Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ Kjartan Kjartansson skrifar 19. febrúar 2026 09:25 Emmanuel Macron Frakklandsforsseti er einn þeirra þjóðarleitðoga sem vill setja takmarkanir á aðgang barna og ungmenna að samfélagsmiðlum. Vísir/EPA Emmanuel Macron, forseti Frakklands, gefur lítið fyrir fullyrðingar forsvarsmanna samfélagsmiðla og tæknifyrirtækja um þeir berjist fyrir tjáningarfrelsi. Hann varar við áhrifum ógagnsæs algríms samfélagsmiðla á lýðræðið.
Stjórnvöld í fjölda vestrænna ríkja reynir nú að draga úr neikvæðum áhrifum samfélagsmiðla á ýmsan hátt. Ástralir settu aldurstakmarkanir á miðlana og fjölmargar þjóðir íhuga að feta í fótspor þeirra. Þá rannsaka nú yfirvöld víða um heim kynferðislegar myndir af börnum og konum sem gervigreindarspjallmenni samfélagsmiðils X dreifði í vetur. Forsvarsmenn margra samfélagsmiðlafyrirtækja hafa barist gegn þessari viðleitni ríkisstjórnar til þess að koma böndum á þá. Hafa þeir meðal annars sakað yfirvöld um ritskoðunartilburði og lýst sjálfum sér sem málsvörum tjáningarfrelsisins. Þetta segir Macron „hreinan þvætting“, að því er dagblaðið Politico hefur eftir honum. „Sumir þeirra halda því fram að þeir styðji tjáningarfrelsi. Við styðjum frjálst algrím, algerlega gagnsætt. Tjáningarfrelsi er hreinn þvættingur ef enginn veit hvernig þér er stýrt í gegnum þetta,“ sagði Macron á viðburði á Indlandi í gær. Franski forsetinn er einn þeirra sem kallað hefur eftir því að aðgangur barna og ungmennna að samfélagsmiðlum verði takmarkaður. Hann varaði við því að slagsíða væri á algrími allra samfélagsmiðla. Algrím stýra því hvaða efni er haldið að notendum. „Og það hefur svo mikil áhrif, þegar rætt er um samfélagsmiðla, að það að hafa enga hugmynd um hvernig algrímið er gert, hvernig það er prófað og hvert það beinir þér, lýðræðislega slagsíðan af þessu gæti verið gríðarleg,“ sagði Macron.
Frakkland Samfélagsmiðlar Gervigreind Tækni Tjáningarfrelsi Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira