Bíða enn bóta eftir ofbeldið á Hjalteyri: „Við erum týnd og gleymd“ Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 10. mars 2026 20:50 Anna Sigrún Rafnsdóttir kennsluráðgjafi við Miðstöð skólaþróunar HA. Hún var vistuð sem barn á Hjalteyri ásamt systur sinni og átti skelfilega vist. Hún gagnrýnir áhugaleysi núverandi stjórnvalda á málinu.Búið sé að rannsaka það og dæma bætur en ekkert sé gert fyrir þau sem dvöldu á heimilinu á sínum tíma. Vísir/Bjarni Ein þeirra mörgu sem varð fyrir hræðilegu ofbeldi í æsku á barnaheimilinu á Hjalteyri telur stjórnvöld enn og aftur hafa brugðist hópnum. Hún fagnar viðbrögðum ráðamanna við Bakkakotsmálinu en veltir fyrir sér af hverju engin viðbrögð komi fram við ótal erindum Hjalteyrabarna. Mörg þeirra upplifi að þau skipti engu máli.
Það var árið 2021 sem fjölmargir stigu fram og greindu fréttastofu frá því að hafa sem börn orðið fyrir alvarlegu kynferðislegu, líkamlegu og andlegu ofbeldi af hálfu forstöðuhjóna úr Hvítasunnusöfnuðinum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Í framhaldinu ákváðu stjórnvöld að skipa rannsóknarnefnd um starfsemi heimilisins, eftir niðurstöðu hennar voru vistmönnum dæmdar bætur árið 2023. Daglegar flengingar, innilokanir og tannburstun með sápu Hópur þeirra sem dvöldu hjá hjónunum á Hjalteyri hefur hins vegar heyrt lítið af málinu síðan þetta var og engar bætur hafa litið dagsins ljós að sögn Önnu Sigrúnar Rafnsdóttur sem var vistuð á heimilinu ásamt systur sinni í átta mánuði árið 1973. Anna Sigrún var þá fimm ára og systir hennar sjö. Hún segir að sóknarprestur Akureyrarkirkju hafi mælt með vistinni sem aðstoð við foreldra þeirra eftir að móðir þeirra lenti í alvarlegum líkamlegum veikindum og þurfti að leita sér lækninga í Reykjavík. Anna Sigrún rifjar upp brot af því mikla ofbeldi sem hún þurfti að líða af hálfu hjónanna á Hjalteyri. „Við systur ólumst upp við góðar fjölskylduaðstæður en þegar við vorum settar í vist til hjónanna á Hjalteyri breyttist allt. Það var alveg sama hvað við gerðum, við vorum syndugar. Við fengum aftur og aftur að heyra að við værum börn djöfulsins. Ég var stundum flengd oft á dag, oftast af Einari sem girti niður um mig og skellti mér yfir hnén á sér og flengdi mig. Stundum voru eldri krakkar látnir flengja mig og það þýddi ekkert fyrir þá að neita, því þá voru þeir bara barðir. Ég var líka látin tannbursta mig með Lúx -handsápu á hverjum degi, ég þótti svo mikill syndaselur, fimm ára barnið,“ segir Anna Sigrún um brot af því ofbeldi sem hún mátti líða af hálfu hjónanna á Hjalteyri. Akureyrarkirkja þagði Hún segir að þegar þær systur sneru aftur til ástríkrar fjölskyldu á Akureyri hafi þær greint foreldrum sínum frá ofbeldinu. Þau hafi leitað á náðir Akureyrarkirkju en ekki fengið nein viðbrögð. „Því miður þá komu þau að lokuðum dyrum þar varðandi þetta mál. Og þá var einhvern veginn ákveðið í okkar fjölskyldu að ræða það ekki meir,“ segir Anna Sigrún. Núverandi stjórnvöld þegi líka Anna Sigrún segir að hún og systir hennar hafi barist fyrir réttlæti í sínu máli í nokkur ár, án viðbragða. „Ég er búin að vera í samskiptum við þrjá dómsmálaráðherra og ritara vegna Hjalteyrarmálsins. Ég er búin að senda nokkur hundruð bréf ásamt öðrum sem voru á Hjalteyri. Ég hef fengið fáein svör í gegnum tíðina. Upp á síðkastið erum við eiginlega að hætt að fá svör. Við erum týnd og gleymd,“ segir Anna Sigrún. Veltir fyrir sér hvort Hjalteyrarmálið sé ekki nógu merkilegt Anna Sigrún fagnar hröðum viðbrögðum stjórnvalda við Bakkakotsmálinu sem kom upp nýverið en segir sárt að finna á sama tíma fyrir áhugaleysinu gagnvart hennar hópi. Hún upplifir vonleysi. „Ég dáist að hugrekki þeirra sem voru vistaðir á sínum tíma á Bakkakoti, fyrir að hafa stigið fram og greint frá ofbeldinu sem þeir urðu fyrir sem börn líkt og við sem dvöldum á Hjalteyri. Ég er afar glöð yfir því að stjórnvöld hlusti á þá og bregðist við. En á sama tíma spyr ég, bíddu, af hverju er ekki hægt að klára okkar mál? Mér fannst á tímabili eins og verið væri að segja að ég væri bara þetta barn djöfulsins sem Hjalteyrarhjónin tuggu ofan í mig hvað eftir annað, ég skipti engu máli. Það er bara verið að segja aftur og aftur við okkur, þið eruð ekki nógu merkileg,“ segir Anna Sigrún að lokum.
Barnaheimilið á Hjalteyri Vistheimili Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ofbeldi gegn börnum Tengdar fréttir Daglegar pyntingar á Hjalteyri og enginn vildi hlusta Enn og aftur stígur fram maður sem segist hafa verið beittur hræðilegum pyntingum af hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Hann hefur í áranna rás reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá hjónin rannsökuð en segist aldrei hafa fengið áheyrn. 5. desember 2021 20:30 Hjalteyrarbörnin fá greiddar sanngirnisbætur frá ríkinu Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða fólki sem dvaldist á barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar sanngirnisbætur. Fram hefur komið að hjón sem höfðu umsjón með börnunum beittu þau gríðarlegu andlegu og líkamlegu ofbeldi. Þá verður skipuð rannsóknarnefnd um Vöggustofuna í Reykjavík. 26. apríl 2022 13:00 Hjalteyrarmálið: Reiknar með að starfshópurinn skili af sér í janúar Vigdís Häsler Sveinsdóttir, formaður nýskipaðs starfshóps um Hjalteyrarmálið, reiknar með að hópurinn geti lokið sinni vinnu undir lok næsta mánaðar. 7. desember 2021 21:11 Mest lesið „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ Innlent Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Innlent Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Innlent Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar Erlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Innlent Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Innlent Vilja festa símabannið í lög Erlent Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Innlent Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Innlent Fleiri fréttir Opnar sig um nauðgun: „Ég hélt náttúrulega þá að ég gæti bara ráðið við þetta“ „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Reyndi að greiða með ellefu þúsund króna seðli Grunaðir um að táldraga táningsstúlkur Eldur olli miklum skemmdum í kjallara „Hræðsluáróður, stagl og þvæla sem stjórnarandstaðan ætlar að keyra á“ Þórdís Kolbrún skipuð sendiherra í London Nánast búin með stafrófið Útlit fyrir flókna meirihlutamyndun í borginni Launahækkun Höllu illskiljanleg Verjanda Helga Bjarts nóg boðið Mandarínönd heillar við Hamarkotslæk Öll tólf mánaða börn fá leiksskólapláss í Kópavogi Vilja að fullorðnir lofi að búa til rými þar sem börn geta sagt frá Vinstrið eygir þrjá borgarfulltrúa og sjálfstæðismenn þann sjöunda Bein útsending: Samtal um atvinnustefnu og aðgerðir í þágu verðmætasköpunar Afleiðingarnar af systkinabroti séu verri en brotið sjálft Sagðist ætla að kveikja í hundi áður en hann rændi gull- og demantsmunum Föst í Herjólfi í korter eftir langa ferð frá Eyjum Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Nánast hreint kókaín í umferð en ekkert fentanyl Ofsaakstur um allt höfuðborgarsvæðið Nám Hildar sé merkilegra en menntunarfræði leikskóla „Ég sé engin rök fyrir því“ „Það er bara frekar slæmt ástand“ Sjá meira
Daglegar pyntingar á Hjalteyri og enginn vildi hlusta Enn og aftur stígur fram maður sem segist hafa verið beittur hræðilegum pyntingum af hjónum sem ráku barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar. Hann hefur í áranna rás reynt að ná eyrum yfirvalda til að fá hjónin rannsökuð en segist aldrei hafa fengið áheyrn. 5. desember 2021 20:30
Hjalteyrarbörnin fá greiddar sanngirnisbætur frá ríkinu Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða fólki sem dvaldist á barnaheimili á Hjalteyri á áttunda áratug síðustu aldar sanngirnisbætur. Fram hefur komið að hjón sem höfðu umsjón með börnunum beittu þau gríðarlegu andlegu og líkamlegu ofbeldi. Þá verður skipuð rannsóknarnefnd um Vöggustofuna í Reykjavík. 26. apríl 2022 13:00
Hjalteyrarmálið: Reiknar með að starfshópurinn skili af sér í janúar Vigdís Häsler Sveinsdóttir, formaður nýskipaðs starfshóps um Hjalteyrarmálið, reiknar með að hópurinn geti lokið sinni vinnu undir lok næsta mánaðar. 7. desember 2021 21:11