Kvenréttindafélag Íslands viðhefur ósmekklegt persónuníð Huginn Þór Grétarsson skrifar 19. febrúar 2026 13:01 17. febrúar 2026 birtist rætinn pistill ritaður af Auði Önnu Magnúsdóttur fyrir Kvenréttindafélag Íslands á Visir.is. Í þessum pistli Auðar er lagst svo lágt að smyrja Epstein-málið, og allan þann óhugnað sem þar birtist, við nafngreinda íslenska karlmenn og verðuga réttindabaráttu þeirra. Þarna er um alvarlega veruleikafirringu að ræða og illan ásetning, enda felur þetta í sér stórfellt opinbert níð af hálfu Auðar og Kvenréttindafélags Íslands. Opinbert níð er ofbeldi. Ranghugmyndir pistlahöfundar mátti líka sjá nokkrum dögum áður í viðtali á Samstöðinni. Þar var til umræðu Epstein-málið og hélt Auður því fram að heiminum væri stýrt af barnaníðingum. Þessi rökleysa og alhæfing án tilvísana í nein gögn sem styðja við slíkar fullyrðingar sýnir hversu óábyrg orðræða hennar er. Sagði hún að þeir sem væru ekki hluti af barnaníðingshringjum hefðu hið minnsta vitað af tilvist þeirra. Þetta ber þess vitni hversu veruleikafirrt Auður er enda ekkert sem bendir til þess að meginþorri fólks í valdastöðum í heiminum hafi tekið þátt eða hafi vitað af þeim óþverra sem birtist í Epstein-skjölunum eða sambærilegu barnaníði. En Auður virðist þjökuð af samsæriskenningum án þess að hafa neitt fyrir sér og það sést svo aftur á pistli hennar sem birtist núna 17. febrúar. Að smyrja saman ógeðfelldu máli Epsteins og réttindabaráttu karlmanna Það þarf verulega hugsýki til að fá af sér að nota hræðilegt mál þolenda Jeffrey Epstein og setja það í samhengi við meint kvenhatur íslenskra karlmanna sem vinna verðugt sjálfboðastarf hjá Samtökum um Karlaathvarf. Manneskja sem fær af sér að tengja svona óþverra við réttindabaráttu karlmanna, er vafalítið ekki í sambandi við veruleikann. En líklega gengur henni það til, líkt og Kvenréttindafélag Íslands hefur áður barist fyrir, að stöðva réttindabaráttu karla. Að dylgja um þá karlmenn sem fara fyrir umbótum og sverta mannorð þeirra. Auður er verulega ósátt við að Samtökin hafa vakið á því athygli að karlmenn séu álíka oft þolendur heimilisofbeldis og konur, og líklega er það undirliggjandi ástæða fyrir þessum óverðskulduðu árásum sem fylgdu. Hroki og niðrandi tal Hrokinn og vandlætið skín í gegn í textanum, sem og rasismi. Talar Auður um „hvíta karla“ á niðrandi hátt í textanum sbr.: „Tveir hvítir, ekki ríkir og illa tengdir karlar…“ eru þau orð sem hún beinir að mér og öðrum manni, sem höfum ekki unnið okkur annað til saka en að berjast gegn ranglæti. Báðir sættum við því að dómstólar dæmdu ekki eftir lögum, studdu við kvenkyns brotamanneskjur, og við reyndum að vekja athygli á því. En þetta gerir okkur að skotmörkum fyrir níð Auðar. Svona niðrandi tal um hvíta karlmenn, eru einkennismerki karlahaturs. Á sama tíma reynir Auður að bera ranglega upp á „hvítu karlana“ (hennar orðalag) kvenfyrirlitningu og nafngreinir einstaklinga sem hafa aldrei viðhaft fyrirlitningu gagnvart konum. Mögulega er pistillinn líka af pólitískum toga því marga miðflokksmenn bendlar hún jafnframt við Epstein-skjölin með hugrenningartengslum. Og ef við skoðum þá orðræðu sem berst jafnan frá Auði og Kvenréttindafélagi Íslands skín í gegn niðrandi tal og karlfyrirlitning frá henni sjálfri. Þetta niðrandi tal hefur viðgengist í samfélaginu allt of lengi. Dæmi um svona niðurrifstal frá Auði og Kvenréttindafélagi Íslands: „Ofbeldi karla gegn konum er afsprengi feðraveldisins“, „nauðganamenning“, „karlaveldi Íslands“ o.s.frv. Ekki falleg orðræða viðhöfð gagnvart karlmönnum. Það virðist liggja fyrir hvaðan hatrið kemur … Rangfærslur og vanþekking Auðar – ofbeldi er ekki bundið við annað kynið Vanþekking pistlahöfundar skín í gegn í skrifum hennar. Bæði hvað varðar persónudylgjur, staðreyndir mála en líka varðandi rangfærslur hennar um ofbeldi. Hún hneykslast á því að Samtök um Karlaathvarf vogi sér að benda á að ofbeldi er álíka mikið gegn karlmönnum og konum, en það hentar ekki rangri mynd sem hún vill draga upp af málaflokknum. Staðreyndin er þó sú að hundruð alþjóðlegra rannsókna staðfesta að ofbeldi er ekki kynbundið. Ofbeldi er álíka mikið á milli kynja innan heimila. Karlmenn leita sér þó síður aðstoðar. Undirritaður mun birta sérstakan pistil um þetta mál. En urmull kvennahreyfinga heldur uppi falsáróðri um kynbundið ofbeldi og dómsmálaráðherra og fleiri ráðamenn taka þátt. Þetta er óboðlegt, enda eru rangar staðalímyndir um kynin mjög skaðlegar. Lokaorð til gerenda í stafrænu ofbeldi – Auðar Önnu Magnúsdóttur Auður og Kvenréttindafélag Íslands hafa sýnt af sér durgslega hegðun með skrifum sínum. Að smyrja saman Samtök um Karlaathvarf og Epstein-skjölin er lágkúrulegt, svo ekki sé fastar að orði kveðið. Að veitast að karlmönnum út frá kynþætti þeirra, sbr. „hvítir karlar“, er ekki bara siðlaust, það varðar líklega við lög. Að bera upp á menn kvenfyrirlitningu er ekki lítil ásökun og jafnframt alröng. Svona háttalag er Auði og félagsskap hennar til smættunar. Auður vanvirðir þjáningar þeirra sem tengjast Epstein skjölunum með því að nota það mál sér til framdráttar í árásum á íslenska karlmenn sem henni er í nöp við. Þetta er vanvirðing gagnvart þolendum, enda algjörlega ótengt og hún gerir lítið úr alvarlegum glæpum með því að tengja við einhvern hugarburð hennar sjálfrar. Kvenréttindafélag Íslands er orðinn þátttakandi í opinberu níði með þessum skrifum framkvæmdastjóra félagsins, Auðar Önnu Magnúsdóttur. Opinbert níð er form af ofbeldi og samtökin því réttilega skilgreind sem ofbeldissamtök héðan í frá, þar til þau biðjast afsökunar og leiðrétta þessar netárásir. Það er töluverð kaldhæðni að Kvenréttindafélag Íslands sem berst gegn stafrænu ofbeldi, beitir því nú sjálft á svæsinn hátt. En það er kannski í lagi að beita ofbeldi gegn karlmönnum, í hugum þessara kvenna? Höfundur er baráttumaður fyrir jafnrétti kynjanna, og elskar bæði konur og karla (og kann því illa að logið sé upp á hann kvenfyrirlitningu), Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar á gervigreind að vinna fyrir hið opinbera? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Ferðaþjónustunni hent fyrir rútu hallalausra fjárlaga Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Virðismiðuð velferðarþjónusta Finnur Pálmi Magnússon skrifar Skoðun Skuldadagar í Reykjavík Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Að þora að spyrja og þola svarið Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Stokkið á (barna)vagninn Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Skoðun Opnum Skálafell Valdimar Breiðfjörð Birgisson skrifar Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Sjá meira
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Skoðun Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Um fitulag og burðarvirki – atlaga að velferð barna og unglinga í Reykjavík Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Ábyrgðin eftir 29. ágúst: Sölumenn efans, fargan ósanninda og ógegnsæir sjóðir Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun