Dulbúinn geðþótti umhverfisráðherra Pétur Halldórsson skrifar 13. febrúar 2026 10:17 Þegar Jóhann Páll Jóhannsson, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, kynnti með pompi og prakt að hann ætlaði að leggja niður heilbrigðiseftirlit á Íslandi var gefið í skyn að áformin byggðu á faglegum forsendum. Þetta er ekki rétt heldur byggja áformin á rangfærslum sem starfsmenn umhverfisráðuneytisins hafa haldið á lofti til að ýmist gera lítið úr umfangi áformanna eða fegra afleiðingarnar sem þau myndu hafa. Úlfur í sauðargæru Starfsmenn umhverfisráðuneytisins hafa t.a.m. ekki bara afneitað því að heilbrigðiseftirlit tengist lýðheilsu, heldur hafa þau líka sleppt því að segja með skýrum hætti að þau vilja afmá stofnun og hugtak sem hefur fylgt þjóðinni í rúma öld: heilbrigðiseftirlit. Fólk gæti þá ekki lengur leitað til heilbrigðiseftirlitsins, heldur þyrfti það að velta vöngum sínum yfir síbreytilegum nöfnum ríkisstofnanna á borð við Umhverfis- og orkustofnun og tilvonandi arftaka Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs. Er þetta upphafið á einhverskonar kafkaískri martröð? Flækjustig í veldisvexti Hér er þó flækjustigið bara rétt að byrja, því starfsmenn umhverfisráðuneytisins hafa líka haldið því fram að það sé ekkert tiltökumál að tvístra verkefnum heilbrigðiseftirlitsins til 64 mismunandi stofnana, þ.e. Umhverfis- og orkustofnunar, Matvælastofnunar og hvers og eins sveitarfélags á landinu. Þetta á víst að vera einfaldara en níu landshlutaskipt heilbrigðiseftirlitssvæði sem starfa undir yfirstjórn ofangreindra stofnana en mig grunar reyndar að þau hafi hreinlega bara gleymt sveitarfélögunum þegar þau bjuggu til slagorðið sitt um „ellefu eftirlitsaðila í stað tveggja“. Á svona talnaspeki virkilega að stjórna landinu? Eftirlit klofið í herðar niður Einn helsti styrkleiki heilbrigðiseftirlits á Íslandi felst í þverfaglegri þjálfun heilbrigðisfulltrúa, sem tryggir að fjölþætt starfsemi fái árangursríkt en jafnframt hagkvæmt eftirlit. Góð dæmi um þetta eru leikskólar, mathallir, sundlaugar og spítalar en þessu eftirliti geta heilbrigðisfulltrúar sinnt án þess að þurfa að kalla til aðrar stofnanir í hvert sinn sem farið er í eftirlit á vettvangi. Frumvarp ráðherra gerir hins vegar ráð fyrir því að 2-3 stofnanir þurfi að skipta þessu eftirliti sín á milli og ráðuneytisstarfsmennirnir virðast hafa gróflega vanmetið flækjustigið sem þetta veldur. Er virkilega betra að haltur leiði blindan? Hagræðing gagna og fyrirframákveðin niðurstaða Helsti málflutningur starfsmanna ráðuneytisins hefur þó að sjálfsögðu byggt á því sem þau kunna best: skýrslugerð. Þannig hefur ráðuneytið látið gera fjölmargar skýrslur með tugmilljóna tilkostnaði en það sem þær eiga því miður sameiginlegt er að engin þeirra inniheldur rök sem mæla fyrir núverandi áformum ráðherra. Þvert á móti þá var nýjasti starfshópurinn farinn að hallast að því að best væri að betrumbæta núverandi kerfi heilbrigðiseftirlits. Starfsmenn ráðuneytisins létu það samt ekki stoppa sig, heldur hagræddu þau einfaldlega niðurstöðum skýrslunnar svo mikið að Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi (SHÍ) fundu sig knúin til að leggja fram sérstaka bókun um að framsetning skýrslunnar væri ekki í samræmi við vinnu starfshópsins. Sjákafla 2.7.2 á bls. 22-23. Er ekki bara best að bæta heilbrigðiseftirlitið? Kæri Jóhann Páll. Þú ert vissulega ekki fyrsti ráðherrann til að fá þessa misvísandi kynningu frá umræddum ráðuneytisstarfsmönnum og þú myndir heldur ekki vera sá fyrsti til að leggja þau til hliðar vegna augljósra vankanta. Þar að auki eru blikur á lofti í heimsmálunum og stjórnvöld heimsins hafa áttað sig á því að sérstaklega þarf að huga að öryggi og stöðugleika lykilinnviða á borð við heilbrigðiseftirlit. Ég vil því biðla til þín að staldra við og fara betur yfir málið, t.d. með samtali við landlækni, almannavarnir, sýslumann, lögreglu og aðrar stofnanir sem tengjast heilbrigðiseftirliti, því ekki hafa starfsmenn þínir sýnt viðleitni í þeim efnum. Þannig getum við vonandi snúið baki við þessum leiðinlega kafla í sögu heilbrigðiseftirlits og haldið áfram uppbyggingarstarfinu sem hefur í megindráttum einkennt heilbrigðiseftirlit síðan það var fyrst sett í lög árið 1901. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Halldórsson Heilbrigðiseftirlit Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar