Ráðast Bandaríkin á Íran? Segja Trump munu reiða sig á ráðgjöf Witkoff og Kushner Hólmfríður Gísladóttir skrifar 24. febrúar 2026 08:28 Trump virðist treysta fáum jafnvel og Witkoff og Kusnher, sem eru fulltrúar Bandaríkjanna við að því er virðist öll samningaborð. Gildir þá einu hvort um er að ræða Íran, Gasa eða Úkraínu. Getty/Tom Nicholson Ákvörðun Donald Trump Bandaríkjaforseta um að ráðast eða ráðast ekki á Íran mun meðal annars velta á mati Steve Witkoff og Jared Kushner á því hvort Íranir séu viljandi að tefja fyrir samningi um kjarnorkuáætlun landsins.
Þetta hefur Guardian eftir heimildarmönnum. Forsetinn hefur ekki tekið neina ákvörðun um framhaldið enn sem komið er en beðið er eftir tillögum Írana, sem eiga að berast fyrir samningafund sem mun fara fram í Genf á fimmtudaginn. Witkoff, sérlegur sendifulltrúi Trump, og Kushner, tengdasonur forsetans, munu fara fyrir viðræðunum fyrir hönd Bandaríkjanna og leggja mat á það hvort frekari viðræður séu líklegar til að skila árangri. Samkvæmt Guardian hefur forsetinn sagt að ef samkomulag sé ekki í kortunum sé hann að íhuga takmarkaðar árásir á Íran til að setja þrýsting á þarlend stjórnvöld. Dugi það ekki til, komi til greina að ráðast í umfangsmeiri árásir til að koma klerkastjórninni frá. Heimildarmenn Guardian segja Trump hafa sótt fjölda funda um mögulega hernaðaríhlutun og þá hafi hann sótt ráðgjöf frá varaforsetanum JD Vance, utanríkisráðherranum Marco Rubio, varnarmálaráðherranum Pete Hegseth og yfirmönnum hernaðaryfirvalda og CIA. Vance er sagður hafa mun minni trú á aðgerðum gegn Íran en hann hafði á aðgerðum Bandaríkjanna í Venesúela og þá er Dan Caine, formaður herforingjaráðsins, sagður uggandi vegna lágrar birgðastöðu á eldflaugum í Patriot eldflaugavarnakerfi Bandaríkjanna. Stjórnvöld í Íran hafa sagst munu hefna grimmilega fyrir árásir á landið og þá sagði leiðtoginn Ayatollah Ali Khamenei í síðustu viku að Íranir byggju yfir getunni til að sökkva herskipum Bandaríkjanna. Hér má finna ítarlega frétt Guardian um málið.
Íran Bandaríkin Donald Trump Hernaður Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Lækkar eigin laun Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Fleiri fréttir Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Sjá meira