Pósturinn sendir starfsmanninn í leyfi Lovísa Arnardóttir skrifar 16. mars 2026 11:49 Maðurinn starfaði við póstdreifingu í litlu samfélagi á Norðurlandi vestra en var dæmdur fyrir að nauðgun og kynferðislega áreitni í fyrra. vísir/vilhelm Pósturinn hefur sent Andrés Pál Ragnarsson í leyfi en hann var í desember dæmdur fyrir nauðgun og kynferðislega áreitni gagnvart fjórtán ára barni. Pósturinn segist taka málið alvarlega og að þau ætli að endurskoða verklag og ferla í kjölfar þessa máls.
Fjallað var um það á Vísi í morgun að karlmaður sem dæmdur var fyrir að nauðga fjórtán ára barni starfi við akstur og dreifingu pósts í litlu samfélagi á Norðurlandi vestra. Gerandi og þolandi eru bæði búsett í sveitarfélaginu. Pósturinn sagðist í svörum til Vísis ekki tjá sig um mál einstakra starfsmanna. Aðstandendur brotaþola telja brýnt að verklag fyrirtækja og öryggismat sé endurskoðað þegar starfsmenn eru sakfelldir fyrir svo alvarleg brot. Þau höfðu óskað þess að hann yrði færður í starfi og að hann kæmi ekki með póst á heimili þeirra. Samkvæmt heimildum fréttastofu óskuðu fleiri íbúar eftir því. Andrés Páll sagðist í orðsendingu til fréttastofu ekki vera hættulegur maður en að hann ætlaði ekki að tjá sig um málið á meðan áfrýjun stæði yfir. „Pósturinn tekur þá umfjöllun sem birtist á Vísi mánudaginn 16. mars um starfsmann fyrirtækisins mjög alvarlega. Almennt tjáir Pósturinn sig ekki um málefni einstaka starfsmanna en að gefnu tilefni viljum við árétta að við höfum brugðist við málinu. Viðkomandi starfsmaður var sendur í leyfi í síðustu viku og samhliða því verða ferlar og viðbragð innan fyrirtækisins skoðað nánar,“ segir í yfirlýsingu frá Póstinum. Biðja íbúa afsökunar Þar kemur einnig fram að þau harmi þá stöðu sem sé upp komin og biðja hluteigandi og íbúa afsökunar á því óöryggi og áhyggjum sem þetta mál hefur valdið. „Við skiljum vel þær áhyggjur sem fram hafa komið og munum halda áfram að fara yfir verklag okkar til að tryggja að starfsemi Póstsins standist þær kröfur sem samfélagið gerir til okkar," segir að lokum. Yfirlýsing frá Póstinum í heild sinni: Pósturinn tekur þá umfjöllun sem birtist á Vísi mánudaginn 16. mars um starfsmann fyrirtækisins mjög alvarlega. Almennt tjáir Pósturinn sig ekki um málefni einstaka starfsmanna en að gefnu tilefni viljum við árétta að við höfum brugðist við málinu. Viðkomandi starfsmaður var sendur í leyfi í síðustu viku og samhliða því verða ferlar og viðbragð innan fyrirtækisins skoðað nánar. Við hörmum einlæglega þá stöðu sem upp er komin og biðjum hlutaðeigandi aðila og íbúa í samfélaginu sem um ræðir innilega afsökunar á því óöryggi og áhyggjum sem þetta mál hefur valdið. Við skiljum vel þær áhyggjur sem fram hafa komið og munum halda áfram að fara yfir verklag okkar til að tryggja að starfsemi Póstsins standist þær kröfur sem samfélagið gerir til okkar. Pósturinn mun ekki tjá sig nánar um málið.
Pósturinn Kynferðisofbeldi Réttindi barna Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Sjá meira