Dæmd fyrir að slasa farþega þegar hún sofnaði undir stýri rútu Kjartan Kjartansson skrifar 20. febrúar 2026 14:53 Frá vettvangi slyssins á þjóðvegi eitt sunnan Blönduóss í september árið 2023. Vísir Kona sem sofnaði undir stýri hópferðabifreiðar sem lenti utan vegar sunnan við Blönduós árið 2023 var dæmd í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi. Hún var sakfelld fyrir líkamsmeiðingar af gáleysi vegna áverka sem þrír farþegar hlutu í slysinu.
Á þriðja tug starfsmanna Akureyrabæjar á leið úr skemmtiferð erlendis var um borð í rútunni þegar hún valt á Norðurlandsvegi við Brekku í Húnabyggð snemma morguns 8. september árið 2023. Rútan var á vegum SBA-Norðurleiðar. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti nokkra sem slösuðust á sjúkrahús í Reykjavík. Í dómi yfir konunni sem ók rútunni kemur fram að hún hafi keyrt frá Hafnarfirði og sótt farþegana á Keflavíkurflugvöll kvöldið áður. Hún hafi sofnað við aksturinn og misst stjórn á rútunni þannig að hún lenti á hliðinni. Konan var ákærð fyrir umferðarlagabrot og líkamsmeiðingar af gáleysi en fallið var frá því að ákæra hana fyrir brot á reglum um aksturs- og hvíldartíma ökumanna. Í ákærunni er sérstaklega visað til áverka þriggja farþega. Einn þeirra hlaut opið sér á höfði og staðbundinn áverka á heila en hinir tveir beinbrot og sár. Aðrir farþegar sluppu með mar og skrámur. Konan játaði sök og tók dómurinn tillit til þess þegar refsing hennar var ákveðin. Ekki yrði þó litið fram hjá því að hún hefði brugðist ríkri aðgæsluskyldu sinni. Taldi dómurinn þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi hæfilega refsingu. Hún var einnig svipt ökuréttindum í þrjá mánuði. Þá þarf hún að greiða hátt í 1,4 milljónir króna í sakarkostnað.
Dómsmál Ferðaþjónusta Samgönguslys Húnabyggð Bílar Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Innlent Kynntu þingmálaskrá vetrarins Innlent Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Erlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Erlent Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Niðurstöður PISA-könnunar kynntar „Við erum að búa til samfélag hálfvita“ Grænlensk skipsflauta vakti borgarbúa af værum blundi Kynntu þingmálaskrá vetrarins Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Sjá meira