Nýtt Álftanes á einu kjörtímabili Hreiðar Þór Jónsson skrifar 10. apríl 2026 11:31 Á síðustu árum hefur íbúum Garðabæjar fjölgað hratt. Hér er ekki verið að vísa til sameiningarinnar við Álftanes árið 2013, heldur þeirrar uppbyggingar sem hefur átt sér stað síðan þá. Frá 2013 hefur íbúafjöldi aukist um rúmlega 50% og í byrjun árs voru íbúar orðnir tæplega 21 þúsund. Á síðasta kjörtímabili nemur fjölgunin því sem jafngildir einu Álftanesi. Það er veruleg breyting á svo skömmum tíma og sýnir að Garðabær er orðinn eftirsóknarverður kostur fyrir fjölbreyttan hóp nýrra íbúa. Sú þróun er jákvæð, en hún setur jafnframt skýrar kröfur á skipulag og innviði. Þegar uppbygging fer fram úr innviðum Svona hröð fjölgun gerist ekki af sjálfu sér. Hún er afleiðing ákvarðana um skipulag, þéttleika og uppbyggingarhraða. Slíkar ákvarðanir kalla á að innviðir og þá sérstaklega samgöngur, þróist samhliða. Reynslan bendir til þess að það hafi ekki alltaf gengið eftir. Í eldri hverfum bæjarins er aðgengi almennt gott, en í nýrri hverfum eins og Urriðaholti og í kringum Kauptún hefur myndast álag sem margir kannast við. Þar er upplifun íbúa og þjónustuaðila sú að tengingar inn og út úr hverfum ráða ekki við umferðarmagn á álagstímum. Þegar slíkt ástand verður viðvarandi er það yfirleitt ekki tilviljun heldur merki um að forsendur skipulags hafi ekki haldið í framkvæmd. Einbreiðar lausnir í tvíbreiðum vexti Í umræðu um þróun nýrra hverfa hefur komið fram að forsendur um samsetningu íbúa og ferðavenjur hafi ekki alltaf gengið eftir. Það skiptir máli, því slíkar forsendur liggja til grundvallar ákvörðunum um vegakerfi, tengingar og bílastæði. Gögn um bílaeign í Garðabæ benda til þess að um einn bíll sé á hvern íbúa 17 ára og eldri. Ef sú mynd er lögð til grundvallar má gera ráð fyrir að 250 nýjar íbúðir kalli á að lágmarki 500 bílastæði, auk þess sem tryggja þarf að umferð komist greiðlega til og frá svæðinu. Ef skipulag gerir ráð fyrir minni umferð en raunveruleikinn krefst, þá birtist það ekki á teikniborðinu, heldur í daglegum töfum í umferðinni. Ekki byggja á vonum, heldur gögnum Það er ólíklegt að ný hverfi í Garðabæ byggist upp að verulegu leyti af fólki sem velur sér bíllausan lífsstíl. Skipulag þarf því að taka mið af raunverulegri hegðun íbúa, ekki æskilegum sviðsmyndum. Þegar ákvarðanir um uppbyggingu eru teknar án þess að slík gögn séu lögð til grundvallar skapast hætta á að hagsmunir annarra en íbúanna fái meira vægi en eðlilegt er. Afleiðingin er sú að innviðir dragast aftur úr og vandinn flyst inn í daglegt líf fólks. Er kerfið tilbúið fyrir 25 þúsund íbúa? Samkvæmt húsnæðisáætlun er gert ráð fyrir um 23% fjölgun íbúa á næstu 10 árum. Það þýðir að íbúar Garðabæjar gætu orðið yfir 25 þúsund áður en langt um líður. Þetta er ekki spurning um hvort vöxtur eigi sér stað, heldur hvort bæjarfélagið sé undir það búið. Ef núverandi áskoranir í samgöngum eru ekki leystar munu þær margfaldast með áframhaldandi uppbyggingu. Ákvörðun um forgangsröðun Kjarni málsins er einfaldur: uppbygging þarf að fara fram samhliða fjárfestingu í innviðum. Það krefst skýrra forsendna, gagnadrifinnar ákvarðanatöku og þess að hagsmunir íbúa séu settir í forgang. Í komandi kosningum skiptir máli að velja til verka fólk sem leggur áherslu á raunhæft skipulag, skilvirka framkvæmd og ábyrgð í uppbyggingu bæjarins. Ég valdi að ganga til liðs við Viðreisn í Garðabæ vegna þess að þar er vilji til að ráðast í nauðsynlegar breytingar, með skýrari forgangsröðun, hraðari ákvarðanatöku og skipulagi sem þjónar hagsmunum íbúa. Höfundur skipar 5. sæti á lista Viðreisnar í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun