Segir að aðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. apríl 2026 07:04 Trump virðist vera við það að lýsa yfir sigri og láta gott heita eftir að hafa hleypt öllu í bál og brand. Getty/Nathan Howard Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn munu „yfirgefa“ Íran innan tíðar og að hernaðaraðgerðum gæti lokið eftir tvær til þrjár vikur. Þá segir hann aðalmarkmiðum hafa verið náð, það er að segja að koma í veg fyrir að Íranir eignuðust kjarnavopn.
Forsetinn virðist vera kominn í þann gír sem margir hafa spáð fyrir að hann myndi detta í að lokum, þegar engir góðir kostir væru eftir í stöðunni; það er að segja að lýsa yfir sigri án merkjanlegs árangurs og eftir að hafa í raun gert illt verra. Aðgerðir Bandaríkjamanna og Ísrael hafa sannarlega veikt stjórnvöld í Íran tímabundið en á sama tíma afhjúpað vald þeirra til að valda usla í nágrannaríkjunum og heiminum öllum. Mögulega má eigna þeim heiðurinn að því að hafa leitt öllum það í ljós að Íranir geta með lítilli fyrirhöfn og tilkostnaði ógnað fjárhagslegum stöðugleika með ódýrum drónaárásum og flota smábáta á Hormuz-sundi. Trump hélt því fram í gær að aðgerðirnar hefðu leitt til stjórnarskipta í Íran, sem er fjarri sannleikanum. Þá er enn fjarstæðukenndari yfirlýsing hans um að nú séu hófsamari menn teknir við stjórnartaumunum. Margir hafa bent á að æðstiklerkurinn Ali Khamenei, sem féll í upphafi aðgerða, hafi í raun verið með fótinn á bremsunni hvað varðaði kjarnorkuáætlunina en Írönum og öðrum ríkjum sé nú orðið ljóst að eina raunverulega leiðin til að fæla öflugri ríki frá afskiptum sé að eignast kjarnavopn. Árásir Bandaríkjamanna og Ísraela hafa valdið gríðarlegum skaða á innviðum í Íran og takmarkað árásargetu Írana. Þeir eiga hins vegar enn um það bil hálft tonn af auðguðu úrani, sem dugir í fjölda kjarnavopna. Trump sagði í gær að aðgerðum myndi ljúka þegar Bandaríkjamenn væru þess fullvissir að Íranir myndu ekki geta smíðað kjarnavopn, sem vekur spurningar um hvort enn sé í skoðun að ráðast í aðgerðir í landinu og ná í úranið. Bandaríkjastjórn er enn að auka við liðsafla sinn á svæðinu þannig að þetta er ekki útilokað. Forsetinn virðist hins vegar hafa fallið frá fyrri yfirlýsingum um umfangsmiklar árásir á orkuinnviði landsins ef Íranir ganga ekki að samningaborðinu. Nú segir hann það ekki skipta máli hvort samningar nást eða ekki. Þá sagði Trump í gær að olíuverð myndi lækka um leið og aðgerðum lyki en engar fyrirætlanir virðast uppi um opnun Hormuz-sunds, sem hann hefur þvegið hendur sínar af. Einhverjar þreifingar virðast þó enn vera í gangi og hafa stjórnvöld í Kína og Pakistan lagt fram áætlun í fimm liðum, sem felur meðal annars í sér vopnahlé og opnun Hormuz-sunds. Kínverjar eiga nokkuð magn olíubirgða og eru þannig betur staddir en margir en eiga mikið undir efnahagslegum stöðugleika í heiminum. Masoud Pezeshkian, forseti Íran, sagði í gær að Íranir hefðu vilja til þess að binda enda á átökin að því gefnu að tryggt yrði að þeir yrðu ekki fyrir frekari árásum. Byltingavörðurinn hefur hins vegar haldið áfram að hafa í hótunum, meðal annars gegn bandarískum tæknifyrirtækjum, og þá er óvíst um vilja Ísraelsmanna til að láta gott heita.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Ísrael Hernaður Íran Donald Trump Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Gríðarlegur fjöldi fagnaði páfanum Sex látnir eftir að íbúðarbygging hrundi Stofna „samskiptarás“ til að meðhöndla gervigreind Sex ára stúlka setti heimsmet Hafi hafnað tillögu Írana um opnum Hormússunds Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Sýnir Xi lýðræðisdjásn Bandaríkjanna Reyna að banna arabíska stjórnmálaflokka Sjá meira