Er verið að bregðast brotaþolum kynferðisofbeldis? Brynhildur Yrsa Valkyrja Guðmundsdóttir skrifar 18. febrúar 2026 10:31 Ég nánast valhoppaði inn í Stígamót á gráu janúarsíðdegi, alsæl með að hafa loks fengið tíma þar eftir töluverða bið. Ég hef notað mér þjónustu Stígamóta með reglulegu millibili síðan vorið 2005 og hef alltaf getað treyst því að fá mikla og faglega þjónustu hjá þeim. Eftir að hafa lesið fjölda frétta um grafaralvera stöðu þegar kemur að kynferðisofbeldi á Íslandi í dag var farið að hrikta í stoðunum sem Stígamót höfðu hjálpað mér að byggja upp. Bæði með tímum hjá ráðgjöfum og eins í hópastarfi sem brotaþolum kynferðisofbeldis gefst kostur á að taka þátt í hjá þessum mætu samtökum. Ég var þakklát fyrir þetta úrræði sem fólki á Íslandi stendur til boða, okkur að kostnaðarlausu. En svo kom ég út í bíl og opnaði fréttamiðlana áður en ég lagði af stað heim. Ég rak augun í frétt um að Stígamót sæju fram á hallarekstur og tóma varasjóði á árinu - og að öllu óbreyttu þyrfti að fara í uppsagnir starfsfólks. Hvernig má það vera að staðan sé þannig hjá landi sem skoraði hæst hvað jafnrétti í heiminum varðar 15 ár í röð? Og skorar hátt hvað gæði fagfólks varðar? Margir fussa eflaust og sveia yfir því að jafnrétti hafi ekkert að gera með aðgengi að þjónustu til að vinna úr áföllum kynferðisofbeldis. En jú, jafnrétti hefur svo sannarlega margt með það að gera. Jafnrétti er ekki bara tölur og markmiðasetningar á blaði, heldur snýr það líka að raunverulegu aðgengi að úrræðum sem hjálpa fólki að standa ekki höllum fæti gagnvart öðrum. Þegar jafnrétti ríkir hefur fólk jafna möguleika á að nýta rétt sinn og ýmsum hindrunum hefur verið rutt úr veginum. Hindrunum á borð við fordóma, þunglamalegt kerfi, fátækt og ofbeldi. Ísland hefur fjölda góðra fagaðila til að sinna meðferðum sem miða að því að vinna úr kynferðisofbeldi, og eins öllu öðru ofbeldi. Það vantar ekki. En aðgengi að þeim úrræðum er ábótavant, biðlistar óásættanlegir og kerfisálag mikið. Heilbrigðiskerfið tekur ekki nægilega vel utan um brotaþola kynferðisofbeldis, erfitt er að fá geðheilbrigðisþjónustu og tíma hjá sérfræðilæknum ásamt áfalla- og sálfræðiúrræðum, því biðlistar eru einfaldlega of langir. Í mörgum tilfellum er slík þjónusta það dýr að hver sem er getur ekki nýtt sér hana. Það vegur klárlega að jöfnum möguleikum til að bæta heilsu sína. Víðsvegar á landsbyggðinni skortir hreinlega úrræði fyrir fólkið sem þarf á þeim að halda. Fólk lætur gamminn geysa um þá stöðu að alltof margir séu í veikindaleyfum, fólk sem er jafnvel ekkert að. Það er efni í aðra umræðu, en það gleymist að horfa á ástæður þess að slíkur fjöldi Íslendinga dettur út af vinnumarkaðnum af góðum og gildum ástæðum. Það er brotabrot af þeim sem eru í veikindaleyfum sem nýta sér veikindaréttinn án þess að hafa ástæðu til. Það gleymist nefnilega líka aðmargir sjúkdómar sjást ekki utan á fólki og ekki í verkahring almennings að vega og meta hvers vegna fólk þarf að vera í veikindaleyfi. Við skulum leyfa læknum að halda utan um þau mál. Rannsóknir byggðar á stórum gagnasöfnum benda til þess að endurtekið kynferðis- og líkamlegt ofbeldi sé tengt auknum líkum á fjölda alvarlegra sjúkdóma og innlagna á sjúkrahús. Kynferðisofbeldi hefur ekki bara áhrif á andlega heilsu, heldur leggjast afleiðingar þess einnig á líkamann og veikja hann. Kvíði, þunglyndi, sjálfsvígshugsanir og -tilraunir, áfallastreita (sem getur varað áratugum saman ef því er að skipta) og vímuefnanotkun eru algengar afleiðingar kynferðisofbeldis. En það eru líka líkamleg veikindi á borð við astma, sykursýki, háan blóðþrýsting, vefjagigt, kransaæðasjúkdóma, hjartaáföll, heilablóðföll, ýmsa sjálfsofnæmis- og bólgusjúkdóma, langvinna bak- og hálsáverka, höfuðverki og mígreni, og einnig langvarandi verki án skýrra líkamlegra orsaka. Ég get haldið áfram að nefna sjúkdóma eins og IBS, magabólgur, langvinna kviðverki, meltingaróþægindi án líffræðilegra skýringa, ME, svima og jafnvægistruflanir, skyntruflanir, svefnraskanir, offitu, hormónaójafnvægi, truflanir á kynhormónum, langvinna berkjubólgu, auknar öndunarfærasýkingar og margar gerðir krabbameins. Sérstaklega brjósta-, legháls- og ristilkrabbamein. American College of Obstetricians and Gynecologists (ACOG) hafa talað um að allir læknar eigi að spyrja konur út í það hvort þær hafi sögu af kynferðisofbeldi því það getur haft gríðarleg áhrif á framvindu ýmissa veikinda, ekki síst þegar kemur að meðgöngu og fæðingu. Með því að skima fyrir kynferðisofbeldi er betur hægt að sinna heilsu kvenna. Það er því gríðarlegamikilvægt fyrir brotaþola kynferðisofbeldis að vinna úr þeim afleiðingum sem ofbeldið hefur í för með sér. Það hefur jákvæð áhrif á heilsu fólks að fara í gegnum slíka vinnu. En erum við á Íslandi að fá þau úrræði sem eru í boði? Ekki er heilbrigðiskerfið í stakk búið að takast á við þessa vinnu meðan biðlistar eru langir og jafnvel ekki nægur skilningur hjá öllum innan heilbrigðisstéttarinnar að það sé mikill ávinningur fyrir líkamlega heilsu að kafa ofan í áföll fortíðarinnar. Við þurfum á samtökum eins og Stígamótum að halda til koma til móts við þolendur ofbeldis, efla lífsgæði þeirra og virkni innan sem utan vinnumarkaðar. Ísland undirritaði Istanbúlsamninginn vorið 2011 og tók hann gildi í ágúst 2018 hér á landi. Með því skuldbatt ríkið sig til að skipuleggja og tryggja úrræði fyrir brotaþola ofbeldis. Íslenska ríkið er því búið að skuldbinda sig til að tryggja þjónustu og úrræði fyrir brotaþola ofbeldis, þar með talið kynferðisofbeldi. Einnig hefur það skuldbundið sig til að vinna að fræðslu og forvörnum þegar kemur að ofbeldi og tryggja að brotaþolar njóti verndar gegn áframhaldandi ofbeldi. En er íslenska ríkið að standa við þessar skuldbindingar? Við höfum vissulega mörg úrræði hér á landi þegar kemur að úrvinnslu áfalla eftir ofbeldi sem ríkið er að styðja við að einhverju leyti eins og Stígamót, Bjarkarhlíð og Kvennaathvarfið ásamt fleiri samtökum. Ríkið fjármagnar hins vegar einungis þriðjung af því sem kostar að reka Stígamót og Kvennaathvarfið. Biðlistar hjá þessum félagasamtökum geta verið afar langir eins og raunin er hjá Stígamótum og gengur það gegn ákvæðum Istanbúlsamningsins því hann kveður á um að brotaþolar skuli fá tíma eftir þörfum til að vinna úr afleiðingum, en ekki bíða í langan tíma. Í stuttu máli er Ísland framarlega hvað stefnu og orðræðu varðar en eftirbátur í framkvæmd og umfangi. Við eigum ekki að sætta okkur við að staðan sé svona í velferðarríkinu Íslandi. Það gengur ekki upp að félagasamtök taki þungan og hitann af ábyrgðinni sem íslenska ríkið hefur skuldbundið sig til að bera. Það er hreinlega óásættanlegt að of mikið af þessari ábyrgð hvíli á góðum vilja og baráttu frjálsra félagasamtaka. Þessu þarf að breyta. Höfundur er baráttukona gegn ofbeldi í allri mynd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynferðisofbeldi Mest lesið Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir Skoðun Viltu borga meira fyrir að leggja bílnum þínum í bílastæðahúsi? Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Valdhroki bæjarstjórans í Kópavogi Helga Jónsdóttir Skoðun Til fréttastofu RÚV Þórður Magnússon Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson Skoðun Þið eruð kosin til að vinna saman, ekki forðast hvort annað Frosti Heimisson Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sóknin í efri byggðum Kópavogs Leifur Andri Leifsson skrifar Skoðun Taka þarf á gjörbreyttum aðstæðum í leikskólum Inga Þóra Þóroddssdóttir skrifar Skoðun Skiptir máli hvað við kjósum í sveitarstjórnakosningunum? Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Saman í félagi, Samfélagi Guðrún Elísa Sævarsdóttir skrifar Skoðun Borgin er ekki að drukkna í einkabílum Þórir Garðarson skrifar Skoðun Börnin, kennararnir og ábyrgðin Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Þegar endurtekning verður að „sannleika“ Anna Sigrún Jóhönnudóttir skrifar Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar Skoðun Gerum betur í Mosfellsbæ Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Af hverju Viðreisn? Berglind Robertson Grétarsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér hærri álögur í Reykjavík? Eva Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Húsnæði á ekki að vera happdrætti fyrir ungt fólk Lilja D. Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Þegar framtíðin er seld á útsölu Anna Kristín Jensdóttir skrifar Skoðun Þið eruð kosin til að vinna saman, ekki forðast hvort annað Frosti Heimisson skrifar Skoðun Að fljóta sofandi að feigðarósi? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Þegar velferð aldraðra verður fasteignaverkefni Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar Skoðun Banvænt ósamræmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Er Vestfjarðavegur (60) í gegnum Dalina afgangsstærð? skrifar Skoðun Hvítt fyrir börn sem biðja um frið Birna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Farið á bak við þing og þjóð? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Mannréttindaiðnaðurinn Hlédís Maren Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Nei takk, alls ekki kennari! Simon Cramer Larsen skrifar Skoðun Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar Skoðun Landeyjahöfn - Ný leið Bernharð Stefán Bernharðsson skrifar Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hafnarfjörður er heimili okkar allra Jóhanna Erla Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar Sjá meira
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun
Skoðun 100% endurgreiðsla virðisaukaskatts til almannaheillafélaga í Noregi Tómas Torfason skrifar
Skoðun Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir skrifar
Skoðun Þegar hagnaður einstaklinga vegur þyngra en heilsa þjóðar Dóra Guðrún Guðmundsdóttir,Ösp Árnadóttir,Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Skoðun Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir skrifar
Skoðun Setjum aukinn kraft í óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Gæði kennslu: Endurgjöf, vitsmunaleg áskorun og samræður í skólastofunni Anna Kristín Sigurðardóttir,Berglind Gísladóttir,Birna María B. Svanbjörnsdóttir,Guðmundur Engilbertsson,Hermína Gunnþórsdóttir,Jóhann Örn Sigurjónsson,Rúnar Sigþórsson,Sólveig Zophoníasdóttir skrifar
Vindorka á Melrakkasléttu – prófsteinn á forgangsröðun okkar til framtíðar Árdís H. Jónsdóttir Skoðun
Að eldast utan kerfisins: Þegar búseta ræður þjónustu Rakel Eir Ingimarsdóttir,Marta Karen Vilbergsdóttir,Særún Birta Valsdóttir,Lilja Margrét Óskarsdóttir Skoðun