdi. #Falcons DE James Pearce Jr. was arrested Saturday in Florida on charges including two counts of aggravated battery with a deadly weapon, aggravated stalking, and fleeing/eluding police.Pearce was taken into custody after crashing his vehicle following a police chase. pic.twitter.com/5A9eEsh4hR— Ari Meirov (@MySportsUpdate) February 8, 2026 Pearce var handtekinn á laugardag og á yfir höfði sér fimm ákærur fyrir alvarleg brot, þar á meðal fyrir líkamsárás með banvænu vopni og alvarlega ofsóknareftirför. Nálgunarbann gegn Pearce Dómstóllinn gaf út skilyrt nálgunarbann gegn Pearce gagnvart Jackson fyrir réttarhöld. Í tilkynningunni um réttindi fórnarlamba er bent á að Jackson hafi samkvæmt lögum í Flórída rétt á að fá tilkynningar um framvindu málsins og vera viðstödd öll opinber réttarhöld, auk „réttar til að tjá sig í öllum opinberum réttarhöldum.“ Þar að auki er tekið fram að Jackson hafi rétt til að ráðfæra sig við saksóknara um hvers kyns samkomulag um sakarjátningu og veita upplýsingar um þau áhrif sem sakborningurinn hefur haft á hana og fjölskyldu hennar. Jackson „er áfram samvinnuþýð og fús til að bera vitni við réttarhöld, ef til þeirra kemur. Fórnarlambið grátbiður dómstólinn og ríkið um að ljúka þessu máli tafarlaust án þess að það komi niður á skilvirkni máls sóknaraðila,“ skrifuðu lögmennirnir. View this post on Instagram A post shared by ESPN (@espn)
WNBA NFL Mest lesið Eiður flutti dapurleg tíðindi af Andra Lucasi Fótbolti Tottenham geti fallið: „Allt við hans líkamstjáningu sem var vonlaust“ Enski boltinn Kvaradona kom Chelsea í skelfileg mál Fótbolti Norska ævintýrið ætlar engan endi að taka Fótbolti Íran ætlar ekki á HM en hvaða þjóð fengi sætið? Fótbolti Erfið veikindi Kötlu og bikardraumurinn dofnar Fótbolti Magnaður Valverde kom Real í kjörstöðu Fótbolti Hjörvar ósammála goðsögn í hitamáli dagsins Fótbolti „Innra með mér líður mér eins og ég sé að deyja“ Golf Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Körfubolti Fleiri fréttir Tryggvi með hæstu einkunn í flottum sigri Ævintýri Stólanna lauk á spennuleik Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Nablinn vill ræða við mannauðsstjórann hjá Sýn um þessa vitleysu Bam skoraði 83 stig í NBA í nótt Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Kristrún Ríkey í óvænt flug til Serbíu NBA bannar Atlanta Hawks að kynna strippstað Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst „Bara besti leikurinn sem ég hef séð hjá Kristó í nokkur ár“ Tilþrif 19. umferðarinnar: Stjörnustrákar stukku hátt en Sigurður stal senunni „Þessi breyting hjá Keflavík var hálfgerð þvæla“ Langafi dæmdi hjá langafabarni sínu Jón Axel með lykilkörfu undir lokin í sigri á Tryggva Tindastóll - Grindavík 92-87 | Stólarnir lögðu topplið deildarinnar að velli í frábærum leik Uppgjörið: Valur - KR 92-90 | Valsmenn unnu eftir framlengingu Góður leikur Elvars dugði ekki til Handtekin fyrir að slá mann á kvöldi þegar hún fagnaði titlinum Taplausir yfir heilt tímabil og síðasti sigurinn var sá dramatískasti „Minnti á köflum á leik í minnibolta“ „Orkan og ástríðan var til fyrirmyndar“ „Stigin fyrir sigurinn það mikilvægasta“ „Hann er rosalegur“ ÍR - ÍA 86-83 | Falldraugurinn vofir yfir Skagamönnum Uppgjörið: Álftanes - Keflavík 96-106 | Keflvíkingar komnir aftur á sigurbraut Uppgjörið: Stjarnan - Þór Þ. 127-68 | Vel gíraðir Stjörnumenn völtuðu yfir vankaða Þórsara Uppgjör:Ármann - Njarðvík 87-104 | Sýning hr. Lautier-Ogunleye Þjálfari Almars lofar að mæta á sundskýlu ef þeir vinna Dómari sleginn niður í kvennaleik Elvar en ekki Friðriksson Sjá meira