Framtíð Hafnarfjarðar í höndum metnaðarfulls ungs fólks í Ungmennaráði Kristín Thoroddsen skrifar 12. mars 2026 09:47 Bæjarstjórn Hafnarfjarðar tók í gær 11. mars á móti Ungmennaráði Hafnarfjarðar þar sem fulltrúar ráðsins kynntu tillögur sínar í bæjarstjórn. Starf ráðsins ber vott um mikinn metnað og skýra sýn ungmenna á hvernig megi bæta bæði líðan þeirra og námsumhverfi í bænum. Tillögur ungmennaráðsins eru fjölbreyttar og vel ígrundaðar og endurspegla sterkan vilja ungmenna til að hafa áhrif á sitt samfélag. Sérstaklega var ánægjulegt að sjá áherslu á heilsu og velferð ungmenna, meðal annars með tillögum um aukna fræðslu um svefn, næringu og geðheilsu. Slík fræðsla getur haft veruleg áhrif á líðan, heilsu og námsárangur ungs fólks og stuðlað að heilbrigðum lífsstíl til framtíðar. Ungmennaráð hefur á undanförnum árum reglulega komið á fund bæjarstjórnar og kynnt þar tillögur sínar, sem margar hafa verið samþykktar og unnið áfram með. Ein af þeim tillögum sem nú er til umræðu í bæjarstjórn, og á upphaf sitt í ungmennaráði, er frítt í strætó fyrir ungmenni. Sú tillaga er nú til greiningar og verið er að skoða mögulegar útfærslur, meðal annars svokallaða „greitt miðað við notkun“ leið sem vert er að skoða betur. Mikilvægi þess að hlusta á rödd ungmenna Ráðið lagði jafnframt fram tillögur sem snúa að þróun skólastarfs í Hafnarfirði. Þar má nefna tillögu um mótun gervigreindarstefnu fyrir skólastarf, aukna áherslu á verklegt nám og auknar fjárveitingar til grunnskóla til að bæta aðstöðu og búnað fyrir nemendur. Samþykkt var í fjárhagsáætlun fyrir núlíðandi ár að veita auka fjármagni til félagsmiðstöðva og því gaman að sjá að tillaga þeirra fer saman við ákvörðun meirihlutans í fjárhagsáætlun. Þá var einnig lagt til að öllum nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskólum bæjarins verði tryggður aðgangur að fartölvum til reglubundinnar notkunar í námi. Ákvörðun um breytingar á tölvunotkun ungmenna í 10.bekk hefur nú þegar verið tekin og er í innleiðingarferli en áhugavert er að sjá að tillaga þeirra fjallar um að færa okkur neðar í aldri. Meðal annarra tillagna var að grunnskólar í bænum samræmi upphaf skóladags og færi hann til seinna á morgnana, með það að markmiði að bæta líðan, heilsu og námsárangur nemenda. Einnig lagði ráðið til að dregið verði úr skólasundi í grunnskólum og að sundkennsla verði kynjaskipt sem að einhverju leiti er gert í Hafnfirskum grunnskólum í dag. Ungmennaráðið lagði einnig áherslu á öflugar forvarnir og öruggt skólaumhverfi. Þar var meðal annars lagt til að sett verði á fót samræmd fræðsla um geðheilsu fyrir öll ungmenni í bænum með áherslu á forvarnir. Þá var lagt til að viðbragðsáætlanir gegn einelti í grunnskólum bæjarins verði endurskoðaðar og samræmdar til að tryggja skýr og árangursrík úrræði fyrir börn og ungmenni. Að auki lagði ráðið til að nemendum verði tryggður formlegur atkvæðaréttur í ákvörðunum sem varða skólalíf til að efla lýðræðislega þátttöku þeirra enda Hafnarfjörður barnvænt sveitarfélag. Þá var einnig bent á mikilvægi þess að samræma námsefni og námskrárvinnu grunnskólanna í ríkari mæli til að tryggja jafnræði nemenda. Metnaðarfull vinna Ungmennaráðs Hafnarfjarðar Starf Ungmennaráðs Hafnarfjarðar sýnir skýrt hversu mikilvægt er að hlusta á rödd ungmenna þegar kemur að menntamálum og öðrum málefnum sem snerta ungt fólk. Rödd ungs fólks skiptir máli og er mikilvægt afl þegar kemur að ákvarðanatöku, hvort sem er á sveitarstjórnarstigi eða öðrum stigum. Það er jafnframt afar ánægjulegt að sjá hversu faglega, metnaðarfullt og skýrt þessi hópur ungmenna nálgast þau verkefni sem þau taka sér fyrir hendur. Tillögur þeirra bera vitni um ábyrgð, framsýni og raunverulegan vilja til að bæta samfélagið sitt. Með svona öflugu, hugsandi og samhentu ungu fólki er augljóst að framtíð Hafnarfjarðar – og samfélagsins alls er björt. Höfundur er bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og formaður fræðsluráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar
Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson Skoðun