Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Kristján Már Unnarsson skrifar 10. mars 2026 21:12 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í viðtali í höfuðstöðvum félagsins í Hafnarfirði í dag. Lýður Valberg Forstjóri Icelandair segir virði félagsins fyrst og fremst felast í rekstri þess og leiðakerfi. Það sé mun verðmætara að reka félagið áfram heldur en að brytja það niður.
Í fréttum Sýnar var fjallað um Icelandair en lágt gengi hlutabréfa félagsins hefur orðið til þess að áhyggjur hafi verið viðraðar, þar á meðal af ráðherra, um að alþjóðlegir fjárfestar kynnu að freista þess að taka félagið yfir og brytja það niður. Forstjóri Icelandair, Bogi Nils Bogason, telur þessar áhyggjur óþarfar. Boeing 737-vél Icelandair í flugtaki á Keflavíkurflugvelli.Egill Aðalsteinsson „Því að virðið í félaginu felst fyrst og fremst í rekstrinum, mjög öflugu leiðakerfi sem er búið að byggja upp til mjög margra áratuga, sölu og markaðsstarfinu og allri þekkingunni sem okkar frábæra starfsfólk býr yfir. Þannig að það er hægt að ná miklu meira virði út úr því heldur en að brytja fyrirtækið niður, þó að það sé mikið um verðmætar eignir innan félagsins og efnahagsreikningurinn mjög sterkur. Ég held að það sé hægt að búa til miklu meira virði út úr þessu félagi og skila meira virði til hluthafa með því að reka félagið áfram. Þetta er búið að gera í næstum því 90 ár og við munum bara halda því áfram.“ segir Bogi Nils í viðtali sem sjá má hér: Hann segir nýjustu upplýsingar sem birst hafa um rekstur félagsins mjög jákvæðar, eins og farþegatölur frá áramótum. Efnahagsreikningur í lok síðasta árs hafi verið sterkur, einnig lausafjárstaða en einnig hafi utanaðkomandi kraftar áhrif. „Veiking Bandaríkjadals á síðasta ári hafði verulega neikvæð áhrif, umhverfisgjöld og þess háttar, en félagið er bara á mjög góðum stað og við hérna hjá Icelandair erum bjartsýn á framtíðina,“ segir forstjórinn. -Innviðaráðherra vill fá fund með þér. Eruð þið búnir að funda eða stendur það til? Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra.Vísir/Bjarni „Við töluðum saman í síma á sunnudaginn og hann sagði mér að hann hefði nú meira verið svona að horfa á stóru myndina, samkeppnishæfni útflutningsfyrirtækja hérna á Íslandi, ETS-gjöldin og vinnumarkaðsmódelið. Og ég er bara sammála honum um að það þarf að tryggja samkeppnishæfni í útflutningsfyrirtækjum á Íslandi. En ég sagði líka í einhverju viðtali í gær að ráðamenn og aðrir í svo mikilvægum stöðum ættu að tala varlega um skráð fyrirtæki á markaði,“ svarar Bogi. Forstjóri Icelandair var einnig úti í Brussel á dögunum að ræða um loftslagsgjöldin. „Já, við vorum að funda um þau mál; við ásamt Eimskip og Samtökum atvinnulífsins, og fara yfir með aðilum þar, að það er bara mikilvægt að það verði tekið tillit til sérstöðu Íslands hvað varðar umhverfisgjöldin. Við erum hérna á eyju í miðju Atlantshafinu og það sem á kannski við á meginlandi Evrópu á alls ekkert við hér og það þarf að taka tillit til þess til framtíðar.“ Icelandair greiddi fimm milljarða króna í fyrra í umhverfisgjöld.Egill Aðalsteinsson Bogi segir umhverfisgjöld Icelandair á síðasta ári hafa numið um fimm milljörðum króna og að óbreyttu munu þau hækka umtalsvert. „Sérlausnin sem að við höfum, eða Ísland hefur, hvað varðar flugið, hún rennur út um næstu áramót. Þannig að það er mjög mikilvægt að stjórnvöld setji bara gríðarlegan þunga í þetta mál núna. Því að nú er tækifæri til þess að ná einhverju fram. Sem er algjörlega nauðsynlegt,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Icelandair Fréttir af flugi Loftslagsmál Jarðefnaeldsneyti Tengdar fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður „Það er alltaf góður díll í dag að kaupa félagið og leggja það niður. Það er auðvitað það sem gerir það hættulegt þjóðaröryggislega séð að þetta gæti verið freistnivandi fyrir einhverja aðila að skoða það einfaldlega að leysa félagið upp,“ segir Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair. 9. mars 2026 21:45 Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent „Þá bara krassa lungun“ Innlent Bruni við Breiðhöfða Innlent Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Innlent Fleiri fréttir Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Sjá meira
Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður „Það er alltaf góður díll í dag að kaupa félagið og leggja það niður. Það er auðvitað það sem gerir það hættulegt þjóðaröryggislega séð að þetta gæti verið freistnivandi fyrir einhverja aðila að skoða það einfaldlega að leysa félagið upp,“ segir Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair. 9. mars 2026 21:45