Bítlakynslóðin úti í kuldanum á efri árum Gunnar Salvarsson skrifar 16. mars 2026 17:32 Aðeins tveir Bítlanna eru á lífi. Strákarnir í Hljómum, Dátum, Flowers, Ævintýri og Roof Tops eru komnir í hóp aldraðra, þeir sem eru á annað borð ofan moldu. Við sem ólumst upp við bítl erum líka farin að reskjast og tilhlökkunin um að samfélagið umvefji okkur með kærleika og blómum á þriðja æviskeiðinu er fokin út í veður og vind. Það blasir nefnilega lítið annað við en að ellin verði okkur erfið.Þegar við fæddumst, á sjötta áratug síðustu aldar, komu í heiminn fjölmennustu árgangar í sögu Íslands. Þau voru ekki mörg einbirnin í Melaskólanum þegar ég hljóp þar um ganga. Þá áttu íslenskar konur að meðaltali um fjögur börn og yfir fjögur þúsund börn fæddust á hverju ári. Íbúafjöldi Íslands var þá um 150 þúsund.Nú er myndin allt önnur. Á fræðamáli heitir það að frjósemi hafi minnkað mikið, niður í um 1,6 barn á konu. Það kemur auðvitað lítið frjósemi við, því ungt fólk á síðustu áratugum hefur tekið meðvitaða ákvörðun um að eignast fá börn, eða engin. Nýir árgangar eru því miklu fámennari en þeir sem fæddust á eftirstríðsárunum. Afleiðingin er sú að aldurssamsetning þjóðarinnar hefur breyst gífurlega, nú þegar Bítlakynslóðin horfir inn í skuggalega framtíð sem eitt sinn átti að vera áhyggjulaust ævikvöld.Á næstu tveimur áratugum er líklegt að Íslendingar yfir áttrætt verði tvöfalt fleiri en í dag, sá aldurshópur sem þarf mest á heilbrigðis- og velferðarþjónustu að halda. Á sama tíma minnkar hlutfall fólks á vinnualdri. Þetta kallast öldrunarhlutfall í hagfræðinni. Fyrir fáum áratugum voru um fimmtán eldri borgarar fyrir hverja hundrað einstaklinga á vinnualdri. Um miðja þessa öld gætu þeir orðið fjörutíu eða fleiri. Öldrun er samfélagslegt verkefni Þessi þróun hefur legið fyrir í mannfjöldaspám í áratugi. Hún er því ekki óvænt. Hún hefði með smá fyrirhyggju af opinberri hálfu kallað á meiriháttar breytingar í skipulagi þjónustu samfélagsins við eldri borgara. Öldrun er ekki einkamál einstaklings eða fjölskyldu. Hún er samfélagslegt verkefni. Samfélag sem vill kalla sig velferðarsamfélag hlýtur að leggja áherslu á að fólk fái að eldast með reisn, með þeirri umönnun og þeim stuðningi sem nauðsynlegur er. Sú ábyrgð á ekki sjálfkrafa að lenda á herðum aðstandenda þegar kerfin bregðast.Í aðgerðaáætlun stjórnvalda Gott að eldast eru sett fram metnaðarfull markmið um samþætta þjónustu og aukna heimahjúkrun svo fólk geti búið lengur heima. Þar er jafnframt viðurkennt að þjónustan við aldraða sé sundruð á milli margra kerfa og að bæta þurfi samvinnu milli heilbrigðis- og félagsþjónustu, ríkis og sveitarfélaga. Þessari aðgerðaráætlun lýkur í lok næsta árs, en hefur einhver tekið eftir stórkostlegum breytingum í þessum málaflokki undanfarin misseri?Hugsunin í aðgerðaráætluninni er ekki ólík þeirri sem liggur að baki farsældarlögunum um börn og ungmenni. Þar er lögð áhersla á að þjónustan eigi að snúast um einstaklinginn en ekki kerfin og jafnframt að stofnanir vinni saman með þarfir barnsins í forgrunni.Ef í eftirfarandi kynningartexta um farsældarlögin væri einfaldlega skipt út orðinu barn fyrir aldraðan myndi hann hljóma ekki síður skynsamlega.Farsæld aldraðra verður ekki tryggð nema með virkri samvinnu. Það er sameiginleg ábyrgð þeirra sem koma að lífi aldraðs fólks að vera vakandi, bregðast tímanlega við og tryggja að þjónustan vinni saman í stað þess að dreifast á milli margra kerfa.Þúsundir í óumbeðnum ólaunuðum umönnunarstörfumÉg hef ekki tölu á því hvað ég þekki marga á mínum aldri sem þurfa að annast háaldraða foreldra eða önnur skyldmenni sem búa ein og reiða sig á aðstoð barna sinna og annarra aðstandenda. Þótt heimahjúkrun og heimaþjónusta sé til staðar þarf fjörgamalt fólk meiri aðstoð en samfélagið veitir. Byrðin lendir í vaxandi mæli á herðum fjölskyldunnar, einstaklingum sem hafa mismikið svigrúm til að svara kallinu.Það er skiljanlegur ótti Bítlakynslóðarinnar, stærstu kynslóðar Íslandssögunnar, að samfélagið sé ekki tilbúið að mæta okkur á efri árum. Stjórnvöld vilja að við búum heima hjá okkur sem lengst, en eigi þessir fjölmennu árgangar að lifa við reisn heima þarf að lyfta grettistaki í þjónustu. Verkefnið er risastórt, en umræðan í samfélaginu um málefni aldraðra er í skötulíki. Og verkefnið þolir enga bið, vandinn eykst með ári hverju.Það er líkast því að stjórnvöld og aðrir opinberir aðilar haldi að framtíð öldrunarþjónustu muni breytast með velferðartækni og gervigreind. Tæknin eigi að létta undir með hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki svo við getum búið lengur heima. Tæknin getur vissulega orðið gagnleg við eftirlit með heilsu og skipulag þjónustu. En hún kemur ekki í stað mannlegrar umönnunar.Í bláenda lokalags Bítlanna, The End, syngja þeir spaklega: „the love you take is equal to the love you make.” Sú hugsun gæti líka átt við um samfélög. Hvernig við komum fram við elstu kynslóðina segir meira en margt annað um það hvers konar samfélag við viljum vera.Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Eldri borgarar Mest lesið Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson Skoðun Skoðun Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Leysum húsnæðisvandann til frambúðar Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Óboðlegar samgöngur til Eyja Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Berum höfuðið hátt áfram Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hefjum uppbyggingu miðbæjar Egilsstaða Jóhann Hjalti Þorsteinsson skrifar Skoðun Lokakaflinn í lífinu er jafn mikilvægur og upphafskaflinn Tristan Gribbin skrifar Skoðun Hugsuðir framtíðarinnar sitja aftast í bekknum Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Hólar í hjartastað Sólrún Harðardóttir skrifar Skoðun Að verða Akureyringur Zane Brikovska skrifar Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar Skoðun Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skóli án aðgreiningar krefst raunverulegrar þjónustu Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Breyttur bær Erna Kristín Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar stendur hnífurinn í kúnni, Kristrún? Inga Fanney Rúnarsdóttir skrifar Skoðun Reykjavík getur gripið börn fyrr Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Höfnum framtíðinni sem aldrei kom Bjarni Guðjónsson skrifar Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Hættulegar skólalóðir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar Skoðun Þegar lausnin er að stytta menntun, þá er eitthvað að! Svava Björg Mörk skrifar Skoðun Hverfin hverfast um íþróttafélögin Birkir Ingibjartsson skrifar Skoðun Húsnæði er ekki lúxus – rödd ungu kynslóðarinnar Aleksandra Jania skrifar Skoðun Aftur til fortíðar – leikskólinn sem réttur eða geymsla? Kristín Dýrfjörð skrifar Sjá meira
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Öflug íþróttastefna fyrir öflugt samfélag Guðmundur Benóný Baldvinsson,Maria Araceli,Þorsteinn Hjartarson skrifar
Skoðun Nýjar skýrslur um hraunavá styrkja undirbúning Hafnarfjarðarbæjar Valdimar Víðisson skrifar
Skoðun Þegar dómar festa brot í sessi: Eru íslenskir dómstólar að brjóta á börnum? Brjánn Jónsson skrifar