Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Kjartan Kjartansson skrifar 5. mars 2026 15:43 Maður horfir á hafið í rústum húss fjölskyldunnar á Sri Lanka. Staða heimshafanna hækkar nú vegna hlýnunar og bráðnunar landíss sem henni fylgir. Það eykur hættuna á sjávarflóðum og strandeyðingu. AP/Eranga Jayawardena Hópur vísindamanna í Hollandi segir að fjöldi jarðarbúa sem er talinn í hættu vegna vaxandi ágangs sjávar sé mun meiri en áætlað hefur verið hingað til vegna þess að sjávarhæð hafi verið verulega vanmetin.
Vísindamennirnir gaumgæfðu hundruð vísindarannsókna og áhættumatsskýrslur og komust að þeirri niðurstöðu að í um níutíu prósentum þeirra hefði sjávarstaða verið vanmetin um þrjátíu sentímetra. Þetta eigi sérstaklega við í suðrænum ríkjum en síður í Evrópu og við strendur Atlantshafsins. Ástæðuna fyrir þessu vanmati segja vísindamennirnir misræmi á milli mælingaraðferða á láði annars vegar og legi hins vegar. Mælingarnar séu réttar hvor í sínu lagi en misræmið komi fram við strendur þar sem ekki hafi verið tekið tillit til áhrifa sjávarfalla, hafstrauma, vinda og fleira, að því er kemur fram í frétt AP-fréttastofunnar. Philip Minderhoud, prófessor í vatnafræði við Wageningen-háskóla í Hollandi, líkir þessu við „aðferðafræðilegan blindblett“. Þegar vísindamennirnir leiðréttu fyrir þessu misræmi á milli mæliaðferða komust þeir að því að hækki sjávarstaða um metra eða svo fyrir lok aldarinnar gæti sjór gengið á land á meira en þrefalt stærra svæði en reiknað hefur verið með til þessa. Sú viðbót geti sett 77 til 132 milljónir manna aukalega í hættu. Aðrir fræðimenn sem tóku ekki þátt í rannsókninni telja vandamálið orðum aukið. Það sé vel þekkt hjá skipulags- og verkfræðingum og á flestum stöðum séu yfirvöld meðvituð um hættuna sem steðjar að standbyggðum.
Vísindi Loftslagsmál Hafið Náttúruhamfarir Mest lesið Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Sjá meira