„48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Agnar Már Másson skrifar 4. apríl 2026 18:10 Hvað er til í hótunum Donalds Trump Bandaríkjaforseta er svo önnur spurning en hann hefur tvisvar áður framlengt þennan frest. AP Íranir hafa til mánudags til þess að opna Hormússund á ný eða gera einhvers konar samkomulag við Bandaríkin, annars fer allt í bál og brand. Svo hljóðar nýjasta hótun Bandaríkjaforseta, sem hefur þó lítið sem ekkert tjáð sig um týnda bandaríska flugmanninn sem Bandaríkjaher og Íranir keppast um að finna.
Donald Trump Bandaríkjaforseti birti í dag færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann sagði að Íranir hefðu 48 klukkustunda frest til þess að opna Hormússund á ný, annars myndi Bandaríkjaher ráðast á orkuinnviði Írana. Frá því að Bandaríkjamenn hófu árásir á Írani í lok febrúar hafa Íranir hindrað umferð olíuskipa um sundið, sem hefur haft veruleg áhrif á olíuverð í heiminum. „Munið þið eftir því þegar ég gaf Írönum tíu daga til að gera samkomulag eða opna Hormússund[?] Tíminn er á þrotum – 48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans hjá þeim,“ skrifaði Trump og vísaði til þess þegar hann framlengdi téðan frest um tíu daga hinn 27. febrúar síðastliðinn. Hvað er til í þessum hótunum Trumps er svo önnur spurning enda hefur hann framlegnt þennan frest tvisvar, í bæði skipti með vísan til þess að einhverjar samningaviðræður stæðu yfir. Lindsey Graham, öldungadeildarþingmaður Repúblikana, segist þó hafa rætt við Trump og kveðst „sannfærður“ um að forsetinn ætli að fylgja þessum hótunum eftir, að því er fram kemur í X-færslu þingmannsins. Fátt heyrst af týnda flugmanninum Bandaríkjaher hefur nefnilega síðustu sólarhringa staðið í ströngu við leit að bandarískum hermanni sem kastaði sér úr orrustuþotu eftir að hún var skotin niður yfir Íran. Íranir leita einnig að flughermanninum og bjóða fundarlaun sem jafngilda átta milljónum íslenskra króna fyrir þann sem kann að vísa írönskum yfirvöldum á „óvinaflugmanninn“, samkvæmt umfjöllun BBC og New York Times. Trump og Hvíta húsið hafa lítið tjáð sig um atvikið og í samtali við Independent í gær neitaði forsetinn að segja til um hver viðbrögð hans yrðu ef íranskar hersveitir næðu til flugmannsins. „Við vonum að það muni ekki gerast,“ sagði Trump í gær Flugmaðurinn er fyrsti bandaríski flugmaðurinn sem skotinn er niður yfir óvinasvæði frá því að flugmaður orrustuþotu varð fyrir loftvarnaeldflaug í apríl ársins 2003, samkvæmt umfjöllun Independent. Það sem meira er, þurfti leitarþyrla Bandaríkjahers í Íran að flýja er hún varð fyrir skothríð frá jörðu niðri í gær við leit að hermanninum. Auk þess var önnur bandarísk herþota skotin niður yfir Persaflóa í gær. Flugmanninum í þeirri þotu var bjargað.
Donald Trump Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Mest lesið Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Erlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Erlent Vilja 125 milljónir til að halda flugeldasölunni gangandi Innlent Geðrofslyf leysa hefðbundin svefnlyf af hólmi Innlent Hnuplaði úr verslunum fyrir á fjórðu milljón króna Innlent Beit mann í geirvörtuna og réðst á systur hans Innlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira