Enn fer ekki saman hljóð og mynd Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. mars 2026 06:24 Þúsundir landgönguliða hafa verið sendir til Mið-Austurlanda, á sama tíma og Trump segir viðræður ganga ágætlega. Getty/Chip Somodevilla Donald Trump Bandaríkjaforseti heldur áfram að hafa í hótunum við stjórnvöld í Íran, á sama tíma og hann segir samningaviðræður eiga sér stað, beint og óbeint, og lýsir nýrri forystu landsins sem „sanngjarnri“ (e. reasonable). „
Í hreinskilni þá væri ég helst til í að taka olíuna í Íran en heimskt fólk í Bandaríkjunum segir: Af hverju ættirðu að gera það?“ sagði Trump í samtali við Financial Times um helgina. Þá sagði hann í gær að kannski myndu Bandaríkjamenn hernema Kharg-eyju, kannski ekki. „Við höfum marga valkosti,“ sagði hann og bætti því við að viðræður, sem færu fram í gegnum milliliði í Pakistan, þokuðust vel áfram. Forsetinn sagði „beina og óbeina“ fundi hafa átt sér stað og að ný forysta hefði reynst viðræðuhæf. Á sama tíma greindi Wall Street Journal frá því að Trump væri að íhuga aðgerðir til að freista þess að ná í nærri hálft tonn af auðguðu úrani sem leynist á að minnsta kosti tveimur stöðum í Íran. Flestir sérfræðingar segja slíkar aðgerðir myndu kalla á að senda töluverðan mannafla inn í landið í einhverjar vikur. Vert er að hafa í huga að Íranir hafa sakað Bandaríkjastjórn um að beita blekkingum og tala um samningaviðræður á sama tíma og hún skipuleggur innrás. Ísraelar hafa einnig haldið árásum sínum á Íran áfram óhindrað og réðust gegn fjölda skotmarka í Tehran í morgun. Verð á hráolíu er komið yfir 116 dollara á tunnuna og þá varð lækkun á mörkuðum í Asíu í morgun vegna óvissunnar sem er uppi í Mið-Austurlöndum.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Hernaður Ísrael Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Sjá meira