Þetta er ekki ástand – þetta er þjóðarglæpur Vilhelm Jónsson skrifar 26. febrúar 2026 16:02 Krafa um rannsókn og ábyrgð vegna Hringbrautar. Fársjúkir einstaklingar liggja við aðstæður sem engin siðmenntuð þjóð ætti að sætta sig við. Gangar verða að legudeildum, baðherbergi að biðrýmum og sjúkrabílar að bráðamóttöku. Fólk bíður klukkustundum og dögum saman eftir rúmi sem er ekki til. Þetta er ekki „ástand“.Þetta er kerfisbilun sem hefur verið þekkt í mörg ár. Helsta skýringin sem almenningur fær aftur og aftur er svokallaður fráflæðisvandi. En hvernig getur vandamál sem hefur verið til staðar í áratug verið notað sem afsökun enn í dag? Þegar vandamál er varanlegt en lausnir tímabundnar er það ekki lengur vandamál — heldur stjórnunarbrestrur. Fráflæði er ekki náttúruhamfarir. Það er skipulagsverkefni sem hefði átt að leysa fyrir löngu með markvissri uppbyggingu hjúkrunarrýma, endurhæfingarúrræða og samþættingu þjónustu. Í staðinn hefur kerfið verið látið reka á bráðabirgðalausnum og skeytingarleysi. Það er orðið langt gengið að hjartaþræðing fari fram í sjúkrabílakjallara Bráðamóttökunnar í Fossvogi. Að sjúklingar þurfi að gangast undir lífsnauðsynlega sérhæfða aðgerð í slíkum aðstæðum — og liggja síðan á gangi eftir aðgerð niður á Hringbraut — ætti að vera óhugsandi í nútíma heilbrigðiskerfi. Samt virðist kerfið hafa þróað með sér hættulega hæfni til að venjast hinu óviðunandi. Það er löngu tímabært að heilbrigðisfólk rísi upp og stöðvi þennan þjóðarglæp og stjórnleysi. Áhyggjurnar snúast ekki aðeins um þrengsli heldur einnig öryggi. Bent hefur verið á eldhættu vegna súrefniskúta og annarra efna í umhverfi þar sem bráðabirgðalausnir og yfirálag hafa safnast upp. Þegar aðstæður á Bráðamóttöku vekja slíkar áhyggjur er ljóst að vandinn er orðinn kerfislægur — ekki tímabundinn. Smitvarnir – viðvörun sem þegar hefur raungerst Ástand húsnæðis og þrengsli hafa einnig bein áhrif á smitvarnir. Á bráðamóttöku hefur skapast verulegt uppnám vegna berklasmitáhættu, þar sem aðstæður til einangrunar og aðgreiningar sjúklinga eru takmarkaðar. Þegar smitsjúkdómar geta ekki verið meðhöndlaðir í fullnægjandi einangrunarrýmum skapast hætta bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk. Þetta er ekki fræðileg áhætta — heldur raunveruleg staða sem heilbrigðisstarfsfólk þarf að takast á við. Við höfum þegar séð hvað gerist þegar smitvarnir eru ófullnægjandi. Þegar COVID-19 barst til landsins fyrir sex árum þurfti að rýma og færa fárveikt fólk úr spítalanum með hraði vegna þess að aðstaða til smitvarna og aðgreiningar var ekki nægileg. Sjúklingar voru sendir út eða fluttir á milli úrræða til að skapa rými fyrir faraldurinn. Það eitt ætti að hafa verið nægileg áminning um að húsnæðisvandi Landspítala væri ekki aðeins rekstrarvandamál — heldur öryggisvandamál. Samt virðist lærdómurinn ekki hafa skilað sér í hraðari uppbyggingu. Neyðarköll sem ekki var brugðist við Heilbrigðisstarfsfólk hefur árum saman bent á að ástandið væri komið yfir þolmörk. Árið 2018 lýsti þáverandi landlæknir stöðu bráðamóttöku sem óviðunandi og kallaði eftir tafarlausum úrbótum, væntanlega ekki að ástæðulausu með fullar skúffur af rykföllnum ábendingum um óviðeigandi læknamistök. Á árunum eftir það hafa bæði fagfélög og stjórnendur spítalans ítrekað varað við manneklu, plássleysi og öryggisáhættu. Þrátt fyrir þessar viðvaranir hafa viðbrögðin að mestu falist í tímabundnum skyndilausnum eða verið hunsuð. Stærsta spurningin stendur því enn:Af hverju var ekki gripið til neyðaraðgerða til að hraða byggingu nýs sjúkrahúss þegar ljóst var að kerfið réði ekki við álagið? Kostnaður og tafir – staðreyndirnar Samkvæmt opinberum gögnum hefur kostnaður við uppbyggingu nýs Landspítala hækkað verulega frá fyrstu áætlunum.• Upphaflegar heildaráætlanir voru á bilinu 50–60 milljarðar króna (á verðlagi þess tíma).• Nýrri áætlanir gera ráð fyrir að heildarkostnaður fari yfir 200 milljarða króna þegar allt er talið með — framkvæmdir, búnaður, tækni, hönnun og tengdir innviðir. Ef að líkum lætur mun uppbygging á eldra húsnæði einnig verða mjög kostnaðarsöm samhliða því að ljúka verkefninu. Á sama tíma hafa áætluð verklok færst ítrekað og nú hefur verið látið liggja að árið 2030 gæti verið mögulegur endapunktur. Sé horft til fyrri framvindu er lítil sem engin trygging fyrir að sú tímasetning standist. Það sem grefur mest undan trausti almennings eru hins vegar óljós og loðin svör:• Hver er raunverulegur heildarkostnaður verkefnisins í dag, með öllum liðum?• Hversu mikið hefur farið í hönnun og ráðgjöf hingað til?• Hvað mun það kosta áður en yfir lýkur?• Hver er raunhæf dagsetning verkloka — ekki áætluð heldur líkleg? Þegar stærsta opinbera framkvæmd þjóðarinnar hefur ekki skýran endapunkt í augum almennings er það stjórnsýslulegt vandamál — ekki samskiptavandi. Afsakanir sem standast illa Í umræðunni hefur verið vísað til þess að framkvæmdir hafi tafist vegna þess að byggingarefni, svo sem járn, hafi ekki borist vegna stríðsins í Úkraínu. Alþjóðlegar aðfangakeðjur raskast vissulega stundum. En samanburðurinn blasir við: á sama tíma rísa í einkaframkvæmdum fjölbýlishús, atvinnuhúsnæði og stór mannvirki á höfuðborgarsvæðinu á methraða. Ef byggingarefni stöðvuðu ekki aðra uppbyggingu er erfitt að halda því fram að það útskýri áratuga töf á þessu eina verkefni. Munurinn liggur því líklega ekki í heimsmarkaði heldur í stjórnun, skipulagi, ábyrgð og framkvæmdagetu. Opinber framkvæmd sem virðist missa stjórn Þegar opinber verkefni verða mjög stór og flókin virðist of oft myndast sama mynstrið: margir aðilar, dreifð ábyrgð, sífelldar breytingar og endurhönnun sem lengir tímann og hækkar kostnað. Hönnunarvinna verður að botnlausu ferli þegar forsendur breytast aftur og aftur. Kostnaður við ráðgjöf getur þá orðið gríðarlegur án þess að almenningur fái skýra mynd af heildinni. Eðlilegar spurningar vakna um hvort stjórnun verkefnisins hafi verið nægilega skýr, hvort ábyrgðarkeðjan sé raunveruleg og hvort hvatar til skilvirkni hafi verið til staðar. Kerfi þar sem ábyrgðin gufar upp Í opinberri umræðu virðist ábyrgðin alltaf liggja einhvers staðar annars staðar. Stjórnmálamenn benda á embættismenn. Embættismenn á kerfið. Kerfið á aðstæður. Á endanum stendur almenningur eftir með reikninginn — og enginn ber raunverulega ábyrgð. Þetta er kjarni vandans. Þetta er orðið öryggismál þjóðar Þegar hjartaþræðing fer fram í sjúkrabílakjallara.Þegar sjúklingar liggja á göngum eftir alvarlegar aðgerðir.Þegar bent er á eldhættu vegna súrefniskúta og annarra efna.Þegar smitvarnir eru ekki tryggðar og berklaáhætta veldur uppnámi.Þegar sjúklingar fá ekki einu sinni þjónustu og gjalda með lífi sínu.Þegar neyðarköll fagfólks fá ekki raunveruleg viðbrögð.Þegar framkvæmdir dragast áratugum saman og kostnaður hækkar. Þá er þetta ekki lengur einfaldlega byggingarverkefni sem tefst.Þetta er próf á getu ríkisins til að tryggja grunnöryggi borgaranna. Krafa um óháða rannsókn og skýra ábyrgð Við þessar aðstæður er orðið eðlilegt — og nauðsynlegt — að krefjast óháðrar heildarrannsóknar á verkefninu við Hringbraut, til dæmis undir stjórn Ríkisendurskoðunar eða Alþingis. Slík rannsókn þarf að svara:• Hvað fór úrskeiðis í framkvæmdastjórnun verkefnisins?• Hvernig þróaðist kostnaður og hvers vegna?• Hversu miklu hefur verið varið í hönnun og breytingar?• Hvers vegna var ekki gripið til neyðaraðgerða til að hraða uppbyggingu þegar viðvaranir lágu fyrir?• Hver ber ábyrgð á töfum og ákvarðanatöku?• Hver er raunhæf leið til að ljúka verkefninu án frekari áratuga tafar? Ekki til að finna blóraböggla — heldur til að endurheimta stjórn, traust og öryggi. Ef við getum byggt heilu hverfin á nokkrum árum —af hverju getum við ekki byggt sjúkrahús skammarlaust? Og ef neyðarköllin voru þekkt:hvers vegna var ekki brugðist við — og hver ber ábyrgð á því? Höfundur er athafnamaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhelm Jónsson Mest lesið Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason Skoðun Þarf Icelandair að skipta um nafn? Jón Þór Þorvaldsson Skoðun Útborgun í íbúð eða leikskólapláss í Kópavogi? Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska Skoðun Hver ber ábyrgð á stöðu Hafnarfjarðar? Karólína Helga Símonardóttir Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir Skoðun Bílar eru frábærir, nema ef við þurfum öll að nota þá Birkir Ingibjartsson Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Afþökkum barnaskatt Samfylkingarinnar í Kópavogi Andri Steinn Hilmarsson skrifar Skoðun Leikskóladvöl í Fjarðabyggð er lúxus Ásdís Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Týndi hópurinn á húsnæðismarkaði – gullnu árin Ragnar Þór Reynisson skrifar Skoðun Fólkið fyrst í Hafnarfirði Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar Skoðun Til fréttastofu RÚV um kynferðisofbeldi og pyntingar Ísraels Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Þessi fortíð lofar ekki góðu Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Menning er undirstaða öflugs samfélags á Seltjarnarnesi Karen María Jónsdóttir skrifar Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Atkvæði er rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Sterkt samfélag byggir á fjölbreyttu atvinnulífi Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Breytir tæknin tilveru lesblindra? Samúel Karl Ólason skrifar Skoðun Af hverju ég býð mig fram fyrir Kópavog Svava Halldóra Friðgeirsdóttir skrifar Skoðun Græni tefillinn Sigrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern er byggt? Trausti Örn Þórðarson skrifar Skoðun Ýtum undir sterkari tengsl í Hafnarfirði Svenný Kristins skrifar Skoðun Gott að eldast á Akureyri Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Biðlisti eftir lífinu Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Hleypum þeim værukæru í kærkomið frí Bjarni Thor Kristinsson skrifar Skoðun Deilur magnast í Borgarbyggð um vindorkuver Júlíus Valsson skrifar Skoðun Börn úr símum – inn í samfélagið Tamar Klara Lipka Þormarsdóttir skrifar Skoðun Menning er skattstofn, ekki skraut Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun Framsókn vill meiri virkni og vellíðan - Leikum okkur alla ævi Halldór Bachmann skrifar Skoðun Hundalífið í Kópavogi Sólveig Skaftadóttir skrifar Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Everything you need to know before Saturday Charlotte Ólöf Jónsdóttir Biering skrifar Skoðun Styrkjum íslenskukennslu fyrir börn og ungmenni Eva Rún Helgadóttir skrifar Skoðun Hestar í höfuðborginni Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Okkar sameiginlegu verk Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hvernig er að eldast í Reykjavík? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Ríða, drepa, giftast Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Skoðun Viljum við tryggja sjálfstæði fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir,Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar
Skoðun Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Töframáttur skapandi reikningsskila hjá meirihluta Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks í Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun