Viljum við virða mannréttindi fatlaðs fólks? Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar 9. apríl 2026 12:02 Undanfarið hafa mikilvæg hagsmunamál fatlaðs fólks og öryrkja náðst í höfn. Þar ber fyrst að nefna lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þarnæst breytingar á örorkugreiðslum almannatrygginga og tengingu þeirra við launavísitölu. Þessar jákvæðu breytingar hafa hins vegar vakið upp óvægna umræðu um stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu. Hornsteinninn í réttindabaráttunni Samningur Sameinuðu þjóðanna er hornsteininn í réttindabaráttu fatlaðs fólks. Markmið hans er að tryggja mannréttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra og stuðla að fullri þátttöku þess í samfélaginu. Breytingunum á örorkugreiðslum almannatrygginga er ætlað að tryggja lágmarksframfærslu og efla endurhæfingu, þannig að sem flestir geti lifað sjálfstæðu lífi og tekið þátt á vinnumarkaði eftir getu. Tenging greiðslna almannatrygginga við launavísitölu tryggir svo að öryrkjar, sem seint verða taldir tekjuháir, dragist ekki enn frekar aftur úr launaþróun. Allt eru þetta mikilvægir áfangasigrar sem bera vitni um réttlátt og mannúðlegt samfélag, byggt á jafnræði og samkennd. Eins og Ísland á að vera. Samhliða þessum áföngum hefur hins vegar sprottið upp óvægin umræða sem ber merki um takmarkaðan skilning á og virðingu fyrir lífi og aðstæðum fatlaðs fólks. Ákveðinn hópur í samfélaginu virðist telja að öll viðleitni til að tryggja fötluðu fólki sjálfsögð mannréttindi og lágmarks lífsviðurværi muni setja hagkerfið á hliðina. Slík sjónarmið voru sérstaklega áberandi í umræðunni um tengingu greiðslna almannatrygginga við launavísitölu og lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna. Pólitískur mótþrói í umræðu um samninginn Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks hefur velkst um í íslensku stjórnkerfi allt frá árinu 2007. Tæpir tveir áratugir liðu frá því að hann var fyrst samþykktur fyrir Íslands hönd þar til hann öðlaðist fullt lagalegt gildi í nóvember 2025. Þrátt fyrir það kom fram ákveðinn pólitískur mótþrói gegn lögfestingunni. Því var til dæmis haldið fram að ný Mannréttindastofnun Íslands væri algjörlega óþörf, jafnvel þótt stofnun hennar væri grunnforsenda fyrir innleiðingu samningsins. Fram kom að ákveðnir flokkar væru einfaldlega á móti nýjum ríkisstofnunum, en þeim yfirlýsingum fylgdu engar tillögur um hvernig framfylgja mætti samningnum á annan hátt. Markmiðið virtist því fyrst og fremst vera að tefja fyrir lögfestingunni. „Aukakostnaður“ við lögfestingu samningsins Í aðdraganda lögfestingar samningsins fór að bera á umræðu um að hún myndi hafa í för með sér gríðarlegan viðbótarkostnað fyrir sveitarfélögin í landinu. Vísað var í greiningar sem sýndu að áætluð árleg kostnaðaraukning yrði allt að 18,6 milljarðar króna. Þegar nánar er að gáð hefur sú þjónusta sem um ræðir hins vegar verið lögbundin allt frá 2018, þegar Alþingi samþykkti lög um þjónustu við fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Hér er því ekki um neinn umframkostnað að ræða, heldur kostnað sem sveitarfélögin hafa komist hjá því að greiða á meðan lögfesting samningsins dróst. Forsendur útreikninganna byggja þar að auki að afar litlu leyti á upplýsingum um raunverulega þörf. Gefum okkur réttar forsendur Umframkostnaðurinn svokallaði skiptist í 11,8 milljarða króna árlegan rekstrarkostnað vegna sértækrar búsetu og 2,3 milljarða kostnað við NPA, notendastýrða persónulega aðstoð. NPA hefur sannað sig sem eitt öflugasta úrræðið til að stuðla að sjálfstæði og atvinnuþátttöku fatlaðs fólks. Við þetta bætist áætlaður 4,5 milljarða króna kostnaður við þjónustu við einstaklinga með flóknar stuðningsþarfir og börn með fjölþættan vanda. En hvernig er þessi mikli aukakostnaður reiknaður? Sem dæmi er kostnaðurinn við NPA einfaldlega reiknaður út frá meðaltalskostnaði við þá samninga sem gerðir hafa verið hingað til og þeim fjölda samninga sem ríkið hefur samþykkt að fjármagna. Ríkið greiðir 25% kostnaðar við NPA og sveitarfélögin 75%. Strax við setningu laganna árið 2018 gáfu stjórnvöld vilyrði fyrir þátttöku í kostnaði við allt að 172 NPA samninga. Ríkið gerði reyndar ráð fyrir allt að 150 samningum árið 2021 og 172 samningum árið 2022, en það hefur enn ekki gengið eftir. NPA miðstöðin hefur reiknað út að miðað við þróunina frá því að lögin voru samþykkt muni þetta upphaflega markmið ekki nást fyrr en í fyrsta lagi árið 2031. Fjöldi NPA samninga í fyrra árið 2025 var 128. Niðurstöðurnar um viðbótarkostnað vegna samningsins byggir á meðaltalskostnaði við þá 44 samninga til viðbótar sem ríkið hefur þegar samþykkt að fjármagna. Þær byggja með öðrum orðum ekki að neinu leyti á þarfagreiningum eða raunverulegri eftirspurn, heldur eingöngu tölu sem sett var fram árið 2018 og erfitt hefur reynst að uppfylla. Við nánari athugun kemur í ljós að nánast engar upplýsingar eru til um biðlista eftir NPA, hvorki í sveitarfélögunum né á landsvísu. Þá eru engar upplýsingar til um það hversu margir hafa sóst eftir slíkri þjónustu en ekki fengið. Úr þessu þarf að bæta hið fyrsta til að hægt sé að færa umræðuna um málefni fatlaðs fólks upp á hærra plan. Færri háværar yfirlýsingar og ítarlegri gögn um málaflokkinn myndu koma að verulegu gagni. Hvatning í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga Við hjá Sjálfsbjörg, landssambandi hreyfihamlaðra, fögnum allri umræðu um fjármögnun og eflingu þjónustu við fatlað fólk. Í aðdraganda sveitarstjórnarkosninganna þann 16. maí næstkomandi hvetjum við ríki og sveitarfélög til að finna ásættanlegar lausnir á fjármögnun NPA og annarrar þjónustu við fatlað fólk. Jafnframt hvetjum við stjórnmálamenn og frambjóðendur til þess að taka yfirlýsingum um að við séum að setja samfélagið á hliðina með fyrirvara. Þær eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Höfundur er formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Viðræðurnar snúast um aðlögun Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar