Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 9. apríl 2026 23:51 Meira en 1.100 eru taldir særðir eftir árásina. AP Tala látinna eftir að Ísraelsher gerði loftárás á miðborg Beirút í gær er komin yfir þrjú hundruð. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir að herinn haldi áfram árásum á Hezbollah-samtökin þar til öryggi Ísraela er tryggt.
Gærdagurinn var sá mannskæðasti síðan Ísraelar hófu hernað gegn Hezbollah, að því er kemur fram í umfjöllun AP. Fjölda er enn saknað eftir árásina og óttast er að tala látinna hækki enn fremur. Írönsk stjórnvöld hafa sagt árásirnar skýrt brot á vopnahléssamkomulagi þeirra og Bandaríkjanna. Netanjahú sagði í færslu á samfélagsmiðlum í dag að hann hefði beðið ríkisstjórn sína um að hefja viðræður við stjórnvöld í Líbanon sem fyrst, sem eigi meðal annars að lúta að afvopnun Hezbollah-samtakanna og friðaráætlun. Á sama tíma hvatti Ísraelsher fólk í suðurhluta Beirút til þess að koma sér af svæðinu vegna fyrirhugaðra árása. Ísraelsher og Hezbollah héldu loftárásum á víxl áfram í dag. Viðræður sagðar í næstu viku Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í viðtali á NBC fyrr í kvöld að hann hefði beðið Netanjahú um að stilla árásum á Líbanon í hóf. Þá sagðist hann jákvæður fyrir því að friðarviðræður Írana og Bandaríkjamanna í Islamabad í dag beri árangur. Í ávarpi sem Netanjahú birti á X í kvöld segir að ekkert vopnahlé sé í gildi í Líbanon og Ísraelsher komi til með að halda árásum áfram af fullum þunga þar til öryggi þjóðarinnar er tryggt. „Ísrael er sterkari en nokkru sinni fyrr, Íran er veikari en nokkru sinni fyrr. Ég hef þegar samið um frið við fjórar Arabaþjóðir og ég sé fram á að halda því áfram,“ sagði hann í ávarpinu. Prime Minister Benjamin Netanyahu:"Dear residents of the North, I am proud of you. You continue to stand firm.I wish to inform you: There is no ceasefire in Lebanon. We are continuing to strike Hezbollah with full force, and we will not stop until we restore your security. pic.twitter.com/k2JeKXEMBQ— Prime Minister of Israel (@IsraeliPM) April 9, 2026 Breska ríkisútvarpið hefur eftir heimildum að vopnahlésviðræður Ísraela og Líbana séu fyrirhugaðar í næstu viku og verði á vegum utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna. Heimsmarkaðsverð á olíu hækkaði aftur í dag í ljósi óvissu um hvort vopnahléð sem samið var um haldi. Íranir hafa sagst ekki ætla að opna fyrir greiða skipaumferð um Hormússund fyrr en látið verði af árásum í Líbanon. Brad Cooper flotaforingi Bandaríkjahers sagði í yfirlýsingu sem BBC hefur eftir í kvöld að Bandaríkjaher muni áfram standa við vopnahléssamninginn við Írani en engu að síður verði herinn með viðveru á svæðinu og sé öllu reiðubúinn breytist forsendur.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Íran Líbanon Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. 8. apríl 2026 17:13 Mest lesið „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Innlent Óhugnanlega margir að leysa vandamálin með töflum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Segir lögreglumenn á Vestfjörðum áhyggjufulla Innlent Bæjarstjóri Ölfuss segir múslima „valda skaða“ Innlent Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Erlent „Það er sitthvað til í því sem hann er að segja“ Innlent Brikk lokað í óákveðinn tíma Innlent Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Erlent Fleiri fréttir Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Sjá meira
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. 8. apríl 2026 17:13