Sterk vinnustaðarmenning er lykillinn að góðum árangri Kolbrún Magnúsdóttir skrifar 10. apríl 2026 13:31 Þegar við styðjum betur við fólkið sem vinnur fyrir bæinn þá nýtur samfélagið allt góðs af. Hafnarfjörður stendur á sterkum grunni. Við höfum byggt upp samfélag þar sem metnaður, mannauður og fagmennska fara saman og það er grunnur sem við í Framsókn ætlum að halda áfram að styrkja. Við ætlum að halda áfram á þeirri vegferð að gera Hafnarfjörð að eftirsóknarverðum vinnustað og sterkt samfélag þar sem fólki finnst gott að vera. Það gerum við með því að hafa skýra forgangsröðun þar sem fólk er sett í fyrsta sæti. Vinnustaðamenning er ekki „mjúkt“ viðfangsefni hún er ein af grunnstoðum árangurs. Rannsóknir á sviði mannauðsmála og skipulagsheilda sýna að vellíðan, traust og skýrleiki hafa bein áhrif á framleiðni, ákvarðanatöku, nýsköpun og gæði þjónustunnar sem við veitum. Þegar fólk upplifir öryggi, tilgang og traust eykst árangur. Það sem gert hefur verið – og hvers vegna það skiptir máli Meðvituð ákvörðun hefur verið tekin um að byggja upp vinnustaðamenningu sem stendur á traustum faglegum grunni og þjónar bæði starfsfólki og íbúum bæjarins. Settur hefur verið af stað leiðtogaskóli fyrir stjórnendur þar sem áhersla er lögð á mannlega og faglega forystu sem skilar sér í betri þjónustu Reglulegar mælingar hafa verið innleiddar sem mæla starfsánægju og líðan starfsfólks og ákvarðanir teknar byggðar á gögnum, ekki tilfinningum Gripið hefur verið til markvissra aðgerða sem hafa dregið úr veikindum, vellíðan starfsfólks er beintengd gæðum þjónustunnar sem við veitum Þetta eru ekki tilviljanakenndar aðgerðir heldur skýr stefna. Stefna sem byggir á því að fagmennska í mannauðsmálum skilar raunverulegum árangri, betra starfsumhverfi, meiri stöðugleika og sterkari þjónustu við íbúa. Vellíðan sem stefnumótandi þáttur Vellíðan starfsfólks er ekki aukaatriði, hún er stefnumótandi ákvörðun. Hún nær yfir líkamlega, andlega og félagslega þætti og hefur bein áhrif á starfsgetu, skuldbindingu, gæði vinnunar og þjónustunnar sem við veitum. Þegar starfsfólk upplifir jafnvægi, stuðning og að það skipti máli, þá eykst bæði árangur og stöðugleiki í rekstri. Fyrir sveitarfélag eins og Hafnarfjörð þýðir þetta einfaldlega betri þjónustu við íbúa. Traust byrjar hjá einstkalingnum. Traust er lykilatriði í sterkri menningu, áður en við byggjum traust milli fólks, verðum við að horfa á grunninn: Traust einstaklingsins til sjálfs sín. Starfsfólk sem treystir eigin getu, þekkir styrkleika sína og hefur rými til að þróast, sýnir meira frumkvæði, tekur betri ákvarðanir og meiri ábyrgð. Hlutverk vinnustaðarins er að skapa aðstæður þar sem þetta traust fær að vaxa. Það gerist með skýrum ramma, uppbyggilegri endurgjöf, stuðningi og raunverulegu samtali. Fagmennska, skýrleiki og stöðugar umbætur Fagmennska snýst ekki aðeins um þekkingu, hún snýst um framkvæmd. Skýr markmið, vel skilgreind hlutverk og gagnsæ samskipti draga úr óvissu og álagi og auka skilvirkni. Þegar starfsfólk veit til hvers er ætlast og hefur réttu verkfærin til að standa sig, skapast umhverfi þar sem árangur verður fyrirsjáanlegur. Við þurfum að þróast á sama hraða og heimurinn breytist. Ef við gefum okkur ekki rými til að þróast, drögumst við aftur úr. Landslagið á vinnumarkaði er stöðugt að breytast. Það kallar á meðvitaða nálgun á hvaða hæfni við þurfum að þróa og við þurfum að skapa rými fyrir stöðuga uppfærslu. Það er ekki val heldur er það ábyrgð okkar allra. Sí- og endurmenntun þarf ekki að vera umfangsmikil, flókin eða dýr. Mikilvægast er að hún sé regluleg og stöðug og að við séum að þróa hæfni sem skiptir okkur máli. Þrír þættir skipta sérstaklega máli á vinnumarkaði framtíðarinnar: Að læra hratt: Það er ekki nóg að búa yfir þekkingu, við þurfum að umbreyta henni í færni. Að aðlagast breytingum: Það er ekki í boði að lifa á fornri frægð, það sem kom okkur hingað dugar ekki eitt og sér til að halda áfram Að tengja saman þekkingu: Að sjá heildarmyndina og tengja saman fólk, hugmyndir og lausnir Skýr stefna fyrir næstu skref Við í Framsókn sjáum mikilvægi þess að halda áfram á þessari vegferð og ætlum að vera skýr í næstu skrefum. Við ætlum að leggja áherlsu á að: Vellíðan starfsfólks sé hluti í allri stefnumótun Auka fjárfestingu í forvörnum og andlegri heilsu Efla stjórnendur enn frekar í mannlegri og faglegri forystu Styðja við starfsfólk í sí- og endurmenntun Tryggja reglulegt samtal við starfsfólk Reglulegar mælingar og nýta niðurstöður markvisst til umbóta Skapa vinnuumhverfi þar sem traust, ábyrgð og skýrleiki fara saman Þetta snýst um Hafnarfjörð Sterk vinnustaðamenning er ekki bara „innanhúsmál“. Hún hefur bein áhrif á þjónustu við íbúa, rekstur bæjarins og getu okkar til að laða að og halda í hæft starfsfólk. Hún dregur úr veikindum, eykur stöðugleika og skapar betra starfsumhverfi. Þegar starfsfólki líður vel þá skilar það sér í betri þjónustu, meiri gæðum og sterkari samfélagi. Hér eru mikil sóknartækifæri og við í Framsókn ætlum að halda áfram að fjárfesta og styðja við þessa vegferð af enn meiri festu, skýrleika, fagmennsku og metnaði. Höfundur er sjálfstætt starfandi mannauðsráðgjafi og skipar 2. sæti á lista Framsóknar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun