Meira sund í Kópavogi Jónas Már Torfason skrifar 15. apríl 2026 10:31 Íslensk sundmenning er einstök á heimsvísu. Svo einstök raunar að hún var síðastliðinn vetur tekin upp á lista UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf. Á listanum segir um sundmenningu okkar (í þýðingu undirritaðs): „Fólk sækir sundlaugarnar af ýmsum ástæðum, svo sem til hreyfingar, afslöppunar eða fyrir félagsskap. Sundlaugarnar eru reknar af samfélaginu, fyrir samfélagið.“ Sundlaugarnar eru einmitt staðir þar sem allar kynslóðir njóta sín og hittast, staður fyrir samfélag í heimabyggð. Ungmenni geta hist fjarri snjallsímum og öðrum truflunum, eldri borgarar haldast í líkamlegri og félagslegri virkni, og barnafjölskyldur hafa athvarf til leiks og tengslamyndunar. Allt á þetta sér stað í heilsubætandi umhverfi, bæði í formi slökunar og streitulosunar en einnig í formi mikilvægrar hreyfingar sem vöntun er á. Íslendingar gera sér líka grein fyrir að þessi menning er einstök. Í samtölum við fólk hef ég orðið var við að undantekningarlaust vill fólk að vel sé staðið að þessum málum og á það líka við fólk sem er ekki stórnotendur sundlauganna. Við viljum að fólk fari sem allra oftast í sund. Það er einn af þessum örfáu hlutum sem virðast eingöngu hafa kosti. Opnunartímar í Kópavogi eru stuttir og loka sundlaugar klukkan sex um helgar yfir veturinn og klukkan átta yfir vor- og sumarmánuðina. Helgarkvöld er einmitt sá tími sem við myndum allra helst vilja að ungmenni séu í sundi, þar sem þau geta átt heilsusamlega kvöldstund með jafningjum, fjarri vondum aðstæðum. Það er oft líka eini tíminn sem þreyttir foreldrar geta komist í afslappandi sund eftir langa viku. Eins var tekin ákvörðun á kjörtímabilinu um að bara önnur af tveimur sundlaugum Kópavogs yrði opin á hátíðisdögum. Þegar öll fjölskyldan er í fríi og skólar og leikskólar lokaðir, og loksins gefst andrými frá önnum hversdagsins til að verja tíma saman sem fjölskylda. Hver sem hefur farið í sund á þessum dögum veit að það hefur myndast örtröð og vart verið þverfótað í búningsklefum. Nú hugsa kannski einhverjir að þetta sé nú ekki svo slæmt, áfram komast flestir í sund ef viljinn er fyrir hendi þrátt fyrir stuttan opnunartíma og lokanir á hátíðisdögum. Sparnaðurinn af þessum aðgerðum er hins vegar takmarkaður. Vatnið þarf áfram að hita og mannvirkið stendur enn þótt tómt sé. Það eina sem sparast eru vinnustundir starfsmanna en þær endurheimtast að hluta í formi gjaldtöku. En burt séð frá því er sundmenningin okkar eitthvað sem á að efla - við eigum að hafa meiri metnað en svo. Við viljum að fólk fari í sund og að það geri það sem oftast, sérstaklega nú þegar lýðheilsu er ógnað og gæðastundum fólks í samveru við hvert annað fer fækkandi. Það er þáttur í þeirri framtíðarsýn sem Samfylkingin hefur fyrir Kópavog. Við viljum lengri opnunartíma, meira sund. Samfylkingin vill að sundlaugarnar standi opnar til klukkan tíu öll kvöld og stefna að því að fyrir lok komandi kjörtímabils séu sundlaugar opnar til ellefu á föstudags- og laugardagskvöldum. Fleiri tækifæri til þess að spjalla í pottinum. Fleiri hlátursköll barna í rennibrautum. Fleiri hugleiðslustundir í gufubaðinu og andköf í kalda pottinum. Og við viljum fleiri sértilefni til að fara í sund; kvikmyndasýningar og dansleiki, miðnætursund og morgunsund. Bara svo lengi sem það er meira sund í Kópavogi. Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jónas Már Torfason Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Skoðun Skoðun Allir ósáttir við PISA – en hvað er hægt að gera? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Örvæntingafullir karlar Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Endurreisa þarf Kennaraháskólann Jón Bjarnason skrifar Skoðun Loksins úr mínus í plús Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Hreyfing skiptir sköpum – fyrir og eftir heilablóðfall Guðbjörg Þóra Andrésdóttir skrifar Skoðun Við vissum að þetta myndi gerast Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar