Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar 5. apríl 2026 10:01 Hafnarfjarðarbær er íþrótta- og menningarbær sem hefur alið af sér landsþekkt tónlistarfólk og afreksíþróttafólk um áratugaskeið. Í bænum starfa öflug íþróttafélög sem skipa sér í raðir þeirra bestu. Framboð af fjölbreyttu frístundastarfi er mikið og má þar telja: handbolti, fótbolti, tónlistarskóli, lúðrasveit, fimleikar, dans, sund, borðtennis, bogfimi, frjálsar íþróttir, hjólabretti, loftfimleikar, siglingar og skátar. Þegar Samfylkingin komst í meirihluta sumarið 2002 í Hafnarfirði brutu jafnaðarmenn blað í sögu íslenskra sveitarfélaga með því að samþykkja fyrst hér á landi niðurgreiðslur í frístunda- og tómstundastarf. Í kjölfarið hafa flest, ef ekki öll, sveitarfélög landsins fylgt fordæminu. Meginmarkmið frístundastyrkjakerfisins er skýrt: að gera öllum börnum kleift að taka þátt í frístundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Við megum vera stolt af þessari vegferð. Áhrif frístundastarfs eru óumdeild þegar kemur að lýðheilsu og lífsgæðum. Frístundastarf veitir gleði og tilgang auk þess að styrkja tengsl sem byggjast á sameiginlegum áhugamálum. Á tímum aukinnar kyrrsetu og skjánotkunar skiptir skipulagt íþrótta- og tómstundastarf miklu máli fyrir hreyfingu og heilsu barna og ungmenna. Forvarnargildi þess hefur margsinnis sýnt sig; þátttaka dregur úr líkum á vímuefnaneyslu, áfengisneyslu og tóbaksnotkun. Árið 2020 var Hafnarfjörður með hæstu frístundastyrkina samkvæmt úttekt ASÍ, þá 54.000 krónur á barn. Nú blasir við breytt mynd þar sem Hafnafjörður er ekki lengur í farabroddi og önnur sveitarfélög hafa tekið forystuna. Frístundastyrkur í Hafnarfirði fyrir 6-17 ára börn er nú 65.000 kr en sem dæmi eru frístundastyrkir í Reykjavík 75.000 og 70.000 kr í Kópavogi. Við getum einnig skoðað þetta úr frá verðlagi sem hækkað hefur umtalsvert frá árinu 2020. Samkvæmt vísitölu neysluverðs hefur verðbólga frá 2020 til 2026 verið um 25–35% samanlagt. Til að halda sama kaupmætti og 54.000 krónur höfðu árið 2020 þyrfti styrkurinn í dag að vera um 70–75 þúsund krónur. Þegar styrkir fylgja ekki verðlagi rýrnar raunverulegur stuðningur við fjölskyldur, jafnvel þótt krónutalan hækki lítillega. Ef markmiðið er að tryggja jöfn tækifæri barna til þátttöku í íþrótta- og tómstundastarfi þarf stuðningurinn að taka mið af raunverulegum kostnaði ekki verðlagi fortíðar. Samfylkingin hefur á yfirstandandi kjörtímabili a.m.k. fjórum sinnum lagt til hækkun á frístundastyrknum en meirihlutinn ávallt fellt. Nú skiptir máli að bæjarbúar snúi bökum saman og tryggi að Hafnarfjörður verði áfram í fararbroddi þegar kemur að jöfnum tækifærum barna og ungmenna. Það er fjárfesting í lýðheilsu, framtíð og samfélaginu öllu. Við gerum það með því að styðja jafnaðarmenn, Samfylkinguna, í kosningum í maí. Höfundur er sálfræðingur og skipar 4. sæti á lista Samfylkingar í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar