Þarf ég að bíða eftir að álagið hætti eða get ég haft áhrif? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 11:46 Hefurðu hugsað: ,,Hvenær hættir þetta álag eiginlega? Hvenær hætti ég að upplifa stanslausa pressu og áreiti?” Það er mjög algengt að fólk upplifi streitu og álag í lífi sínu og því getur verið auðvelt að finna fyrir bugun eða jafnvel hjálparleysi. Lífinu fylgja ýmis hlutverk og skyldur sem við sinnum daglega og geta tekið á. Hvort sem það tengist fjárhag, vinnu, uppeldi eða heilsu þá krefst þetta orku, athygli og ábyrgðar. Að sama skapi geta þessi hlutverk og ábyrgð verið íþyngjandi, sérstaklega þar sem við höfum ekki fulla stjórn á öllum aðstæðum. Samt er nauðsynlegt að sinna þeim til að lifa heilbrigðu og góðu lífi. En góðu fréttirnar eru þær að við getum þjálfað okkur og byggt upp færni til að takast á við álagið og streituna sem getur fylgt þessum hlutverkum. Við getum styrkt aðlögunarfærni okkar, lífeðlislega getu taugakerfisins til að taka á móti streitu og álagi og jafna sig aftur á skilvirkan hátt. Þessa færni, lífeðlislegu aðlögunarfærni okkar, má þjálfa með ýmsum hætti en ein af árangursríkustu leiðum til þess er markviss öndunarþjálfun. Með því að stunda hæga magaöndun, um það bil sex andardrætti á mínútu, má hafa mælanleg áhrif á samspil hjarta og taugakerfis. Þessi öndunaraðferð eykur virkni sefkerfisins (parasympatíska hluta taugakerfisins) og styður þannig við jafnvægi og endurheimt. Það er gott að byrja á fimm mínútum tvisvar á dag og færa sig síðan upp í tíu mínútur tvisvar á dag. Fyrir þá sem vilja dýpka iðkunina má jafnvel stefna á að gera hana í tuttugu mínútum tvisvar á dag. Mikilvægt er að anda styttra inn og lengra út og meðal öndunartíðni sem passar flestum vel eru fjórar sekúndur inn og sex sekúndur út. En hvernig metum við þessa færni? Hvernig getum við séð hvort við séum raunverulega að bæta aðlögunarfærni taugakerfisins á áþreifanlegan hátt? Ein leið er að fylgjast með mælingu sem hefur notið sívaxandi vinsælda á undanförnum árum, sem kallast hjartsláttarbreytileiki eða HRV (e. Heart rate variability). Það er lífmerki sem endurspeglar breytileika í tímanum milli hjartslátta og gefur vísbendingu um sveigjanleika og aðlögunarfærni ósjálfráða taugakerfisins til að aðlagast innri og ytri breytingum. Ein helsta ástæða fyrir auknum vinsældum HRV er sú að rannsóknir hafa sýnt að það tengist líkamlegri og andlegri heilsu og bæði líkamlegri og hugrænni frammistöðu. Önnur ástæðan er sú að tækniframfarir hafa gert fólki kleift að fylgjast með þessari mælingu á einfaldari hátt, t.d. með snjallúrum, þótt nákvæmni þeirra geti verið mismikil. Það getur verið valdeflandi og gaman að fylgjast með breytingum á HRV og jafnvel bætingu á þessari mælingu á meðan maður gerir jákvæðar breytingar á lífinu, m.a. með því að iðka hæga öndun, bæta svefn eða stunda meiri hreyfingu. Hins vegar er mikilvægt að skoða þessa mælingu í samhengi við aðstæður þínar í lífinu, aldur og mæliaðferð. HRV lækkar eðlilega með aldrinum og það er hluti af eðlilegri lífeðlislegri þróun. Það skiptir einnig máli hvernig þessi mæling er mæld. Til að mynda er best að mæla hana í kyrrð og í að minnsta kosti 3 -5 mínútur, eða að mæla HRV yfir nótt. Mikilvægast er þó að fylgjast með þróun yfir tíma hjá sjálfum sér, í stað þess að festast í einni stakri tölu. Og ekki síst að hlusta á eigin skynsemi og líðan. Þótt lífið hafi oft í för með sér álag, streitu og ábyrgð sem getur vakið upp tilfinningu um hjálpar- eða stjórnleysi, þá er ýmislegt sem við höfum stjórn á. Þar á meðal aðlögunarhæfni okkar, getu taugakerfisins til að taka á móti álagi og jafna sig eftir það. Við getum þjálfað þessa færni, t.d. með hægari magaöndun, fjórar sekúndur inn og sex sekúndur út og fylgst með framvindu og árangri okkar í að efla lífeðlislega aðlögunarhæfni með því að mæla hjartsláttarbreytileika. Höfundur er doktor í lífeðlislegri sálfræði og sérhæfð í HRV biofeedback þjálfun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Þóra Sveinsdóttir Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar