Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Kjartan Kjartansson skrifar 3. mars 2026 14:41 Rasmus Paludan, stofnandi Harðrar stefnu, á þingpöllum í danska þinginu. Vísir/EPA Stofnandi dansks öfgahægriflokks og málgagns hefur verið ákærður fyrir að birta nákvæmra lýsingar á því hvernig þrettán ára gamalli stúlku var nauðgað. Hann er ákærður fyrir velsæmisbrot gegn stúlkunni.
Lýsingarnar á því hvernig karlmaður í svonefndu Kirkurup-máli, sem skók Danmörku, nauðgaði þrettán ára gamalli stúlku birtust á vefsíðunni Rödd frelsisins sem Rasmus Paludan, stofnandi öfgahægrisamtakanna Harðrar stefnu (d. Stram kurs) ritstýrir. Nauðgarinn hlaut lífstíðardóm fyrir að ræna stúlkunni, nauðga henni og reyna að drepa, myrða aðra sautján ára gamla stúlku árið 2016 og ráðast á þriðju stúlkuna, fimmtán ára gamla, árið 2022. Þrettán ára gamla stúlkan náði að komast undan manninum. Paludan er ákærður fyrir að dreifa viðkvæmum persónuupplýsingum um stúlkuna og velsæmisbrot. Í ákærunni sem Paludan skrifaði upp úr voru nákvæmar lýsingar á brotunum sem stúlkan mátti þola, að því er kemur fram í frétt danska ríkisútvarpsins. Rödd frelsisins var lokað í nokkrar klukkustundir daginn eftir að greinin birtist eftir að dómstóll lagði lögbann á blaðið í janúar árið 2024. Paludan neitaði allri sök og sagði það svívirðu að hann væri ákærður fyrir að birta upplýsingar upp úr ákæru á hendur þekktum einstaklingi. Dönsk lög veita blaðamönnum aðgang að ákærum en kveða á um að aðeins megi nota þær í „ritstjórnarlegum tilgangi“. Paludan er helst þekktur fyrir að valda uppþotum með því að brenna Kóranin á torgum Svíþjóðar. Hann hefur ítrekað verið dæmdur fyrir hatursorðræðu. Bresk stjórnvöld meinuðu honum um inngöngu í landið þegar hann hugðist standa fyrir bókabrennu þar árið 2023.
Danmörk Kynferðisofbeldi Erlend sakamál Fjölmiðlar Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira