Bergdís nýr sendiherra Íslands í Kína Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 29. mars 2026 13:18 Bergdís afhendir Donald Trump trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum árið 2019. Nú liggur leiðin til Kína þar sem ku vera fallegt, keisarans hallir skína. Bergdís Ellertsdóttir tekur við stöðu sendiherra í Kína síðar á árinu. Hún hefur starfað við utanríkisþjónustu í hálfan fjórða áratug og var sendiherra í Bandaríkjunum áður en Svanhildur Hólm Valsdóttir tók við embættinu fyrir hálfu öðru ári.
Eiríkur Jónsson greindi fyrstur frá ferðalaginu sem fram undan er hjá Bergdísi. Hún segist í samtali við fréttastofu að svo stöddu ekki geta tjáð sig um málið. Bergdís tekur við embættinu af Þóri Ibsen sem hefur gegnt því frá árinu 2021. Þegar litið er yfir ferilskrá Bergdísar sést að hún hefur komið víða við í utanríkisþjónustunni. Bergdís hóf störf hjá utanríkisráðuneytinu árið 1991 og varð ritari við verslunardeildina. Hún hóf síðan störf við sendiráð Íslands í Bonn í Þýskalandi og varð varaformaður sendinefndarinnar. Frá 2000 til 2003 var hún aðstoðarframkvæmdastjóri stjórnmáladeildar sem sá um öryggismál, málefni Atlantshafsbandalagsins og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu og tvíhliða samskipti við Bandaríkin, Kanada og Rússland. Árið 2003 varð hún aðstoðarframkvæmdastjóri verslunardeildar utanríkisráðuneytisins og síðan framkvæmdastjóri alþjóðaöryggis- og þróunarmála árið 2007. Árið 2007 var Bergdís jafnframt útnefnd aðstoðaraðalritari EFTA í Brussel og gegndi því embætti til ársins 2012. Hún var helsti samningamaður Íslendinga í fríverslunarviðræðum við Kína í september 2012. Í september árið 2014 var hún útnefnd formaður sendinefndar Íslands til Evrópusambandsins og sendiherra Íslands í Belgíu, Hollandi, Lúxemborg og San Marínó. Í ágúst árið 2018 var Bergdís útnefnd fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum og í október sama ár var tilkynnt að hún yrði nýr sendiherra Íslands í Bandaríkjunum frá 1. ágúst 2019. Hún tæki við stöðunni af Geir H. Haarde. Bergdís er fædd árið 1962 og því á 64. aldursári og er gift Jóni Óskari Sólnes sem skrifaði einmitt bókina Washington DC innblásinn af dvöl þeirra hjóna vestan hafs í sendiherratíð Bergdísar þar.
Sendiráð Íslands Utanríkismál Kína Bandaríkin Vistaskipti Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira