Körfuboltastjarna íhugar framboð í Garðabæ Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 17. febrúar 2026 11:11 Hlynur Bæringsson hefur verið orðaður fyrir lista Framsóknar í Garðabæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar en hann ætlar að leyfa sér að hugsa málið. Vísir/Arnar Hlynur Bæringsson, sem setti körfuboltaskóna á hilluna eftir að hafa orðið Íslandsmeistari með Stjörnunni síðasta vor, segist ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann gefi kost á sér fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar.
Fréttastofa fékk ábendingu um að á Hlyn hefði verið skorað að gefa kost á sér á lista Framsóknar í Garðabæ fyrir næstu sveitarstjórnarkosningar. Aðspurður sagði hann að ýmsir hefðu komið að máli við hann um að gefa kost á sér, ekki síst á nýafstöðnum flokksfundi Framsóknar sem fór fram um helgina. Hann sé að hugsa málið en hafi ekki enn tekið ákvörðun um hvort hann láti slag standa. Hlynur skipaði annað sæti á lista flokksins fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar en Brynja Dan Gunnarsdóttir borgarfulltrúi það fyrsta. Brynja vill áfram leiða Framsókn Í gær greindi Brynja frá því í tilkynningu að hún hefði áhuga á að leiða Framsóknarflokkinn í Garðabæ áfram. Uppstillingarnefnd leggur þessa dagana mat á óskir um framboð á lista flokksins. Uppstillingarnefnd skipa Sigurjón Jónsson, Hjördís Guðný Guðmundsdóttir og Urður Björg Gísladóttir. Hlynur hefur unnið alls konar afrek á löngum körfuboltaferli. Hann var fastamaður í landsliðinu um langt árabil og hluti af íslenska liðinu sem náði þeim áfanga að taka í fyrsta sinn þátt á EM í körfubolta árið 2015. Hann hefur orðið Íslandsmeistari í körfubolta með Snæfell árið 2010, unnið bikarmeistaratitil með Stjörnunni 2019, 2020 og 2022.
Garðabær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sveitarstjórnarmál Framsóknarflokkurinn Flokksþing Framsóknar 2026 Tengdar fréttir Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og eigandi Extraloppunnar, vill áfram leiða lista Framsóknar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún var oddviti flokksins í kosningunum 2022 og tók í kjölfarið sæti í bæjarstjórn. 16. febrúar 2026 15:59 Stillir sér upp á miðjunni Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri líkt og hann telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Hann segist ætla að efla flokkinn á miðjunni þar sem hann hafi sögulega verið. 16. febrúar 2026 09:22 Mest lesið Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Fleiri fréttir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Sjá meira
Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Brynja Dan Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi og eigandi Extraloppunnar, vill áfram leiða lista Framsóknar í Garðabæ í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún var oddviti flokksins í kosningunum 2022 og tók í kjölfarið sæti í bæjarstjórn. 16. febrúar 2026 15:59
Stillir sér upp á miðjunni Nýkjörinn formaður Framsóknarflokksins segist ekki hafa áhuga á að færa flokkinn til hægri líkt og hann telur klofningsflokkinn Miðflokkinn hafa gert. Hann segist ætla að efla flokkinn á miðjunni þar sem hann hafi sögulega verið. 16. febrúar 2026 09:22