Einn drengur í meðferð á nýju meðferðarheimili Lovísa Arnardóttir skrifar 7. mars 2026 09:45 „Börnin fyrst, svo allt hitt,“ segir Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Vísir/Vilhelm og aðsend Meðferðarheimilið Lækjarbakki hóf störf í nýju húsnæði í Gunnarsholti og tók á móti sínu fyrsta barni í gær. Í tilkynningu frá mennta- og barnamálaráðuneytinu segir að opnunin marki mikilvægan áfanga í framhaldsmeðferð fyrir drengi sem glíma við vímuefnavanda. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu.
Meðferðarheimilið var áður rekið að Geldingarvöllum í Rangárþingi en var lokað síðla árs 2024 vegna myglu. Við tók leit að nýju húsnæði og var tilkynnt í nóvember árið 2024 að búið væri að finna nýtt húsnæði. Fram kom í svörum ráðuneytisins í lok janúar til fréttastofu um framkvæmdir í húsnæðinu að þær hefðu verið umfangsmeiri en áætlað hefði verið. Þar kom einnig fram að búið væri að ráða allt starfsfólk, samtals í sautján stöðugildi, og allir starfsmenn komnir til starfa. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að nýtt meðferðarheimili auki getu samfélagsins til að bregðast við erfiðum og flóknum málum barna og ungmenna á Íslandi. „Löng bið er á enda og mikið fagnaðarefni að Lækjarbakki sé tekinn til starfa í nýju og endurbættu húsnæði” segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, í tilkynningunni. Fengu þjálfun í aðferðarfræði BOFS Þar kemur einnig fram að starfsmenn hafi fengið yfirgripsmikla þjálfun í þeirri aðferðafræði sem beitt er á meðferðarheimilum Barna- og fjölskyldustofu. Meðferðin sé sérhæfð fyrir ungmenni og byggi á samþættingu gagnreyndra aðferða og einstaklingsmiðaðrar nálgunar. Fram kemur að formleg opnun fari fram síðar í mánuðinum en að vegna þess hve brýnt sé að hefja þjónustuna, til að mæta þörfum barna sem beðið hafa eftir langtímameðferð, hafi verið tekið á móti fyrsta skjólstæðingnum um leið og tilskilin leyfi lágu fyrir. „En betur má ef duga skal og eru fleiri járn í eldinum,“ segir Inga. „Nú er tími til að börnin okkar fái þá þjónustu sem þurfa. Börnin fyrst, svo allt hitt.“
Börn og uppeldi Meðferðarheimili Fíkn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir Stefna á að opna Gunnarsholt um áramót og styttist í svör um Garðabæ Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, segir stefnt að því að opna meðferðarheimilið Lækjarbakka í Gunnarsholti um áramótin og að ráðuneytið muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að það opni á réttum tíma. 4. desember 2025 06:33 „Þessi mál hafa verið ólestri í alltof, alltof langan tíma“ Mennta- og barnamálaráðherra segir meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni hafa verið í ólestri alltof lengi. Hann leggur áherslu á að klára endurskoðun á slíkri starfsemi sem allra fyrst og hefur heimsótt nokkur meðferðarheimili nú þegar. Heilbrigðisráðuneytið er haft með í ráðum. 11. nóvember 2025 20:00 Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Erlent Fleiri fréttir Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Sjá meira
Stefna á að opna Gunnarsholt um áramót og styttist í svör um Garðabæ Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, segir stefnt að því að opna meðferðarheimilið Lækjarbakka í Gunnarsholti um áramótin og að ráðuneytið muni gera allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að það opni á réttum tíma. 4. desember 2025 06:33
„Þessi mál hafa verið ólestri í alltof, alltof langan tíma“ Mennta- og barnamálaráðherra segir meðferðarúrræði fyrir börn og ungmenni hafa verið í ólestri alltof lengi. Hann leggur áherslu á að klára endurskoðun á slíkri starfsemi sem allra fyrst og hefur heimsótt nokkur meðferðarheimili nú þegar. Heilbrigðisráðuneytið er haft með í ráðum. 11. nóvember 2025 20:00