Kveikt í trúverðugleika Samfylkingarinnar – slökkviliðið er sem betur fer á leiðinni Andri Steinn Hilmarsson skrifar 28. febrúar 2026 14:15 Kjósendur eiga betra skilið en upphrópanir og rangfærslur. Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi hljóp aðeins á sig þegar hann hélt því fram í grein hér á Vísi sl. mánudag að uppbygging slökkvistöðvari í efri byggðum væri föst „í gíslingu“ Kópavogsbæjar en lét hjá líðast að nefna að stöðin er fjármögnuð og á áætlun og verður tilbúin 2030. Hvers konar gíslataka er það eiginlega – lélegasta gíslataka sögunnar? Slökkvistöð í efri byggðum hefur verið mikið baráttumál Kópavogs og bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til margra ára og það er frábært að sjá hana loksins vera að raungerast. Þar er Arnarnesvegurinn og lokaáfangi hans algjör lykilforsenda og hafa meirihlutaflokkarnir hér í Kópavogi lagt gríðarlega áherslu á þá vegtengingu við mismikla hrifningu Samfylkingarinnar og samstarfsflokka í borginni. Lokaáfangi Arnarnesvegar og tengingin inn á Breiðholtsbraut verður klár síðar á árinu, loksins, loksins. Lélegasta gíslataka sögunnar? Í morgun birtist framhaldsgrein oddvitans þar sem hann reynir að tortryggja hluti sem eru ekki tortryggilegir. Það er ekkert sjálfsagðara en að bæjarstjóri Kópavogs taki til umræðu og skoðunar hvað er eðlilegt framlag sveitarfélaga til samrekstrarins. Eiga lóðir alls ekki að teljast þar til? Eða er stóra niðurstaða oddvitans að alls ekki megi ræða þessa hluti. Það er einfaldlega svo að það er hægt að skoða ákveðna hluti sem snúa að framlögum eða rekstri á meðan unnið er áfram að greiningu á þörfum og aðbúnaði stöðvarinnar, hönnun og slíkum þáttum. Það á ekki að vera viðkvæmt að rýna stöðugt rekstur sveitarfélaganna og þetta samtal er klárlega liður í slíkri rýni. Eitt útilokar ekki annað og slökkviliðsstjórinn sjálfur hefur hafnað þeim máflutningi Samfylkingarinnar, að Kópavogur standi í vegi fyrir uppbyggingu stöðvarinnar með því að ljá máls á þessum þáttum. Annað væri enda skrýtið. Íbúar Kópavogs og sérstaklega efri byggða geta treyst því að meirihlutinn tekur öryggismál þeirra alvarlega. Slökkvistöð í efri byggðir er á leiðinni og verkefnið er í góðum farvegi – sennilega einhver lélegasta gíslataka sögunnar. Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Andri Steinn Hilmarsson Kópavogur Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Áhugaverðar ákvarðanir Sigurður Ingi Friðleifsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Sjá meira
Kjósendur eiga betra skilið en upphrópanir og rangfærslur. Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi hljóp aðeins á sig þegar hann hélt því fram í grein hér á Vísi sl. mánudag að uppbygging slökkvistöðvari í efri byggðum væri föst „í gíslingu“ Kópavogsbæjar en lét hjá líðast að nefna að stöðin er fjármögnuð og á áætlun og verður tilbúin 2030. Hvers konar gíslataka er það eiginlega – lélegasta gíslataka sögunnar? Slökkvistöð í efri byggðum hefur verið mikið baráttumál Kópavogs og bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til margra ára og það er frábært að sjá hana loksins vera að raungerast. Þar er Arnarnesvegurinn og lokaáfangi hans algjör lykilforsenda og hafa meirihlutaflokkarnir hér í Kópavogi lagt gríðarlega áherslu á þá vegtengingu við mismikla hrifningu Samfylkingarinnar og samstarfsflokka í borginni. Lokaáfangi Arnarnesvegar og tengingin inn á Breiðholtsbraut verður klár síðar á árinu, loksins, loksins. Lélegasta gíslataka sögunnar? Í morgun birtist framhaldsgrein oddvitans þar sem hann reynir að tortryggja hluti sem eru ekki tortryggilegir. Það er ekkert sjálfsagðara en að bæjarstjóri Kópavogs taki til umræðu og skoðunar hvað er eðlilegt framlag sveitarfélaga til samrekstrarins. Eiga lóðir alls ekki að teljast þar til? Eða er stóra niðurstaða oddvitans að alls ekki megi ræða þessa hluti. Það er einfaldlega svo að það er hægt að skoða ákveðna hluti sem snúa að framlögum eða rekstri á meðan unnið er áfram að greiningu á þörfum og aðbúnaði stöðvarinnar, hönnun og slíkum þáttum. Það á ekki að vera viðkvæmt að rýna stöðugt rekstur sveitarfélaganna og þetta samtal er klárlega liður í slíkri rýni. Eitt útilokar ekki annað og slökkviliðsstjórinn sjálfur hefur hafnað þeim máflutningi Samfylkingarinnar, að Kópavogur standi í vegi fyrir uppbyggingu stöðvarinnar með því að ljá máls á þessum þáttum. Annað væri enda skrýtið. Íbúar Kópavogs og sérstaklega efri byggða geta treyst því að meirihlutinn tekur öryggismál þeirra alvarlega. Slökkvistöð í efri byggðir er á leiðinni og verkefnið er í góðum farvegi – sennilega einhver lélegasta gíslataka sögunnar. Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.