Dómur barnaníðingsins Brynjars staðfestur Árni Sæberg skrifar 5. mars 2026 16:25 Landsréttur kvað upp dóm í málinu í dag. Vísir Brynjar Joensen Creed hefur verið dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar í Landsrétti fyrir kynferðisbrot gegn fimmtán stúlkum. Dómurinn er til viðbótar við sjö ára dóm sem hann hlaut í Hæstarétti í fyrra fyrir fjölmörg kynferðisbrot gegn ungum stúlkum.
Flestir ákæruliðirnir á hendur Brynjari vörðuðu kynferðislegt tal og sendingar á kynferðislegum myndum til stúlkna í gegnum samfélagsmiðilinn Snapchat. Myndefni þetta sýndi, samkvæmt ákæru, ber kynfæri karlmanns og karlmann fróa sér og annað af kynferðislegum toga. Jafnframt bað hann stúlkurnar oft um að senda sér kynferðislegar myndir á móti. Í einum ákæruliðnum var honum gefið að sök að hitta stúlku tvívegis og afhenda henni rafrettu og kynlífshjálpartæki sem hann mun hafa hvatt hana til að nota og senda sér myndefni af því. Jafnframt var hann ákærður fyrir að hafa í vörslum sínum, í síma sínum, samtals 24 ljósmyndir sem sýndu stúlku á kynferðislegan hátt. Sagðist ekki hafa vitað að stúlkurnar væru ungar Í dómi Landsréttar segir að Brynjar hafi borið fyrir sig að hann hefði ekki vitað að stúlkurnar væru svo ungar sem þær reyndust og hann hefði ekki haft ásetning til að eiga í kynferðislegum samskiptum við börn. Í dómi Landsréttar kom fram að í tilviki margra brotaþola fullyrtu þær að þær hefðu gert Brynjari grein fyrir aldri sínum í upphafi samskipta við hann og þær borið með svipuðum hætti um hvernig það bar á góma í samskiptum við Brynjar, sem auki á trúverðugleika framburðar þeirra hvað það atriði varði. Þá beri gögn málsins með sér að í mörgum tilvikum hafi í notendanafni brotaþolanna á Snapchat verið tilvísun í fæðingarár þeirra. Hluti brotaþola hafi greint frá því að Brynjar hafi í sumum tilvikum boðið þeim gjafir, svo sem sælgæti, og boðist til að útvega þeim rafrettur og kynlífshjálpartæki en út frá því mætti álykta að um ungmenni væri að ræða. Vel á annan tug í bætur Var því slegið föstu að Brynjar hefði látið sér í léttu rúmi liggja aldur brotaþolanna allra og hann hafi ekki látið aldur þeirra hindra sig í kynferðislegum samskiptum við þær, í trausti þess að þau færu leynt. Þá hefði Brynjar jafnframt látið sér í léttu rúmi liggja afleiðingar verknaðar síns. Dómur héraðsdóms um þriggja ára fangelsi var því látinn standa og Brynjar dæmdur til að greiða stúlkunum alls 17,3 milljónir króna í miskabætur.
Dómsmál Mál Brynjars Joensen Creed Kynferðisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira