Staðreyndir um framkvæmdir og áætlanir í samgöngumálum Hafnfirðinga Ó. Ingi Tómasson skrifar 17. mars 2026 17:30 Bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar, Árni Rúnar Þorvaldsson fer mikinn í grein á visir.is þar sem hann fjallar um samgöngumál í Hafnarfirði. Það sem kemur ekki á óvart er að frjálslega er farið með staðreyndir í greininni. Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins Samgöngusáttmálinn sem kveður á um framkvæmdir og fjármögnun á stofnvegum, borgarlínu, göngu-og hjólastígum á höfuðborgarsvæðinu fram til ársins 2040 var fyrst samþykktur árið 2019 í bæjarstjórn af 10 bæjarfulltrúum, bæjarfulltrúi Miðflokksins var á móti, uppfærður samgöngusáttmáli var samþykktur árið 2024 í bæjarstjórn af öllum 11 bæjarfulltrúum. Það sem kemur m.a. fram í uppfærðum samgöngusáttmála er að framkvæmdum við Reykjanesbraut – Álftanesveg – Lækjargötu verði lokið árið 2034. Verið er að skoða valkosti um Reykjanesbraut í stokk frá N1 hringtorginu að Kaplakrika eða göng undir Setbergshamarinn. Alls eru áætlaðir 20 milljarðar í þetta verkefni þ.e. Reykjanesbraut – Álftanesvegur – Lækjargata. Það sem þegar hefur verið framkvæmt Sjálfstæðisflokkurinn komst í meirihluta bæjarstjórnar árið 2014, viðskilnaður Samfylkingarinnar var síður en svo glæsilegur, bæjarsjóður stórskuldugur, ekkert hafði verið framkvæmt í bænum í mörg ár og eignir bæjarins lágu undir skemmdum. Frá þeim tíma hefur Sjálfstæðisflokkurinn ásamt samstarfsflokkum lagt áherslu á að eignum bæjarins sé vel við haldið, byggt upp vegakerfið m.a. með nýrri Ásvallabraut sem tengir Velli við Kaldárselsveg, byggt upp veginn frá Hlíðarþúfum að Reykjanesbraut, endurnýjað gangbrautir og götur áamt mikilli uppbyggingu íbúðar- og iðnaðarhverfa. Einnig hefur verið þrýst á stjórnvöld um framkvæmdir á Reykjanesbraut. Frá árinu 2017 hafa verið gerð mislæg gatnamót við Reykjanesbraut og Krýsuvíkurveg, Reykjanesbraut breikkuð á milli Kaldárselsvegar og Hvassahrauns. Það sem ekki var framkvæmt Vert er að halda til haga að um síðustu aldamót lá fyrir umhverfismat, samþykkt skipulag og fjármögnum um Reykjanesbraut í stokk frá Lækjargötu að Fjarðarhrauni og að Álftanesvegi (við Góu) og Vegagerðin var tilbúin í að ráðast í framkvæmdir. Árið 2002 náði Samfylkingin meirihluta í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Eitt fyrsta verk Samfylkingarinnar var að slá út af borðinu samþykkta framkvæmd um Reykjanesbraut í stokk og samþykkti þess í stað hringtorgið sem er nú við N1. Flóttamannavegur/Elliðavatnsvegur Bæjarfulltrúinn, Árni Rúnar Þorvaldsson gerir mikið úr því að Flóttamannavegurinn sé loks komin á dagskrá hjá ríkisstjórninni og að framlag til hönnunar á næstu tveimur árum sé 50 milljón krónur og að vegurinn sé ekki lengur skilavegur (vegurinn verður áfram í umsjón Vegagerðarinnar). Þá nefnir bæjarfulltrúinn að vegurinn verði ígildi ofanbyggðarvegar og þetta þakkar bæjarfulltrúinn sjálfum sér og jafnaðarmönnum. Svo því sé haldið til haga þá lagði undirritaður fram tillögu og bókun í svæðiskipulagsnefnd SSH á síðasta kjörtímabili um að vegurinn yrði ekki skilavegur heldur áfram í umsjón Vegagerðarinnar, einnig að í svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins væri gert ráð fyrir ofanbyggðarvegi á þessu svæði. Í framhaldinu ítrekuðu Skipulags- og byggingarráð svo og bæjarráð þessa bókun. Fulltrúar meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafa í framhaldinu lagt áherslu á að Vegagerðin endurbyggði Flóttamannaveginn/Elliðavatnsveginn. Samþykkt hefur verið að ráðast í endurbætur á veginum en fjármagn vantar, gera má ráð fyrir að kostnaður sé á bilinu 6-8 milljarðar og því eru þessar 50 miljón krónu sem bæjarfulltrúinn er svo ánægður með aðeins til málamynda. Þess má geta að vegurinn verður ekki ígildi ofanbyggðarvegar sem átti að vera stofnbraut. Látum ekki blekkjast Það mun reyna á ríkið hvort staðið verði við samþykktan samgöngusáttmála og núverandi meirihluti mun fylgja því eftir að svo verði. Bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar eru iðnir við að fara frjálslega með staðreyndir og líklega mun ekkert draga úr þeim málflutningi í kjölfar sveitarstjórnarkosninga. Staðreyndir tala sínu máli, mikil uppbygging hefur verið í Hafnarfirði frá því að Samfylkingin hrökklaðist frá völdum árið 2014. Samkvæmt könnunum á meðal íbúa eru íbúar Hafnarfjaðar mjög ánægðir með að búa í Hafnarfirði og þannig mun það verða áfram meðan Sjálfstæðisflokkurinn er í meirihluta bæjarstjórnar. Látum ekki blekkjast af innantómum loforðum og frösum. Höfundur er fyrrverandi bæjarfulltrúi (D) Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samgöngur Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar