Fjarlækningar spara nú þegar fjármuni – og tíma Ragna Hlín Þorleifsdóttir og Jenna Huld Eysteinsdóttir skrifa 21. mars 2026 06:31 Það hefur lengi verið vilji innan heilbrigðiskerfisins að innleiða fjarlækningar í meira mæli enda fela þær í sér gríðarleg tækifæri til að spara, auka aðgengi fólks að heilbrigðisþjónustu og minnka biðlista. Heilbrigðisstefna Íslands til ársins 2030 var mótuð árið 2018 að frumkvæði Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra og í henni var skýr áhersla lögð á að íbúar landsbyggðarinnar gætu nýtt sér fjarlækningaþjónustu til að sækja sérfræðiþjónustu fyrir árið 2030. Þessi stefna sýndi stórkostlega framsýni og vilja til nýsköpunar, sem er einmitt hugarfarið sem gæti bætt þau vandamál sem herja á heilbrigðiskerfið okkar. Lítil lönd eins og Ísland geta ekki hunsað nýjar og snjallar leiðir sem í boði eru til að hagræða og bæta þjónustu, annars er hætt við að kerfið þróist í allsherjar svarthol fjármagns og tíma. Fjarlækningar eru því ekki lengur róttæk tilraunastarfsemi, heldur innleiðing stefnu sem þegar hefur verið mótuð. Tveggja ára reynsla Húðvaktarinnar af húðlækningum með fjarlækningafyrirkomulagi sýnir ótvíræða kosti og mikil tækifæri til þess að styrkja heilbrigðiskerfið og spara fjármagn, bæði fyrir sjúklinga og ríkið. Raunhæf leið til að stytta biðlista Biðlistar skapa óhagræði, auka kostnað og fela í sér raunverulega hættu. Þeir geta leitt til þess að einstaklingar sem ekki hafa bolmagn, þekkingu eða ákveðin einkenni sitji eftir – og að alvarlegir sjúkdómar greinist of seint. Allir biðlistar skapa einnig þrýsting á að komast „fram fyrir röðina“, hvort sem er með greiðslu, kunningsskap eða öðrum leiðum. Slík þróun grefur undan jafnræði í heilbrigðisþjónustu og er ekki í samræmi við heilbrigðisstefnu Íslands. Eins og staðan er núna getur bið eftir tíma hjá húðlækni numið mánuðum og ekki er fyrirsjáanlegt að það ástand lagist í bráð þar sem landsmönnum fjölgar en starfandi húðlæknum fer fækkandi. Með betri forgangsröðun og markvissri nýtingu fjarlækninga má stytta þann tíma og tryggja að alvarleg tilfelli fái skjótari úrlausn. Snemmbær greining getur skipt sköpum – bæði fyrir heilsu sjúklings og kostnað samfélagsins. Ef við viljum forðast tvöfalt heilbrigðiskerfi verðum við að hætta að líta á biðlista sem eðlilegt ástand, í stað þess verðum við að horfast í augu við vandann og vinna markvisst að lausnum. Fjarlækningar eru að reynast vel nú þegar Fjarlækningar eru nánast óplægður akur á Íslandi, en reynsla okkar sýnir að þjónustan virkar afar vel. Húðvaktin hóf starfsemi í ársbyrjun 2024 og hefur síðan boðið sérfræðiþjónustu í gegnum stafræna samskiptagátt, með fjarlækningum, en þegar þörf er á með hefðbundnum hætti. Samskiptagáttin skráir sjálfkrafa öll samskipti og gögn beint í sjúkraskrá og gerir lækni og sjúkling kleift að eiga samskipti þegar þeim hentar best. Í húðlækningum duga ljósmyndir og greinargóð lýsing á einkennum oft til að meta stöðu og ákveða næstu skref. Með því að beina einfaldari erindum í stafrænan farveg, þar sem einkenni eru skýr og greining fæst oft fljótt, getur skapast meira svigrúm fyrir sjúklinga sem þurfa flóknari þjónustu. Í þeim tilfellum tekur hefðbundin heimsókn við. Þessi samsetta nálgun hefur reynst okkur best og felur í sér raunhæfa leið til að létta á biðlistum, bæta aðgengi, þjónustu og tryggja að sérfræðingar nýti tíma sinn þar sem hann skiptir mestu máli. Þegar til heildarmyndarinnar er litið – tími sjúklings, skipulag, ferðalög, fjarvera frá vinnu og fleira – er ávinningurinn enn meiri. Hér er því ekki eingöngu um ávinning fyrir lækna að ræða heldur fyrir sjúklinga einnig og samfélagið í heild. Ekki bara tímasparnaður, heldur betri þjónusta Í gegnum stafrænu samskiptagáttina verður þjónustan einnig skilvirkari, öruggari og betri. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt að sjúklingar muna oft aðeins 40–50% af því sem fram kemur í læknisheimsókn. Það er mannlegt, aðstæður geta verið streituvaldandi, tíminn er takmarkaður og upplýsingar miklar. Einn af helstu styrkleikum stafrænnar þjónustu er að öll samskipti eru skráð og aðgengileg hvenær sem er. Margir sjúklingar hafa lýst mikilli ánægju með að geta flett upp svörum læknis síðar, kynnt sér leiðbeiningar aftur og þannig verið virkari þátttakendur í eigin meðferð. Þetta er ekki aðeins gagnlegt fyrir sjúklinginn. Oft á tíðum, sérstaklega hjá sérfræðilæknum, liggur ástæða komu ekki skýrt fyrir fyrr en í sjálfum viðtalstímanum. Það skapar tímasóun á dýrmætum sérfræðitíma sem mætti nýta betur til að sinna alvarlegri tilfellum. En með skipulagðri fjarþjónustu þar sem sjúklingar skrá ástæðu komu, einkenni og senda viðeigandi gögn áður en tími er úthlutaður, mæta sérfræðilæknar undirbúnir í viðtalstíma, geta forgangsraðað tilfellum markvissar og hraðar eða jafnvel klárað mál alfarið í gegnum fjarþjónustu án þess að skipuleggja viðtalstíma. Fjárfesting sem borgar sig Fjarlækningar eru því ekki viðbót við heilbrigðiskerfið heldur annað fyrirkomulag sérfræðiþjónustu sem þegar er veitt. Spurningin er í raun ekki hver kostnaðurinn sé heldur hvernig við innleiðum fjarlækningar og tryggjum um leið að þær auki þjónustu og lífsgæði sjúklinga auk þess að spara fjármagn. Fyrir utan beinan sparnað, felst ótvíræður samfélagslegur og fjárhagslegur ávinningur fyrir strjálbýlt land í jafnara aðgengi fólks um allt land að heilbrigðisþjónustu. Í sambærilegum löndum, til dæmis í Noregi, er fjarlækningaþjónusta nú þegar mikið nýtt. Samtal sem skilar árangri Viljinn er sannarlega til staðar og margt gott að gerast víða innan kerfisins. Það er sameiginlegt markmið allra að bæta aðgengi og gæði þjónustu við sjúklinga og tryggja að fjármunir nýtist sem best. Gott samstarf við Sjúkratryggingar Íslands og Heilbrigðisráðuneytið ásamt fleirum hefur verið lykilforsenda þess að mikilvæg þekking á ávinningi fjarlækninga í meðferð húðsjúkdóma er nú orðin til hjá Húðvaktinni. Markmið okkar er að halda áfram því uppbyggilega samstarfi og byggja á reynslunni til þess að bæta þjónustuna enn frekar og skila meiri ávinningi til sjúklinga. Um leið viljum við gera okkar og miðla þeirri reynslu sem við höfum áunnið okkur. Þekkingin sem nú er að verða til er mikilvægt veganesti sem við eigum að nýta í stefnumótun um eflingu fjarlækninga. Með því að koma á stærra samtali geta stjórnvöld, stofnanir, sjúkratryggingar, læknar og aðrir þjónustuaðilar í sameiningu byggt upp mikilvæga þekkingu og nýja nálgun þar sem fjarlækningar eru viðtekinn og eðlilegur hluti af heilbrigðisþjónustu á Íslandi. Við megum í raun engan tíma missa. Höfundar eru húðsjúkdómalæknar hjá Húðvaktinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Skoðun Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokk Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Skoðun Þegar allt fer aftur á fullt – munum eftir fólkinu Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Börnin sem mæta afgangi Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Læsi er sameiginleg ábyrgð og fjárfesting til framtíðar Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun PISA - Viljum við árangur án erfiðisins? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar